Fann fjölina sína á fyrsta degi

Fann­ey Birna Jóns­dótt­ir snýr aft­ur á vett­fang fjöl­miðl­un­ar eft­ir fæð­ing­ar­or­lof en hún er nú tveggja barna móð­ir og nýj­asta stúlku­barn henn­ar að verða 11 mán­aða. Fann­ey hef­ur ný­lega ver­ið ráð­in dag­skrár­stjóri hjá RÚV (Rás 1) og hlakk­ar til að mæta til starfa í byrj­un maí. Henni finnst út­varp­ið vera af­slapp­aðri mið­ill en sjón­varp­ið en úti­lok­ar þó ekki að snúa aft­ur á skjá­inn í fram­tíð­inni.

Fann fjölina sína á fyrsta degi

„Ég gæti þurft að hoppa frá ef barnið mitt vaknar,“ varar Fanney við í upphafi símtalsins við blaðamann.

Fanney Birna Jónsdóttir fjölmiðlakona snýr aftur á RÚV í byrjun maímánaðar eftir fæðingarorlof. Hún verður þá komin í nýtt hlutverk á ríkismiðlinum sem dagskrárstjóri Rásar 1.

Fjölmiðlakonan reynist sannspá: viðtalið er varla byrjað þegar barnið vaknar og blaðamaður er vinsamlegast beðinn um að hringja aftur að 10 mínútum liðnum.

En hvað gerir dagskrárstjóri annars?

„Dagskrárstjóri ákveður í samráði við dagskrárgerðarfólk og aðra sem vinna á rásinni hvað á að vera á dagskrá,“ útskýrir Fanney af einstakri þolinmæði fyrir þann sem hefur litla þekkingu á innri gangverki útvarpsstarfseminnar. „Það er eins og að vera ritstjóri á blaði nema miðillinn er öðruvísi. Fyrir utan dagskrárgerð snýst þetta síðan líka um starfsmannahald og annað utanumhald á rásinni.“

Kemur dagskrárstjóri líka að því að framleiða efni?

Það hefur verið allur gangur á því. Fráfarandi …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Borgþór Arngrímsson
2
Pistill

Borgþór Arngrímsson

Á Kast­rup eykst um­ferð­in en það ger­ir meng­un­in líka

Um­ferð­in um Kast­rup flug­völl við Kaup­manna­höfn eykst ár frá ári. Bú­ist er við að tæp­lega 36 millj­ón­ir far­þega fari um völl­inn á þessu ári og brott­far­ir og kom­ur eru að jafn­aði um 700 á degi hverj­um. Ný 60 þús­und fer­metra við­bót við flug­stöðv­ar­bygg­ing­una verð­ur tek­in í notk­un á næsta ári. Íbú­ar í ná­grenni flug­vall­ar­ins hafa áhyggj­ur af meng­un sem fylg­ir flug­um­ferð­inni.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár