Nálgumst við endalok áhrifavalda?

Stærstu áhrifa­valdar okkar tíma, Kar­dashian syst­urnar, eru að missa áhrif sín. Fylgj­endur þeirra segj­ast ekki lengur geta tengt við þær vegna þess að líf þeirra er of fjar­stæðu­kennt og full­komið. Pró­fessor í félags­fræði segir sam­fé­lags­miðla veita fólki meira stjórn en nokkurn tím­ann áður á því hvernig sjálfið birt­ist öðrum. Íslenskur áhrifa­valdur segir það ekki lengur nett að menga jörð­ina. Gætu þetta verið enda­lok áhrifa­valda?

Nálgumst við endalok áhrifavalda?

Samkvæmt íslenskri nútíma­máls­orða­bók er merk­ing orðs­ins áhrifa­valdur  „per­sóna eða atburður sem að hefur áhrif á e-n“ eða „per­sóna á sam­fé­lags­miðlum sem er tísku­fyr­ir­mynd og kemur vörum á fram­færi gegn greiðslu.“ 

Síðustu ár hafa áhrifa­valdar birst sem glæsi­legar glamúr fígúrúr á sam­fé­lags­miðlum. Algengt er að mið­aldra fólk fussi og sveii yfir áhrifa­völdum án þess að gera sér grein fyrir því að upp­á­halds pistla­höf­und­ur­inn, hlað­varps-stjórn­and­inn eða íþrótta­mað­ur­inn eru líka áhrifa­valdar, en þó í öðru formi.

Þegar flókið er að svara því hvaða hæfi­leika við­kom­andi býr yfir reyn­ist mörgum erfitt að skilja hvers vegna sá hinn sami sé yfir höfuð titl­aður áhrifa­valdur. Kar­dashian syst­urnar eru frum­kvöðlar er kemur að því að vera áhrifa­valdar án neins til­tek­ins hæfi­leika. Þær færa gjarnan rök fyrir því að það sé í raun og veru hæfi­leiki að vera góðar í mark­aðs­setn­ingu og við­skiptum. 

Endalok áhrifavalda?

Áhrifa­valdar græða á per­sónu­dýrkun og því að selja trú­verð­ug­leika sinn. Vin­sæl­ustu áhrifa­völd­unum hefur tek­ist að sanka að sér stórum fjár­hæðum og stjórn yfir neyt­enda­hegðun fylgj­enda sinna.

Sam­fé­lags­miðla­not­endur segj­ast nú vera farnir að sjá fyrir end­ann á vin­sældum systr­anna og tísku­bylgjur á borð við #deinfluencing njóta vin­sælda á TikTok. Þá velta sumir fyrir sér hvort við nálg­umst enda­lok áhrifa­valda eins og við þekkjum þá núna.

Vörumerki í mannslíkama

Eins og fólk almennt eru áhrifa­valdar fjöl­breyttir og erfitt er að setja alla undir sama hatt. Það sem þau eiga sam­eig­in­legt er að vilja koma ein­hverri vöru á fram­færi. Í sumum til­fellum eru áhrifa­vald­arnir sjálf varan sem er seld.  

Með til­komu sam­fé­lags­miðla og auknum vin­sældum raun­veru­leika­sjón­varps náðu Kar­dashian syst­urnar að mark­aðs­setja bæði per­sónu­leika sína og lík­ama. Við­skipta­módel þeirra gengur út á að sigr­ast á lík­am­legu eða and­legu óör­yggi og breyta því í vöru.

Núna er Kim að klára laga­nám og stefnir á að opna lög­manns­stofu fyrir fyrrum fanga. Þessa ákvörðun tók hún eftir að hafa verið gagn­rýnd fyrir að vera hæfi­leika­laus og heimsk allan sinn feril. Yngsta systirin Kylie snéri sínu stærsta óör­yggi, að vera með smáar varir, í vöru­merki sem tryggði henni nægar fjár­hæðir til að lifa á rest­ina af líf­inu. 

Sú gagn­rýni sem Kar­dashian syst­urnar verða mest fyrir á sam­fé­lags­miðlum þessa dag­ana er fyrir teng­ing­ar­leysi þeirra við almenn­ing og hvers­dags­legt líf. Nýjustu tísku­straumar ganga út á minímal­ískara útlit, umhverf­is­vænni lífs­stíl, meiri end­ur­nýt­ingu og tengsl við hvers­dags­leik­ann. Orðrómur er á kreiki í Hollywood um að þeim systrum verði ekki boðið á mik­il­væg­asta við­burð tísku­heims­ins, Met Gala þann 1. maí. 

„Það er ekki lengur nett að menga“

Birta Líf Ólafs­dóttir er mark­aðs­fræð­ingur og áhrifa­valdur. Hún heldur meðal ann­ars úti hlað­varp­inu Teboðið ásamt Sunnevu Ein­ars­dóttur þar sem vin­kon­urnar greina nýjasta slúðrið í Hollywood. Birta segir í sam­tali við Heim­ild­ina að það sé sterk afstaða tekin gegn Kar­dashian systr­unum af Vogue verði þeim ekki boðið. Það setur tón­inn fyrir mögu­leika þeirra innan tísku­heims­ins en mark­aðsvirði tísku­iðn­að­ar­ins er yfir einn og hálfur trillj­aður banda­ríkja­dala. 

Birta útskýrir hvers vegna syst­urnar virð­ast eiga undir högg að sækja. „Ég held að þetta sé pen­inga­flexið, að vera að sýna hvað þær hafa mikið milli hand­anna, Balenciaga skandall­inn, að Kim hafi farið í Marilyn Monroe kjól­inn. Þær voru líka að monta sig að fara í 15 mín­útna flug­ferðir. Það er ekki lengur nett að menga heim­inn.”

Ein af vin­sæl­ustu áhrifa­völd­unum á TikTok núna heitir Alix Erle og er 22 ára háskóla­nemi í Banda­ríkj­unum með fimm millj­ónir fylgj­enda. Aðdá­endur hampa henni fyrir að vera venju­leg, eins og við hin.

Aðspurð um það hvernig ungir áhrifa­valdar búi sér til lang­lífan feril segir Birta að Alix geri það vel. „Ég held að hún sé einmitt með nokkuð góða upp­skrift af því. Hún opnar hurð­irnar svo mikið inn í líf sitt. Þetta er alveg sturlað mikið.” Birta segir aðdá­endur vita í hvaða tímum Alix er og hvenær. Þetta aðgengi að per­sónu­lega lífi er það sem við­heldur lang­tíma­ár­angri. „Þú ert kom­inn á færi­bandið með henni og ert að ganga í gegnum þetta með henni,” segir Birta og bætir við að lyk­ill­inn að árangri sé einnig að vera sam­kvæm sjálfri sér.

Óviss hvort Instagram verði vinsælt eftir tvö ár

Samtalið fær­ist frá TikTok og yfir á Instagram. Aðspurð seg­ist Birta ekki viss um hvort að Instagram verði jafn vin­sælt eftir tvö ár. Hún segir rann­sókn­ina í Banda­ríkj­unum á TikTok sem Heim­ildin fjall­aði nýlega um ráða miklu. Aðspurð hvort að enda­lok áhrifa­valda séu í vændum segir Birta „nei ég held það ger­ist aldrei.”

Hún bendir á að áhrifa­valdar hafi lengi vel verið hluti af mann­legu sam­fé­lagi og geti verið íþrótta­fólk, stór­stjörnur, for­eldrar eða bara ein­hver sem við­kom­andi lítur upp til. Það að vera áhrifa­valdur þýðir ekki að við­kom­andi þurfi að vera á sam­fé­lags­miðlum. 

Sjálfið verður tættara

Ingólfur V. Gíslason, pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands, segir í sam­tali við Heim­ild­ina að sam­fé­lags­miðlar færi fólki auk­inna stjórn á birt­ingu sjálfs­ins. Í almennu tali segir Ingólfur sjálfið fyrst og fremst vera það hvernig við sjáum og skiljum okkur sjálf en einnig hvernig við kynnum okkur fyrir öðrum. Hann segir sjálfið verða til og við­haldið í sam­skiptum.

Aðspurður hvers vegna það skiptir okkur máli segir Ingólfur sjálfið ekki vera ein­hverja eina heild heldur alltaf birt og skilið í sam­skiptum við aðra. „Það er alveg sama þó að þau sam­skipti séu raun­veru­lega að eiga sér stað eða í koll­inum á okkur. Við viljum yfir­leitt alltaf að fólk upp­lifi okkur sem vel lukk­aðar per­sónur, jákvæðar, greindar, fal­legar og svo fram­vegis. Þannig reynum við að stað­festa eigin sjálfs­mynd.“

„Við getum teygt og togað lík­am­legt útlit okkar miklu betur heldur en að við höfum nokkurn tím­ann áður geta gert.“

Ingólfur segir okkur stjórna sjálf­inu betur en áður með til­urð sam­fé­lags­miðla. „Við getum teygt og togað lík­am­legt útlit okkar miklu betur heldur en að við höfum nokkurn tím­ann áður geta gert. Við stjórnum birt­ing­ar­mynd okkar miklu betur heldur en að mann­kynið hefur nokkurn tím­ann áður geta gert.“ Hann bætir við að á sam­fé­lags­miðlum höfum við tíma til að hugsa okkur um áður en við segjum eitt­hvað.  Þar sé ekki sama krafan eins og í sam­ræðum að segja eitt­hvað strax. „Við höfum þennan umþótt­un­ar­tíma.“

Þessu fylgja bæði jákvæðar og nei­kvæðar hliðar að sögn Ingólfs. „Ég held að þetta hafi bæði jákvæðar og nei­kvæðar hliðar eins og flest í líf­inu. Þetta eykur okkur mögu­leika til til­rauna­starf­semi sem hjálpar okkur að upp­götva hliðar á okkur sem við höfum ekki upp­götvað áður. En gerir það líka að verkum að sjálfið verður tætt­ara.“

Vinsælt að vera venjuleg

Hin 22 ára Emma Chamberlain nýtur mik­illa vin­sælda sem áhrifa­valdur á net­inu vegna þess hve venju­leg hún er. Emma situr í her­bergi sínu, ropar og prumpar á sama tíma og hún veltir heim­speki­legum álita­málum fyrir sér í hlað­varpi sínu, eins og hvernig við sem sam­fé­lag ráðumst á karakter fólks á net­inu og af hverju.

Síð­ast­liðin tvö ár var Emma beðin af Vogue um að taka við­töl við fræga fólkið á rauða dregli hins fína Met Gala. Áhorf­endum fannst mörgum hverjum eins og þeir væru að horfa á vin­konu sína tala við fræg­asta fólk í heimi. Viðbrögð Emmu við fræga fólk­inu vöktu mikla lukku vegna þess hve sama henni var um við hvern hún tal­aði. 

Til þess að halda aðdá­endum spenntum þurfa áhrifa­valdar líka að end­ur­upp­götva sig. Þess vegna er talað um að tón­list­ar­fólk fari í gegnum tíma­bil. Núna er söng­konan Taylor Swift á tón­leika­ferða­lag­inu „The Eras Tour“. Hún fer þar í gegnum öll tíma­bil sín sem söng­kona í sviðs­ljós­inu. Hvert tíma­bil er með sitt eigið þema og markast af ein­hverju vend­ingum í per­sónu­legu lífi ein­stak­lings­ins. Yfir pásk­ana greindu fjölda­margir miðlar frá því að Taylor væri orðin ein­hleyp eftir sex ára sam­band. Það gefur henni tæki­færi á að mark­aðs­setja sig á ný sem ein­hleypa konu og þar af leið­andi skapa ferskt efni tengt því.

Eru áhrifavaldar fjölmiðlar?

Sumir áhrifa­valdar byggja vöru­merki sitt á því að fjalla um aðra eins og Birta gerir að ein­hverju leyti með hlað­varp­inu sínu þar sem fjallað er um nýj­ustu vend­ingar í heimi fræga fólks­ins. Þeir áhrifa­valdar sem taka frétt­næm álita­mál, greina og búa til efni í kringum minna á fjöl­miðla. Stærsti mun­ur­inn er auð­vitað að áhrifa­vald­arnir vinna fyrir sig sjálf og hafa vald yfir því hvaða fyr­ir­tæki fá að koma að efn­inu. 

Áhrifa­vald­ur­inn byggir trú­verð­ug­leika sinn á sér­þekk­ingu um efnið, hann kafar dýpra en aðrir og býður hlust­endum svo upp á sam­an­tekt og grein­ingu byggða á hennar per­sónu­legu skoðun. Á þessu formi er auð­velt fyrir hlust­endur að byggja upp traust til áhrifa­valds­ins.

Neyslu­hyggjan á undir högg að sækja. Hún er ekki lengur jafn flott og hún var fyrir nokkrum árum. Ef marka má orð Birtu eru áhrifa­valdar ekki að fara neitt þó að þeir gætu birst okkur í öðru formi. „Í hvaða formi áhrifa­valdar verða, maður veit það ekki. Þýðing orðs­ins er ekki að þú þurfir að vera mann­eskja sem er dug­leg að pósta á sam­fé­lags­miðla.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár