TikTok ekki talið ógna þjóðaröryggi Íslands en notkun þess er til skoðunar hjá forsætisráðuneytinu

Meira en millj­arður jarð­ar­búa nota TikTok. Nú hefur mörgum opin­berum starfs­mönnum verið bannað að nota for­ritið af örygg­is­á­stæðum. Síð­ast­liðin fimmtu­dag mætti for­stjóri TikTok til yfir­heyrslu í banda­ríska þing­inu. Ungur íslenskur TikTok not­andi seg­ist ekki hrædd­ari við TikTok en önnur öpp.

TikTok ekki talið ógna þjóðaröryggi Íslands en notkun þess er til skoðunar hjá forsætisráðuneytinu

Opin­berum starfs­mönnum víða á Vest­ur­löndum er ekki heim­ilt að vera með sam­fé­lags­mið­il­inn TikTok í snjall­símum sínum. Grunur leikur á að eig­endur TikTok safni upp­lýs­ingum um not­endur og deili þeim til kín­verskra yfir­valda. 

Evr­ópu­sam­bandið og rík­is­stjórnir Bret­lands, Noregs, Hollands, Banda­ríkj­anna, Dan­merkur, Kanada og Ítalíu hafa tekið fyrir notkun TikTok meðal starfs­manna sinna. Einnig hefur fjöl­miðla­fólki í þónokkrum ríkjum verið gert að eyða app­inu úr þeim símum sem not­aðir eru í vinnu.

TikTok ógnar ekki þjóðaröryggi Íslands

Tals­maður for­sæt­is­ráðu­neytis Íslands segir í sam­tali við Heim­ild­ina að verið sé að skoða málið nánar hér á landi. Þegar sé búið að banna starfs­mönnum í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu að vera með TikTok í símum sínum vegna örygg­is­á­stæðna. 

Í svari frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu segir að TikTok ógni ekki þjóðar­ör­yggi Íslands né hafi áhrif á sam­skipti Íslands og Kína.

Hvað er TikTok?

TikTok var stofnað árið 2016 af kín­verska tækni­fyr­ir­tæk­inu ByteDance. Áður fyrr hét hét for­ritið Musical.ly. Flestir not­endur not­uðu appið í þeim til­gangi að deila mynd­böndum af sér syngja eða dansa. Eftir að ByteDance keypti Musical.ly var því breytt í TikTok. 

Þegar heims­far­ald­ur­inn COVID-19 skall á juk­ust vin­sældir TikTok hratt. Fjöl­breytni þess efnis sem not­endur deildu var orðin mun meiri og fólk á öllum aldri stofn­aði sér aðgang að app­inu. Á meðan að fólk sat inni­lokað í sótt­kví eða ein­angrun virk­aði TikTok sem ein­hvers­konar tengiliður við umheim­inn. 

Biden hótar banni 

Í kjöl­far vin­sælda TikTok fór að bera á kenn­ingum um að kín­verski sam­fé­lags­mið­ill­inn safn­aði gögnum um not­endur og deildi þeim með kín­verskum yfir­völdum. 

Árið 2020 reyndi fyrrum Banda­ríkja­for­seti Donald Trump fyrst að banna TikTok á grund­velli þjóðar­ör­yggis en mistókst. Nú þremur árum síðar lýsir núver­andi for­seti, Joe Biden, yfir sömu áhyggjum. Stjórn Bidens hefur hótað mögu­legu banni á appið verði ekki skipt um eig­endur þess. For­stjóri banda­rísku alrík­is­lög­regl­unnar sagði auð­velt fyrir Kínverja að nota appið til þess að safna gögnum um banda­rískan almenn­ing.

Sterk sam­staða ríkir milli Demókra­ta­flokks­ins og Repúblikana­flokks­ins um þetta mál. Nýlega lögðu flokk­arnir tveir fram sam­eig­in­legt frum­varp sem ætlað er að heim­ila þing­inu að banna öpp sem talin eru ógna öryggi almenn­ings.

Viðbrögð Kínverja

Kínversk stjórn­völd leggj­ast gegn til­lögu Banda­ríkj­anna um sölu á app­inu. Þau hafa áður gagn­rýnt Banda­ríkin fyrir skort á sönn­un­ar­gögnum um að TikTok ógni þjóðar­ör­yggi.

Eigendur TikTok segj­ast til­búnir að semja við Banda­ríkja­menn. Gagna­geymslu­verið Oracle geymir ein­hvern hluta þeirra gagna sem safnað er fyrir TikTok. Eigendur for­rits­ins leggja til að Oracle muni alfarið sjá um gagna­geymslu og þar með yrðu öll gögn í Banda­ríkj­unum. Þessi mála­miðlun þykir ekki nægi­lega góð.

Áður en að hægt verður að banna appið þarf sam­þykki banda­ríska þings­ins.  Þrátt fyrir sterka sam­stöðu milli flokk­ana tveggja sem þar sitja er óvíst að bannið næði í gegn í ljósi þess að 150 millj­ónir manna nota TikTok í Banda­ríkj­unum.

For­stjóri TikTok, Shou Zi Chew, var kall­aður fyrir orku- og við­skipta­ráð full­trúa­deildar banda­ríska þings­ins vegna máls­ins síð­ast­lið­inn fimmtu­dag, 23. mars. Þar var honum gert að svara spurn­ingum í fimm klukku­stundir. Þingmenn beggja flokka spurðu Chew spjör­unum úr. Chew við­ur­kenndi að eiga sjálfur hlut í ByteDance og sagði sín eigin börn ekki nota TikTok. Á TikTok eru nú fjölda­mörg mynd­bönd þar sem for­stjór­inn er lofsung­inn í athuga­semdum undir mynd­böndum úr yfir­heyrsl­unni fyrir ein­staka yfir­vegun og kurt­eisi.

Hvaða gögnum safnar TikTok?

Til þess að búa til TikTok aðgang þarf að deila tölvu­póst­fangi eða síma­núm­eri og að sam­þykkja skil­mála. Það er einnig hægt að skrá sig í gegnum Facebook, Google og Twitter aðganga. Í skil­mál­unum kemur meðal ann­ars fram að TikTok geti notað tækni sem greinir and­lit not­enda á meðan ef þeir nota filt­era. 

Auk þess­ara upp­lýs­inga greinir TikTok stað­setn­ingu not­enda, IP-tölu og það tæki sem við­kom­andi er í. Appið fylgist með hefð­bund­inni notkun, til dæmis hversu lengi horft er á hvert mynd­band og hvaða mynd­bönd eru send áfram til ann­arra not­enda.

Á síð­asta ári kom í ljós að starfs­menn ByteDance not­uðu TikTok til að nálg­ast upp­lýs­ingar um blaða­menn Buzzfeed og Financial Times. Þeir voru í kjöl­farið reknir. 

Notendur TikTok hafa áhrif

Margir not­endur segja TikTok ávana­bind­andi. Þegar for­ritið er opnað birt­ist for­síðan með sér­sniðnu efni að við­kom­andi not­enda. Sú síða kall­ast „For you“ síðan. Þar birt­ist mynd­band sem algrímið telur að not­and­inn hafi áhuga á. Mynd­böndin geta verið frá nokkrum sek­úndum og upp í þrjár mín­útur. Not­and­inn getur síðan skrollað niður for­síð­una og hvert mynd­bandið birt­ist á fætur öðru. Notendum er síðan frjálst að búa til mynd­bönd og deila þeim. Mynd­bandið birt­ist síðan á for­síðum ann­arra not­enda. Eftir því sem fleiri horfa á mynd­band, líka við það eða skilja eftir athuga­semd, því lík­legra er að mynd­bandið nái vin­sældum. 

Fjölda­hreyf­ingar eru áber­andi á TikTok. Sumarið 2021 not­uðu margir myllu­merkið #BlackLivesMatter til þess að deila áfram efni og sýna stuðn­ing. Í dag er búið að horfa á mynd­bönd undir því merki 34.000 millj­arð sinnum. Annað dæmi er #freeBritney. Þegar aðdá­endum popp­stjörn­unnar Britney Spears mis­bauð lög­ræð­is­svipt­ing hennar byrj­uðu þau að birta mynd­bönd undir því myllu­merki. Bylt­ingin end­aði á því að Britney fékk sjálf­ræði sitt aftur.

Áhrif þess efnis sem not­endur birta á TikTok hafa því sýnt sig að vera mikil.

“Ég er ekkert meira hrædd við TikTok heldur en önnur forrit”

Embla Rún Hall­dórs­dóttir er 21 árs stjórn­mála­fræði­nemi og TikTok not­andi. Eins og svo margir aðrir byrj­aði hún á TikTok í COVID af því að henni leidd­ist og var mikið inni. „Ég var búin að heyra fullt um TikTok og að það væri skemmti­legt en að maður þyrfti að passa tím­ann sinn því maður getur gleymt sér á TikTok.” 

Embla birtir sjálf mynd­bönd á TikTok og segir það góðan miðil til þess að vera skap­andi. 

Aðspurð segir Embla að óþægi­legt sé að TikTok safni um hana gögnum. „Mér finnst þetta nátt­úru­lega óþægi­legt en stað­reyndin er líka að Facebook er líka að gera það. Og Google. Ég er ekk­ert meira hrædd við TikTok heldur en önnur for­rit.”

EmblaEmbla byrj­aði á TikTok í COVID

Embla seg­ist hafa alist upp við að stór fyr­ir­tæki væru að njósna um fólk á inter­net­inu. „Þetta er orð­inn raun­veru­leiki sem maður bara sam­þykkir”. Sem stjórn­mála­fræði­nemi með mik­inn áhuga á póli­tík fær Embla oft póli­tískt mynd­bönd á TikTok. Hún seg­ist ekki hafa upp­lifað neinn áróður frá kín­verska Komm­ún­ista­flokknum. Í fram­haldi segir hún "Ég fer á TikTok þegar ég er ekki að hugsa um póli­tík."

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Spurningin er alltaf: hver safnar upplýsingum um okkur og hvernig eru þær notaðar?
    Ég sé mestu hættu fyrir mér þannig að urmull af netsporum ungrar manneskju sé safnaður og geymdur í ólýðræðislegu ríki (t.d. Kína). Flestar þessarar ungu manneskja vaxa úr grasi, stofna fjölskyldu og vinna óáhugaverða vinnu (frá sjónarhóli njósnara).
    Sumar verða þó þingmenn, ráðherrar, embættismenn, sjá um þjóðaröryggi og meira í þeim dúr.
    Þá getur verið gagnlegt að grafa upp það sem einstaklingurinn hefur fyrr á árum gert og skoðað: fór hann á klámsíðu þegar var 16 ára, sagði eitthvað óvarlegt þegar var 18 ára, gældi einhvern tíma við öfgasamtök áður en komst til vits, hélt fram hjá konu sinni fyrir 10 árum o.s.frv.
    Þetta gerir einstaklinginn berskjaldaðan fyrir óvinveitt ríki: hann gæti staðið frammi fyrir því að ekki komist upp um "ódæðið" með því að tjá sig um ákveðin mál, greiða atkvæði í þágu óvinveitta ríkisins (á þjóðþingi, hjá SÞ) eða einfaldlega að njósna fyrir það og alkt þar á milli.
    Vitað er að TikTok safnar upplýsingum um nethreyfingar og geymir í Kína.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár