Afkoman næstum þrefaldaðist og Guðmundur fær fimm milljarða í arð

Stærsti eig­andi sjáv­ar­út­vegs­ris­ans Brims er útgerð sem seldi Brim afla­heim­ildir sem metnar eru á tíu millj­arða króna á síð­asta ári. Útgerðin heitir Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur og Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri Brims, á allt hluta­féð í henni.

Afkoman næstum þrefaldaðist og Guðmundur fær fimm milljarða í arð
Eigandi Guð­mundur Krist­jáns­son á allt hlutafé í þeim félögum sem eiga Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur. Arð­greiðslur renna því til hans. Mynd: mbl/Kristinn Magnússon

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur, sem er að öllu leyti í eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar, hagn­að­ist um 72,3 millj­ónir evra á síð­asta ári, eða 10,3 millj­arða króna miðað við með­al­gengi árs­ins 2022. Heild­ar­af­koman var næstum því þrisvar sinnum betri en árið 2021, þegar hún nam 25,3 millj­ónum evra. 

Á grund­velli þess­arar afkomu lagði stjórn Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur til að 35 millj­ónir evra, um fimm millj­arðar króna, yrðu greiddar út í arð til félaga Guð­mundar sem eiga allt hluta­féð í útgerð­inni. Það er umtals­vert hærri upp­hæð en greidd var út til hans í arð árin á undan, en árið 2021 nam arð­greiðslan 13 millj­ónum evra og árið 2020 var hún 3,2 millj­ónir evra. Í evrum talið, en það er upp­gjörs­mynt Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur, þá var arð­greiðslan vegna síð­asta árs 130 pró­sent hærri en sam­an­lögð arð­greiðsla áranna tveggja sem komu á undan.

Þetta má lesa úr sam­stæðu­reikn­ingi Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur sem birtur hefur verið á heima­síðu útgerð­ar­innar. Honum hefur þó ekki enn verið skilað inn til árs­reikn­inga­skráar.

Eignarhlutur í Brim ekki bókfærður á markaðsvirði

Eigið fé útgerð­ar­innar var metið á 308,4 millj­ónir evra í lok síð­asta árs, en miðað við árs­loka­gengi evru eru það 46,7 millj­arðar króna. Fyrir liggur þó að eigið féð er van­metið. Þannig er sam­an­lagður eign­ar­hluti Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur, og dótt­ur­fé­lags þess RE-13 ehf., í Brimi, sem er skráð er á hluta­bréfa­markað, 44,42 pró­sent. Eign­ar­hlut­ur­inn í Brimi er bók­færður á 300,3 millj­ónir evra, um 42,7 millj­arða króna. Samkvæmt því mati er eign­ar­hlut­ur­inn um 62 pró­sent af efna­hags­reikn­ingi sam­stæð­unnar og nær allt eigið fé hennar.  

Í árs­reikn­ingnum kemur hins vegar fram að skráð mark­aðs­verð hlut­ar­ins hafi numið 513,6 millj­ónum evra á reikn­ings­skila­degi, sem var 29. mars síð­ast­lið­inn. Ef miðað er við með­al­gengi evru á síð­asta ári eru það 73 millj­arðar króna. Því væri hægt að selja hlut Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur í Brimi fyrir um 30 millj­örðum krónum meira en hann er bók­færður á ef sú sala færi fram á mark­aðsvirði hlut­ar­ins. 

Afla­heim­ildir sam­stæð­unnar eru bók­færðar á 79,4 millj­ónum evra, um tólf millj­arða króna á árs­loka­gengi evru, í lok síð­asta árs og námu sam­kvæmt því um 16,5 pró­sent af efna­hags­reikn­ingi sam­stæð­unnar.

Skuldir Útgerð­ar­fé­lags Reykja­víkur hafa verið að lækka nokkuð hratt. Heild­ar­skuldir sam­stæð­unnar voru 171 millj­ónir króna, 25,9 millj­arðar króna á árs­loka­gengi evru, um síð­ustu ára­mót og höfðu þá lækkað næstum þriðj­ung milli ára. 

Seldu skip og kvóta til Brims í fyrra

Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur seldi í sept­em­ber 2022 frysti­togar­ann Sólborgu RE-27 ásamt afla­heim­ildum sem námu sam­tals 0,26 pró­sent af heild­ar­út­hlut­uðum þorskígildistonnun til nýstofn­aðs dótt­ur­fé­lags síns, Sól­borgar ehf. Í kjöl­farið var gerður samn­ingur um sölu á öllum hlutum Sól­borgar ehf. til Brims. Í árs­reikn­ingnum segir: „End­an­lega var gengið frá sölu félag­ins í des­em­ber. Sölu­hagn­aður nam 43,6 millj­ónum evra og er fram­settur meðal ann­arra rekstr­ar­tekna og sölu­hagn­aðar í rekstr­ar­reikn­ingi félags­ins.“ Miðað við árs­loka­gengi evru var sölu­hagn­að­ur­inn 6,6 millj­arðar króna.

Í árs­reikn­ingum er heild­ar­verð­mæti tog­ar­ans og afla­heim­ilda hans brotið niður. Þar kemur fram að afla­heim­ild­irnar hafi verið lang­mestu verð­mætin sem seld voru, en þær voru metnar á 68,7 millj­ónir evra, 10,4 millj­arða króna á meðan að skip og vinnslu­bún­aður voru metin á þrjá millj­arða króna. Brim tók hins vegar yfir lang­tíma­skuldir upp á 12,3 millj­arða króna í við­skipt­unum.

Í árs­reikn­ingnum kemur einnig fram að Útgerð­ar­fé­lag Reykja­víkur hafi selt skulda­bréf fyrir 900 millj­ónir króna í jan­úar síð­ast­liðnum, að það hafi haldið víxla­út­boð í febr­úar 2023 að fjár­hæð 3,5 millj­arða íslenskra króna og tekið lán frá við­skipta­banka að fjár­hæð um 20 millj­ónir evra í byrjun árs 2023. 

Í jan­úar 2023 fjár­festi félagið í 75 pró­sent eign­ar­hlut í Premium of Iceland ehf. fyrir 300 millj­ónir íslenskra króna, en það félag rekur fisk­vinnslu og sölu­starf­semi á íslenskum sjáv­ar­af­urðum á erlendum mörk­uðum. Þar segir enn fremur að dótt­ur­fé­lagið RE-13 ehf. hafi greitt „upp allar skuldir við við­skipta­banka sinn í jan­úar 2023 að fjár­hæð um 20,4 millj­ónum evra að við­bættum áföllnum vöxtum og upp­greiðslu­gjaldi.“ Umreiknað í íslenskar krónur er um að ræða um 3,1 millj­arð króna. 

Alls störf­uðu 94 starfs­menn hjá Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur í fyrra. Heild­ar­launa­greiðslur sam­stæð­unnar námu 23,5 millj­ónum evra, sem eru 3.344 millj­ónir króna miðað við með­al­gengi evru í fyrra. Það þýðir að hver og einn starfs­maður var að með­al­tali með um 250 þús­und evrur í laun hjá Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­víkur. Það er um 75 þús­und evrum meira en þeir höfðu að með­al­tali árið áður. Heild­ar­launin hvers og eins starfs­manns á árinu 2022 að með­al­tali voru því 35,6 millj­ónir króna, eða tæp­lega þrjár millj­ónir króna á mán­uði miðað við með­al­gengi evru á því ári. 

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Hvað með það þótt einhver Jón einhversstaðar græði einhverjar milljónir hef nú litlar áhyggjur af þvi
    0
  • Kári Jónsson skrifaði
    Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða hefur þjóðin fullt óskorðað eignarhald á aflaheimildum = aflaheimildir mynda EKKI eignarétt eða óafturkrefjanlegt forræði yfir aflaheimildum. Aðgengi að sameiginlegri sjávar-auðlind er AFNOTARÉTTUR ekki EIGNARÉTTUR, þess vegna þarf að sækja þessa fjármuni í gegnum dómstóla, ef Guðmundur í Brim skilar ekki þessum fjármunum sjálfviljugur til ríkissjóðs/almennings.
    Hvar eru lögfræðingarnir ? Hvar eru Alþingismenn ?
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Auðsjáanlega afar fær rekstrarmaður, Guðmundur. Væri örugglega maður til að borga eðlilegt afgjald fyrir afnot af auðlynd þjóðarinnar.
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Ógeð!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár