Vegagerðin leggur fram valkost sem Vegagerðin hefur ekki verið hrifin af

Vega­gerð­inni hefur lit­ist illa á þann val­kost að loka alfarið fyrir vinstri beygjur á gatna­mótum Reykja­nes­brautar og Bústaða­vegar. Sá val­kostur er þó annar tveggja sem verður tek­inn til skoð­unar í umhverf­is­mats­skýrslu vegna fyr­ir­hug­aðra fram­kvæmda á svæð­inu. Formaður umhverfis- og skipu­lags­ráðs Reykja­víkur er hrifn­ari af þeirri lausn en vinstri beygju af Reykja­nes­braut­inni á brú.

Vegagerðin leggur fram valkost sem Vegagerðin hefur ekki verið hrifin af
Fram­kvæmdir Tillögur hafa verið lagðar fram um skipu­lag umferðar á Reykja­nes­braut­inni, í tengslum við gerð sér­a­kreina fyrir Borg­ar­línu á milli Voga­byggðar og Stekkj­ar­bakka. Mynd: Vegagerðin

Talað hefur verið um að gera breyt­ingar á gatna­mótum Reykja­nes­brautar og Bústaða­vegar árum saman, en á næstu miss­erum skýrist hvernig þeim verður háttað. Í síð­asta mán­uði var lögð fram mats­á­ætlun af hálfu Vega­gerð­ar­innar, í sam­vinnu við Reykja­vík­ur­borg og Betri sam­göngur, um breyt­ingar á gatna­mót­unum og veg­kafl­anum á Reykja­nes­braut­inni á milli Voga­byggðar og Stekkj­ar­bakka með til­liti til sér­a­kreina fyrir Borg­ar­línu.

Val­kost­irnir sem lagðir voru fram varð­andi gatna­mótin eru í grunn­inn tveir. Annars vegar að rampur verði byggður yfir Reykja­nes­braut­ina til þess að akandi geti tekið vinstri beygju af Reykja­nes­braut­inni úr jaðri Elliða­ár­dals­ins yfir á Bústaða­veg. Hins vegar að búið verði svo um hnút­ana að allar vinstri beygjur á þessum stað verði ein­fald­lega gerðar ómögu­legar. Báðar þessar lausnir myndu hafa í för með sér að ekki yrði lengur þörf á ljósagatna­mótum á svæð­inu.

Vega­gerðin er veg­hald­ari Reykja­nes­braut­ar­innar, en Reykja­vík­ur­borg fer með skipu­lags­valdið innan borg­ar­markanna og fer end­an­leg útfærsla fram­kvæmd­ar­innar þannig …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár