1090. spurningaþraut: Leikrit og leikritahöfundar

1090. spurningaþraut: Leikrit og leikritahöfundar

Þessi þema­þraut snýst um leik­rita­höf­unda og leik­rit. Auka­spurn­ing­arnar snú­ast um íslenska leik­rita­höf­unda en aðal­spurn­ingar um erlend leik­skáld eða leik­rit.

Á fyrri mynd hér að ofan má sjá leik­skáld sem reyndar skrif­aði ekki aðeins leik­rit. Og hún heitir ... hvað?

Svo fæst lár­við­ar­stig fyrir að nefna fyrsta leik­ritið hennar sem frum­sýnt var 1970!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét hinn norski höf­undur leik­rita eins og Villiöndin, Hedda Gabler. Pétur Gautur og Þjóð­níð­ingur?

2.  Þýska skáldið Goethe samdi laust fyrir 1800 frægt leik­rit um efni­við sem margir aðrir hafa líka notað, t.d. Jóhann Sig­ur­jóns­son. Efnið snýst um metn­að­ar­gjarnan mennta­mann sem selur djöfl­inum sál sína fyrir meiri þekk­ingu. Hjá Jóhanni nefn­ist þessi per­sóna Galdra-Loftur, en hvað heitir per­sónan í leik­riti Goethes?

3.  Sölu­maður deyr er eitt þekktasta leik­rit Banda­ríkj­anna á 20. öld. Hvað hét höf­undur þess?

4.  Frægustu harm­leikja­höf­undar Forn-Grikkja voru þeir Eskilos, Evripídes og ... og hver?

5.  Óþelló, Hamlet, Ödipus kon­ungur, Coriolanus, Julius Caesar, Lér kon­ungur — hvað af þessum leik­ritum. er EKKI eftir William Shakespe­are? 

6.  En hvaða leik­rit, sem sann­an­lega er eftir Shakespe­are, hefst á því að þrjár nornir koma saman?

7.  Í frægu leik­riti eftir Ionescu, sem reyndar var sýnt í Þjóð­leik­hús­inu fyrir ekki löngu, fara per­són­urnar smátt og smátt að breyt­ast í ákveðið dýr. Leik­ritið heitir eftir þessum dýrum, og nefn­ist því ... hvað?

8.  Hvað heitir það leik­rit sem gengið hefur sam­fellt lengst í heim­inum eða í 71 ár?

9.  Edward Albee skrif­aði frægt leik­rit sem heitir Hver er hræddur við ... ja, við hvern eða hverja?

10.  Hver skrif­aði leik­ritið Beðið eftir Godot?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi íslenski leik­rita­höf­undur?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ibsen.

2.  Faust.

3.  Miller.

4.  Sófókles.

5.  Ödipus kon­ungur.

6.  Macbeth.

7.  Nas­hyrn­ing­arnir.

8.  Músa­gildran.

9.  Virginiu Woolf.

10.  Beckett.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Svava Jak­obs­dóttir.

Fyrsta leik­ritið hennar hét því skemmti­lega nafni Hvað er í blý­hólknum?

Á neðri mynd­inni er Tyrf­ingur Tyrf­ings­son.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár