1091. spurningaþraut: Jarðfræði, skordýrafræði, rokkmúsík og ljós!

1091. spurningaþraut: Jarðfræði, skordýrafræði, rokkmúsík og ljós!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað heitir sú berg­teg­und sem verður til við gos undir jökli (eða vatni þar sem gosopið er nálægt eða rétt undir yfir­borð­inu)?

2.  Egg, lirfa og full­vaxið skor­dýr. Hvað vantar í þessa upp­taln­ingu — og hvar?

3.  Hvað fékkst Högna Sig­urð­ar­dóttir við í líf­inu?

4.  Hvers konar nær­ing­ar­efni má helst fá úr kjöti, eggjum og fiski?

5.  Sú var tíð að með óreglu­legu milli­bili voru haldnar svo­kall­aðar „heims­sýn­ingar“ þar sem þjóðir sýndu helstu afrek sín, ekki síst í vís­indum og tækni ýmiss konar. Mikill metn­aður var einatt lagður í þessar heims­sýn­ingar en að þeim loknum stóð þó einatt fátt eftir. Sú var þó ekki raunin um heims­sýn­ing­una 1889. Eftir hana stendur svo­lítið sem enn minnir ræki­lega á sig. Hvað er það?

6.  Banda­ríkja­menn­irnir Robbie Krieger, John Densmore og Ray Manzarek voru allir í vin­sælli rokk­hljóm­sveit á hippa­tím­anum. Með þeim í hljóm­sveit­inni var söngv­ari og texta­höf­undur og meg­in­töffari í leð­ur­buxum sem var sann­kallað and­lit hljóm­sveit­ar­innar, þótt hann væri lítt spilandi á hljóð­færi. Eftir að söngv­ar­inn drakk sig í hel 27 ára gam­all reyndu þeir félagar að halda áfram að gefa út plötur en það gekk ekki án hans. Hvað hét þessi hljóm­sveit?

7.  En hvað hét söngv­ar­inn skamm­lífi? 

8.  Hvað þýðir orðið mólekúl í sinni ein­föld­ustu mynd?

9.  Hvar er eld­fjallið Mauna Kea?

10.  Hvers konar eindir mynda ljós?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi mynd prýddi umslag plötu sem út kom í vetr­ar­byrjun og vakti lof. Hvað kallar hún sig, lista­konan sem þarna sést?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Móberg.

2.  Egg, lirfa, PÚPA og full­vaxið skor­dýr.

3.  Arki­tektúr.

4.  Prótein.

5.  Eiffel-turn­inn í París.

6.  Doors.

7.  Morrison, Jim.

8.  Sameind, sam­band tveggja eða fleiri atóma.

9.  Á Havaí.

10.  Ljóseindir, á erlendum málum photons.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Hadrí­anus­ar­múr­inn á Bret­landi.

Á neðri mynd­inn er Gugusar.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár