1089. spurningaþraut: Hvaða drottning varð fyrir óláni?

1089. spurningaþraut: Hvaða drottning varð fyrir óláni?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver eða hverjir bjuggu í hús­inu á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Til hvaða heims­álfu telst ríkið Máritíus?

2.  Dagný Hulda Erlends­dóttir og Elsa María Guðlaugs Drífu­dóttir eru báðar ... hvað?

3.  Bonnie D. Zacherle heitir banda­rísk kona sem nú er 76 ára. Árið 1981 komu á markað lit­rík leik­föng sem hún átti mestan þátt í að hanna og ári seinna kom út önnur útgáfa með örlítið breyttu nafni. Nú meira en 40 árum síðar eru þessi leik­föng enn í fullu fjöri og auk leik­fang­anna sjálfra eru gerðir um þau sjón­varps­þættir, gefnar út bækur og bíó­myndir. Leik­ur­inn snýst um ákveðin alþekkt hús­dýr. Hvað er hér um að ræða?

4.  Hvað þýðir lat­neska orðið aqua?

5.  Drottn­ing ein varð fyrir því óláni að karl hennar kóng­ur­inn var drep­inn af óþekktum morð­vargi. Nokkru síðar kynnt­ist drottn­ing álit­legum ungum pilti og gekk að eiga hann. Enn síðar kom í ljós að hann var löngu týndur sonur hennar. Og viti menn, það var hann sem reynd­ist hafa drepið kóng­inn fyrrum. Þótti þetta að vonum hið versta mál. En hvar var hún drottn­ing? Hér þarf svarið að vera afar nákvæmt.

6.  En hvar var svokölluð  Blóð-María drottn­ing?

7.  Hvað hét yngri systir hennar?

8.  Þau Friðrik Mar­grétar-Guð­munds­son og Bryn­hildur Karls­dóttir eru í hljóm­sveit sem heitir heldur kvik­ind­is­legu nafni. Hvað heitir hljóm­sveitin þeirra?

9.  Hvaða film­stjarna stóð í ströngu fyrir dómi í síð­asta mán­uði vegna árekst­urs í skíða­brekku?

10.  Vignar Vatnar Stef­áns­son varð fyrir örfáum vikum 16. Íslend­ing­ur­inn til að ná til­teknum árangri. Hvaða árangur var það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi ungi maður heitir O'Connell að eft­ir­nafni. Hann er ljóm­andi góður tón­list­ar­maður. En samt er hann ennþá fræg­ari vegna fjöl­skyldu­tengsla. Hver eru þau?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Afríku.

2.  Frétta­menn hjá RÚV.

3.  My Little Pony.

4.  Vatn.

5.  Þebu í Grikk­landi.

6.  Englandi.

7.  Elísabet.

8.  Kvikindi.

9. Gwyneth Paltrow.

10.  Hann varð stór­meist­ari í skák.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er heim­ili Flint­stone-fjöskyld­unnar.

Hér má sjá heim­il­is­föð­ur­inn Fred berja að dyrum eftir að hafa læst sig úti ein­hvern tíma á stein­öld.

Finneas O'Connell er lang­frægastur fyrir að vera bróðir Billie Eilish en hann á reyndar sinn þátt í tón­list­ara­frekum hennar.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár