1088. spurningaþraut: Er ekki frost örugglega farið frá Fróni?

1088. spurningaþraut: Er ekki frost örugglega farið frá Fróni?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er þessi söng­kona, fram­ar­lega á ferli sínum?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða firði, flóa, vík eða vogi er Her­gilsey?

2.  Svandís Svav­ars­dóttir sett­ist fyrst á þing 2009 og varð strax ráð­herra. Hvaða ráð­herra?

3.  Matvara ein inni­heldur svo lítið vatn og sýru­stig hennar er svo hátt að bakt­er­íur geta vart eða ekki þrif­ist í henni. Hún skemmist því eig­in­lega ekki, enda hafa fund­ist krukkur með þess­ari mat­vöru óskemmdri sem taldar eru 5.500 ára gamlar. Hvað er þetta?

4.  Franskar kart­öflur eru ekki taldar hafa verið „fundnar upp“ í Frakk­landi, heldur ... hvar?

5.  Fjórar borgir í Þýska­landi hafa meira en milljón íbúa. Þrjár þeirra (og þær fjöl­menn­ustu) eru Berlín, Hamborg og München. En hver er sú fjórða?

6.  „Nú er frost á Fróni, / frýs í æðum blóð; / kveður kulda­ljóð ...“ — hver kveður kulda­ljóð?

7.  Hvert orti þetta ljóð?

8.  Árið 1772 stóð til að breskur heldri maður og land­könn­uður að nafni Joseph Banks færi í mikla sigl­ingu með Cook kafteini um Suðurhöf. Sú sigl­ing varð sögu­fræg en Banks fór af ýmsum ástæðum í fýlu og fór ekki með. Í stað­inn hélt hann í aðra sigl­ingu sem var á sinn hátt líka í frá­sögur færð. Hvert sigldi Banks með félögum sínum þetta ár?

9.  Miklar umræður sköp­uð­ust í síð­asta mán­uði um þá ákvörðun lands­liðs­þjálf­ar­ans í karla­fót­bolta að velja ekki einn til­tek­inn leik­mann í lands­leiki gegn Bosníu og Liechtenstein. Sá leik­maður heitir kunn­ug­legu nafni í fót­bolta­sög­unni. Hann heitir ... hvað?

10.  Þessi leik­maður spilar með liði í ítalska fót­bolt­anum. Hvaða liði?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er þetta skjá­skot?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Breiða­firði.

2.  Umhverf­is­ráð­herra.

3.  Hunang.

4.  Belgíu.

5.  Köln.

6.  Kári í jöt­un­móð.

7.  Kristján Jónsson Fjalla­skáld.

8.  Til Íslands.

9.  Albert Guð­munds­son.

10.  Genoa.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Ragn­hildur Gísla­dóttir.

Á neðri mynd­inni er skjá­skot úr Með allt á hreinu.

Eggert Þor­leifs­son og Tómas M. Tómassoní hlut­verkum sínum í Með allt á hreinu

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár