1087. spurningaþraut: Hver er ostruveiðarinn?

1087. spurningaþraut: Hver er ostruveiðarinn?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað nefn­ist fisk­ur­inn ill­úð­legi sem karl­inn hér að ofan heldur á?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Doris Mary Kapp­el­hoff fædd­ist 1922 en lést fyrir fjórum árum, 97 ára gömul. Undir hvaða nafni var Kapp­el­hoff heims­þekkt?

2.  Hvaða ríki fram­leiðir mest magn af létt­vínum í ver­öld­inni?

3.  Hvað er það sem James Bond drekkur „shaken, not stir­red“?

4.  Hvaða íslenski sagn­fræð­ingur hefur helst helgað sig land­helg­is­málum í seinni tíð og gefið út að minnsta kosti tvær bækur um efnið — og von mun vera á fleirum?

5.  Hvað nefn­ist vald­haf­inn í rík­inu Oceaniu í frægri skáld­sögu frá 1948?

6.  Hvað er brýnt fyrir þegn­unum í Oceaniu að þessi vald­hafi sé sífellt að GERA?

7.  Hvaða bíó­mynd fékk á dög­unum Eddu­verð­launin fyrir bestu mynd árs­ins 2022?

8.  Kringum alda­mótin 2000 var frægt dýr hér á landi kallað Gutt­ormur. Hvernig dýr var Gutt­ormur?

9.  Hvað heitir sundið milli Bret­lands og Frakk­lands?

10.  Fugla­teg­und ein heitir á ensku oystercather. Þar sem ostrur þekkj­ast ekki í íslenskri nátt­úru ber fugl­inn hér allt öðru­vísi nafn. Þetta er algengur far­fugl um allt Ísland þótt ein­hverjir fuglar kunni að búa sér allt árið. Fuglinn býr fyrst og fremst við sjáv­ar­síð­una, eins og hið enska nafn hans bendir til. Þetta er glæsi­legur fugl og til­komu­mik­ill og mun vera þjóð­ar­fugl Fær­ey­inga. Hvað nefn­ist hann á íslensku?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir karl­inn á mynd­inni hér að neðan (sá í miðj­unni)?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Doris Day. 

Vin­sæl­ustu lög Dorisar Day

2.  Ítalía.

3.  Martini.

4.  Guðni Th. Jóhann­es­son.

5.  Big Brother, Stóri bróðir.

6.  Fylgjast með þeim. Hér er átt við skáld­sög­una 1984.

7.  Ber­dreymi.

8.  Naut.

9.  Ermar­sund.

10.  Tjaldur.

Tvær ostru­veið­arar

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fisk­ur­inn er rán­fisk­ur­inn barracuda.

Karlinn er Torbjörn Egner, höf­undur Karíusar og Baktusar.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár