1086. spurningaþraut: Hvaða frönsku borg leysti Jóhanna af Örk úr umsátri?

1086. spurningaþraut: Hvaða frönsku borg leysti Jóhanna af Örk úr umsátri?

Fyrri auka­spurn­ing:

Söng­konan sem sést á mynd­inni hér að ofan leiddi eina nýbylgju­hljóm­sveitum níunda ára­tug­ar­ins. Hver er konan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í einni sin­fóníu Beethovens er mik­il­feng­legt kór­lag. Númer hvað er sú sin­fónía?

2.  Hvaða frönsku borg leysti Jóhanna af Örk úr umsátri?

3.  Hverjir höfðu setið um borg­ina?

4.  Árið 1975 kom út á Íslandi hljóm­plata sem varð mjög vin­sæl hér. Hún hét Sumar á Sýrlandi, en hvaða hljóm­sveit sendi hana frá sér?

5.  Árið 1977 kom hins vegar út erlendis hljóm­plata sem varð geysi­vin­sæl um ver­öld víða. Platan hét Rumours en hver var hljóm­sveitin? 

6.  Frá hvaða landi er mat­ar­hefðin súsjí?

7.  Hvað kall­ast nú forni týs­dagur?

8.  Söngkona ein er nú 77 ára en lætur lít­inn bil­bug á sér finna. Hún hét við fæð­ingu Angela Trimble en kallar sig ... hvað?

9.  Hvað hét hinn illa rekni sviss­neski banki sem lenti í miklum vand­ræðum um miðjan mars síð­ast­lið­inn?

10.  Mið­baugur liggur gegnum sjö Afr­íku­ríki. Nefnið sjö ríki og ef fjögur eru rétt, á fáiði stig. Ef sex eru rétt, þá fáiði lár­við­ar­stig. Ef ein­hver nær öllum sjö, þá fær sú eða sá hið lár­við­ar­stig með eik­ar­laufum!

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða dýr er þetta? Gætið þess að rasa hér ekki um ráð fram.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Níu.

2.  Orleans.

3.  Eng­lend­ingar. Bretar getur ekki talist rétt svar. Reyndar voru franskir banda­menn enskra einnig í hópi umsát­urs­manna, en stig fæst ekki nema nefna Eng­lend­inga.

4.  Stuðmenn.

5.  Fleetwood Mac.

6. Japan.

7.  Þriðju­dagur.

8.  Debbie Harry.

9.  Credit Suisse.

10.  Ríkin eru Sao Tome & Principe, Gabon, Lýð­veldið Kongó, Alþýðu­lýð­veldið Kongó (oft kallað Austur-Kongó), Úganda, Kenía og Sómalía. Sjá mynd­ina:

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Debbie Harry.

Á neðri mynd­inni er marð­ar­hundur, en þar sem hann kall­ast á ensku raccoon dog, þá gef ég líka fyrir þvotta­bjarn­ar­hund.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár