1085. spurningaþraut: Fyrir hvað stendur UFO?

1085. spurningaþraut: Fyrir hvað stendur UFO?

Fyrri auka­spurn­ing:

Þessi kona ætlar sér auk­inn hlut. Hvað heitir hún?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Á ferð með mömmu heitir kvik­mynd sem frum­sýnd var fyrir fáeinum vikum. Hver leikur mömmu í mynd­inni?

2.  Þegar karla­tíma­ritið Playboy hóf göngu sína prýddi kona nokkur for­síð­una. Hún var ekki nakin en í ansi flegnum kjól. Nakin var hún hins vegar inni í blað­inu. Hún hafði ekki setið fyrir fyrir tíma­ritið, heldur hafði útgef­and­inn keypt mynd­ina af ljós­mynd­ara sem tekið hafði mynd­ina nokkru áður. Hver var konan?

3.  Hvaða kött gerði Dr. Seuss frægan?

4.  Fyrir hvað stendur hin enska skamm­stöfun UFO?

5.  Baldvin Z er einn kunn­asti kvik­mynda­leik­stjóri Íslands um þessar mundir. Fyrir hvað stendur Z-an í nafni hans.

6.  Hver var fyrsti for­seti Banda­ríkj­anna sem ferð­að­ist til Evrópu meðan hann gegndi for­seta­emb­ætti?

7.  Skóla­hald í hinum núheit­andi Mennta­skóla í Reykja­vík hófst í nýju og glæsi­legu stór­hýsi við Lækj­ar­götu árið ... ja, hvaða ár var hið stóra hús MR tekið í notkun?

Gamli skól­inn, MR

Var það 1826 — 1846 — 1866 — eða 1886?

8.  Í hvaða borg er Brand­en­borgar-hliðið?

9.  Hver var íþrótta­grein Einars Vil­hjálms­sonar sem hann náði mjög góðum árangri í á heims­vísu 1985-1995?

10.  Hvað heitir stærsta borgin á Krím-skaga?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má sjá — í réttum stærðum — mann og fugl. Fuglinn er að vísu bara líkan, því menn útrýmdu honum fyrir rúmum 600 árum. Þetta var stærsti fugl sem menn hafa kom­ist í kynni við á sinni tíð á Jörðinni. Spurn­ingin er: Hvað nefnd­ist fugl­inn? Og svo er fugla­stig fyrir að vita hvaða menn útrýmdu honum?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Krist­björg Kjeld.

2.  Marilyn Monroe.

3.  Köttinn með hött­inn/hatt­inn.

4.  Unidentified flying object.

5.  Zophonías. Baldvin er Zophoníasson en nafnið eitt dugar.

6.  Wilson, 1918.

7.  1846.

8.  Berlín.

9.  Spjót­kast.

10.  Seva­stopol.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Nikki Haley for­seta­fram­bjóð­andi í Banda­ríkj­unum.

Á neðri mynd­inni er fugl­inn móa. Það voru Maóríar á Nýja Sjálandi sem útrýmdu honum.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár