Tvöfaldur dessert og hálf öld á Kjarvalsstöðum

Lista­listi 24. mars - 4. apríl í boði Hús&Hill­billy

Tvöfaldur dessert og hálf öld á Kjarvalsstöðum

Kviksjá: Íslensk myndlist á 20. öld

24.03 – 07.08.23
Kjar­vals­staðir

Verið vel­komin á opnun sýn­ing­ar­innar Kviksjá: Íslensk mynd­list á 20. öld í Lista­safni Reykja­víkur – Kjar­vals­stöðum, laug­ar­dag 25. mars kl. 15.00 í til­efni af því að 50 ár eru liðin frá vígslu Kjar­vals­staða. Sýningin veitir inn­sýn í íslenska mynd­list á 20. öld í gegnum þann hluta menn­ing­ar­arfs­ins sem varð­veittur er í Lista­safni Reykja­víkur.  Á sýn­ing­unni er að finna um tvö hund­ruð lista­verk úr saf­n­eign­inni og skipt­ist hún á milli Austur- og Vest­ur­sala á árinu 1973, þegar Kjar­vals­staðir voru vígðir. Um leið markar árið ákveðin straum­hvörf í lista­sög­unni hér á landi því þá eru að verða skil á milli línu­legrar fram­vindu módern­ism­ans og marg­sögu fram­úr­stefnu­tíma­bils­ins. 

Opið dag­lega 10.00–17.00


Cast of Mind

B. Ingrid Olson
20.01.23 - 20.12.23
i8 Grandi | Mars­hall­húsið

Cast of Mind er ný sýn­ing eftir banda­rísku lista­kon­una B. Ingrid Olson í  i8 Granda í Mars­hall­hús­inu. i8 Grandi stendur að mun lengri sýn­ingum en van­inn er hjá söfnum og gall­er­íum. Heils­árs­sýn­ing­arnar eru helg­aðar hug­myndum um tíma og rúm og upp­still­ingin mun þró­ast sem á líður á sýn­ing­una. Hið langa skeið sem heilt ár býður upp á leyfir lista­mönnum að íhuga hvernig tím­inn mótar verk þeirra og hvernig flæðið hvetur áhorf­endur til að heim­sækja aftur síbreyti­legar inn­setn­ingar.

Opn­un­ar­tímar mið­viku­daga - sunnu­daga: 12:00–18:00.


Birgir Andrésson & Lawrence Weiner

30.03.23 - 13.05.23
i8 gall­erí
Tryggva­gata 16, 101 Reykja­vík

Opn­un­ar­tímar þriðju­daga–laug­ar­daga: 12:00–17:00.


Declutter, myndlistarsýning

24.03 – 11.04.23
Epal Gallerí, Lauga­vegi 7

Mynd­list­ar­kon­urnar Auður Lóa Guðna­dóttir, Edda Mac, Helga Páley Frið­þjófs­dóttir og Sigrún Hlín Sig­urð­ar­dóttir leiða saman hesta sína í fyrsta  sinn og sýna teikn­ingar, mál­verk, skúlp­t­úra og textíl­verk þar sem þær fjalla um hitt og þetta. Þær hafa valsað um með augun opin, penn­ana á lofti og eitt og annað verið tínt til og raðað saman eftir kúnst­ar­innar reglum. Fyr­ir­bærum, hug­myndum og athöfnum safnað saman, lyft upp, dregið í svaðið, geymt og hent. Þegar þið komið getið þið fengið að sjá ýmis­legt kunn­ug­legt og kom­ist að því hvernig það hangir saman. 

Opnun 24. mars kl. 16.00 – 18.00, sýn­ingin stendur yfir til 11. apríl. Opið alla daga frá 10-18


Töfraheimilið, samsýning

18.03 – 22.04.23
Kling & Bang, Marshall hús­inu

Töfra­heim­ilið er sam­sýn­ing íslenskra og alþjóð­legra lista­kvenna, þeirra Helenu Mar­grétar Jóns­dóttur, Lidija Ristic, Ragn­heiðar Kára­dóttur og Virginu L. Montgomery. Á sýn­ing­unni er búið til annað rými innan sýn­ing­ar­rým­is­ins, Töfra­heim­ilið. Á því heim­ili er ekki allt sem sýn­ist. And­rúms­loft sem leit­ast er eftir að skapa ein­kenn­ist af dulúð, draum­kennd og töfraraun­sæi. Verkin eru súr­r­eal­ísk, ýmist of stór eða of smá og absúrd. Lista­menn­irnir vinna með yfir­nátt­úru­lega töfra hvers­dags­ins. Gjörið svo vel og gangið í bæinn! 

Kling & Bang er opið mið-sun kl. 12-18. Aðgangur er ókeypis.


FRED, einkasýning

25.03 – 01.04.23 
Opnun 24.03 kl. 16.00 – 19.00 
Kubbur­inn, Lista­há­skóli Íslands, Laug­ar­nes­vegur 91, 2.hæð

Deepa R. Iyengar heldur einka­sýn­ingu, sem hluti af útskrift af MA braut í mynd­list, í Kubbnum í LHÍ Laug­ar­nesi. Hún skoðar hvernig mætti breyta sam­bandi mann­eskju og til­rauna­dýrs, sér­stakrar teg­undar rottu sem þróuð var ein­ungis í þágu mann­kyns. Þetta er upp­haf­s­punktur könn­unar hennar á því hvernig hægt er að mæta aðkallandi þörf fyrir umbreyt­ingu á sam­bandi mann­eskju við aðra hluta vist­kerf­is­ins, til að tryggja afkomu til fram­tíðar. Deepa skapar eða kannar rými til að upp­götva hvað vantar, hvað er ósýni­legt eða óraun­gert. Hún kannar þemu valds, stýr­ingar og frels­unar, undir hinu vak­andi auga eða innan lík­am­ans sem bregst við.

Opið: 25.mars - 1. apríl kl. 11.00 – 17.00, og 2. – 8. apríl eftir sam­komu­lagi. deepa21@lhi.is


AÐ HLJÓÐI // Hömlulaus veggur

24.03 –26.03 2023
Lifandi flutn­ingur við lokun, 
sunnu­dag­inn 26.03
Nýlista­safnið, Mars­hall­húsið

Um er að ræða athöfn, þátt­töku­verk og heim­ilda­safn þar sem teikn­ingar um hljóð, sjón­rænar hljóð­skrár eftir tón­skáld eru hengdar og skoð­aðar í sam­hengi hver við aðra. Upp­hengið er þátt­töku­við­burður þann 23. og við lok verk­efn­is­ins verður lif­andi flutn­ingur nokk­urra verka, þann 26.mars. Verk­efn­inu er stýrt af Ruth Wiesenfeld tón­skáldi og Gunn­hildi Hauks­dóttur mynd­list­ar­konu. Að hljóði safnar mynd­birt­ingu skap­andi vinnu um hljóð og aftengir hug­myndum um höf­und­ar­verk og afurð. Vitn­is­burður um list­ræna hugsun myndar hér útlínur fag­ur­fræði­legra athafna, bæði með­vit­aðra og ómeð­vit­aðra. Vegg­ur­inn stendur í Limbó í Nýlista­safn­inu til 26. mars. 

Opið mið til sun 12.00 – 18.00.


sam(t)vinna, samsýning

01.04 – 21.04.23
Korp­úlfs­staðir 
Opnun 1. apríl 14.00 – 16.00

Textíl­fé­lagið heldur sam­sýn­ingu þar sem sam­tal og sam­vinna með­lima er sett í for­grunn. Ferli var sett af stað þar sem þátt­tak­endum var boðið að mynda pör og vinna að því að finna sam­eig­in­legan flöt í list­sköpun sinni. Afrakst­ur­inn er marg­vís­legur; aðferðir, efn­is­tök og sjón­ar­horn hljóta hér ýmist end­ur­nýjun eða end­ur­skoðun, ný verk líta dags­ins ljós og eldri verk birt­ast í nýju sam­hengi.

Opn­un­ar­tímar og frek­ari upp­lýs­ingar á tex.is.


Ljósrofi

01.04 – 22.05.23
Ásmund­ar­salur, Freyju­gata 41
Opnun 1. apríl kl. 15.00 – 17.00

Emma Heið­ars­dóttir (f. 1990) vinnur út frá breyti­legum mörkum skúlp­t­úrs og arki­tekt­úrs, listar og lífs. Verkin byggja gjarnan á inn­gripi í þau rými eða umgjörð sem hún sýnir í hverju sinni og snúa upp á við­tekna sýn okkar á umhverfið. Á sýn­ing­unni Ljósrofi kemur fram við­leitni til að skoða rými út frá tak­mark­andi og hlut­lægum eig­in­leikum þess, sem mynda umgjörð fyrir lík­am­lega og hug­læga upp­lifun. Áhorf­endur virkja sum verk­anna með lík­ömum sínum og tak­mörk í rými leiða ef til vill hug­ann að öðrum tak­mörkum.

Sýningin er opin alla virka daga frá kl 08:30-17.00 og kl 10.00-17.00 um helgar.


Sneak peak, opin vinnustofa í Gryfju

15.03 – 02.04.23
Ásmund­ar­salur, Freyju­götu 41

Sneak peak er opin vinnu­stofa í Gryfju þar sem lista­konan Melanie Ubaldo (f.1992, Fil­ipps­eyjum) vinnur að einka­sýn­ingu sinni sem opnar í Ásmund­ar­sal 13. maí. Melanie útskrif­að­ist með meistara­gráðu í mynd­list frá Lista­há­skóla Íslands árið 2022. Hún hlaut styrk úr styrkt­ar­sjóði Svavars Guðna­sonar og Ástu Eiríks­dóttur árið 2021. Melanie er ein af stofn­endum list­hóps­ins Lucky 3, en hóp­ur­inn sam­anstendur af lista­mönnum af fil­ip­p­eyskum upp­runa á Íslandi. Lucky 3 hlaut hvatn­ing­ar­verð­laun mynd­list­ar­ráðs árið 2022. 

Húsið er opið alla virka daga frá kl 08:30-17.00 og kl 10.00-17.00 um helgar.


Fyrirbærafræði, myndlistarsýning

30.03 – 30.04.23
Fyr­ir­bæri (Phen­omenon), Ægisgötu 7

Brynjar Helgason opnar mynd­list­ar­sýn­ingu í Fyr­ir­bæri. Ágrip úr sýn­ing­ar­skrá: „… Í eigin heimi sem aftur á móti gerir ráð fyrir osmósu við ein­hvern full­kom­lega ókunn­ugan sem með hug­veru­leika sínum myndi ljá upp­lifun­inni væ(n)gi í tengslum við sögu og sam­fé­lag, sér­tæk sum þau kunna að vera… Þetta felur á end­anum í sér visst nota­gildi veg­ferð­ar­innar sem mæli­kvarði á fag­ur­fræði­legt gildi afstætt öllum mögu­legum hlutum og hlut­eig­andi gjörðum vorum.“ 

Sýningin er opin til 30. apríl. Opið laug­ar­daga og sunnu­daga frá 18.00 – 20.00 og/eða 12.00 – 14.00 (eftir sam­komu­lagi).


Sjalaseiður – sýning

06.04 – 06.05.23
Safna­húsið Ísafirði (Gamla sjúkra­húsið)

Bergrós Kjart­ans­dóttir; Umbreyt­ing úr texta í textíl - Átján sjöl úr álf­heimum og sög­urnar um þau. Út kom bókin Sjala­seiður sl. haust. Í bók­inni eru list­rænar myndir af átján sjölum úti í nátt­úr­unni, upp­skriftir af þeim, sögur og ljóð. Bókin er óður til nor­rænu goða­fræð­innar og íslenskrar nátt­úru. Sjölin eru úr íslenskri ull og hvert sjal ber með sér forna sögu sem segir frá hvaðan hug­myndin að hönnun sjals­ins kemur. Hvert sjal segir sína sögu, textíll og texti verða að Sjala­seið.

Opn­un­ar­tímar: mán – fös 12.00 – 18.00, lau 13.00 – 16.00.


Kerfi

11.03 – 22.04.23
BERG Contemporary, Smiðju­stígur 10 / Klapp­ar­stígur 16, 101 Rvk.

Kerfi er tit­ill sýn­ingar Heklu Daggar Jóns­dóttur sem nú stendur yfir í BERG Contemporary. Sýningin sam­anstendur af inn­setn­ingu þar sem Hekla fæst við lita­kerfin CMYK sem er frá­drægt lita­kerfi, og RGB sem er við­lægt lita­kerfi. Hún klæðir gall­er­íið að innan með gouache verkum á bómull­ar­pappír sem hún vann með mar­mor­ing-tækni, auk þess sem finna má texta-og vid­eo­verk á sýn­ing­unni. Í sýn­ing­ar­texta Krist­ínar Ómars­dóttur segir enn­fremur: „Hekla Dögg klæðir sýn­ing­ar­sali lokkum úr litum sem dansa eftir far­vegi handan heim­il­is­fangs.“

Verið vel­komin. Sýningin er opin þriðju­daga til föstu­daga frá 11-17 og laug­ar­daga frá 13-17.


Yfirborð/Surface og Tvöfaldur dessert

25.03.-20.04.2023
Gallery Port, Lauga­vegur 32

Laug­ar­dag­inn 25. mars opnar lista­fólkið Halldór Sturlu­son og Berglind Erna Tryggva­dóttir tvær aðskildar sýn­ingar í Gallery Port. Halldór sýnir lita­stúd­íur sínar úr mis­litum pappír sem rað­ast upp á ólíkan hátt í þétt­press­aða bunka, minna á jarð­lög eða marglaga ævi­skeið. Berglind Erna sækir í hvers­dags­leik­ann í teikn­ingum sínum af því sem alltaf innan sjón­s­viðs­ins og seil­ingar. Mynd­irnar gætu staðið í Orðabók hvers­dags­ins því allir munu kann­ast við eitt­hvað úr sínum.

Opið þriðju­dag til laug­ar­dags milli 12-17.


Svikull silfurljómi

01.04 – 23.04.23
Sam­komu­húsið í Súðavík

Una Björg Magn­ús­dóttir er fjórði lista­mað­ur­inn sem velst til þátt­töku í sýn­inga­röð Lista­safns ASÍ þar sem skipu­lagðar eru einka­sýn­ingar val­inna lista­manna á tveimur stöðum á land­inu. Una Björg beitir ýmsum brögðum í verkum sínum til að velta upp spurn­ingum um feg­urð, gildi, til­vist okkar, hegðun og hátt­erni. Hún notar til þess áferð og gild­is­hlaðin efni á slung­inn en spar­legan hátt. 

Sýningin er opin dag­lega kl. 14.00 – 17.00 og eftir sam­komu­lagi.


Ásætur

01.04 – 10.04.23 
Opnun í Grasa­garð­inum 1. apríl kl 17.
Grasa­garð­ur­inn

Sýningin Ásætur er sam­starf meist­ara­nema í mynd­list​ við Lista­há­skóla Íslands og meist­ara­nema í sýn­ing­ar­gerð við Lista­há­skóla Íslands og Háskóla Íslands. Ellefu mynd­list­ar­menn sýna verk sín og ljóst er að þar kennir ýmissa grasa. Marg­slungið sam­spil manna, dýra og plöntu­líf­ríkis verður þar í aðal­hlut­verki. Ólíkar teg­undir plantna, dýra og manna mæt­ast í Grasa­garð­inum. Lista­verkin birt­ast að vori en eru fjar­lægð áður en þau ná að festa sig í sessi. Þau haga sér eins ásætur sem ætla ekki að trufla hringrás þeirra líf­vera sem finn­ast þar í kring. Líkt og mosi á steini, skóf á berki eða sýkla­skán á botni gull­fiskatjarnar.


Beðið eftir dansi

01.04-22.04.23
Setu­stofan- Ásmund­ar­sal, Freyju­götu 41

Hljóð­verkið Beðið eftir dansi eftir Yelenu Arakelow bíður áhorf­endum upp á að njóta nánd­ar­innar sem fylgir því að bíða. Hvað upp­lifir þú í bið­stöðu? Getum við upp­lifað sam­eig­in­lega löngun til breyt­inga, ef við bíðum saman? Að leyfa tím­anum að líða með end­ur­tekn­ingum og tóma­rúmi eykur eft­ir­vænt­ing­una á að eitt­hvað ger­ist. Kannski er þetta eitt­hvað sem við vitum ekki enn(...)

Tón­listin er unnin af dans­höf­und­inum Yelenu Arakelow og er byggð á sjón­rænu skori og vett­vangs­upp­tökum sem teknar voru á iPho­neinn hennar á bið­stundum í Reykja­vík, Vest­manna­eyjum (Íslandi), Riga og Vangaži (Lett­landi). Húsið er opin alla virka daga frá kl 08:30-17.00 og kl 10.00-17.00 um helgar. 


Endurkast

1.4.23. - 25.4.23.
Setu­stofan- Ásmund­ar­sal, Freyju­götu 41

Sýningin End­ur­kast eftir Helgu Sif Guð­munds­dóttur opnar í Setu­stof­unni 1. apríl. Ljós, hvort sem það er nátt­úru­legt eða mann­gert spilar lyk­il­hlut­verk í því að móta og fram­kalla hug­hrif. Flest eiga verkin á sýn­ing­unni það sam­eig­in­legt að vera ljós­næm. 

Efnin sem verkin eru unnin í eru fjölda­fram­leidd í verk­smiðjum og er helst að finna í bygg­inga­vöru­versl­unum. Við það að hand­leika þau út frá eðli þeirra og nátt­uru­legri feg­urð eru þau tekin úr sam­heng­inu sem þeim var ætlað að vera í og verður upp­runi þeirra og til­gangur óljós. Í sýn­ing­unni vinnur Helga Sif með hug­mynd­ina um stétta­skipt­ingu í efn­isvali út frá fyr­ir­fram­gefnum hug­myndum og gildum um fag­ur­fræði. Sýningin er opin alla virka daga frá kl 08:30-17.00 og kl 10.00-17.00 um helgar.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Listalistinn

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár