Haraldur verður bæjarstjóri á Akranesi

Haraldur Bene­dikts­son hefur verið ráð­inn bæj­ar­stjóri Akra­nes­kaup­staðar. Teitur Björn Ein­ars­son mun taka sæti hans á Alþingi þegar Haraldur víkur.

Haraldur verður bæjarstjóri á Akranesi
Hættir á þingi Haraldur Bene­dikts­son hefur setið á þingi síð­ustu tíu ár. Mynd: xd.is

Haraldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur verið ráð­inn bæj­ar­stjóri Akra­nes­kaup­staðar.

Haraldur var fyrst kjör­inn á þing í alþing­is­kosn­ing­unum árið 2013. Þar áður var Haraldur for­maður Bænda­sam­taka Íslands, á ára­bil­inu 2004 til 2013. Haraldur hefur þá jafn­framt rekið bú á Vestri-Reyn, skammt utan Akraness, frá árinu 1995 með konu sinni, Lilju Guðrúnu Eyþórs­dóttur, en þau tóku við búi af for­eldrum Haraldar.

Í til­kynn­ingu á vef Akra­nes­kaup­staðar er haft eftir Valgarði Lyngdal Jónssyni, for­seta bæj­ar­stjórnar Akraness, að algjör ein­hugur hafi ríkt í bæj­ar­stjórn um ráðn­ingu Haraldar. „Haraldur hefur þekk­ingu og reynslu sem við bæj­ar­full­trúar erum full­viss um að muni nýt­ast vel í starfi bæj­ar­stjóra, Akra­nes­kaup­stað og sam­fé­lag­inu hér á Akranesi til heilla.“

Í sömu til­kynn­ingu er haft eftir Haraldi sjálfum að hann telji Akranes vera eitt merst spenn­andi sveit­ar­fé­lag lands­ins og að það sé heiður að vera trúað fyrir starf­inu. Haraldur svar­aði ekki í síma þegar Heim­ildin reyndi að ná tali af honum. Haraldur tekur við starf­inu af Sævari Frey Þrá­ins­syni sem ráð­inn var for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur.

Þegar Haraldur lætur af þing­mennsku sinni mun Teitur Björn Einarson taka sæti hans. Teitur sat á þingi á árunum 2016 til 2017 en hefur verið vara­þing­maður frá árinu 2017. Hann er sonur Einars Odds Krist­jáns­sonar fyrr­ver­andi alþing­is­manns.

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JBB
    Jens Benedikt Baldursson skrifaði
    Sæl. Forseti bæjarstjórnar er Valgarður Lyngdal Jónsson. https://www.akranes.is/stjornsysla/stjornkerfi/baejarstjorn-akraness
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár