1074. spurningaþraut: Eins og hvað ... og eins og hvað líka?

1074. spurningaþraut: Eins og hvað ... og eins og hvað líka?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða steinar eru þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Gríð­ar­lega fræg söng­kona fædd­ist vestur í Banda­ríkj­unum árið 1958 og fyrsta plata hennar, sem kom út 1983, hét eftir henni sjálfri. Hvað hét platan þar af leið­andi? 

2.  Tvær af fyrstu plötum hennar heita nöfnum sem byrja á Like a ... Eins og hvað? Hvað heita þessar plötur báðar tvær?

3.  Hvað er stærsta ríkið þar sem metra­kerfið hefur enn ekki verið tekið upp að fullu?

4.  Nokkurn veg­inn hversu margir búa á Græn­landi? Eru það 36.000 — 56.000 — 76.000 — eða 96.000?

5.  Hvaða ráð­herra sagði síð­ast af sér á Íslandi vegna gagn­rýni sem ráð­herr­ann hafði orðið fyrir?

6.  Hver tók við af Móse sem leið­togi Ísra­els­manna í frá­sögn Bibl­í­unnar?

7.  Guð­mundur Gunn­ars­son, faðir Bjarkar tón­list­ar­konu, var lengi verka­lýðs­for­ingi fyrir ... hverja?

8.  Á árunum 1994-1998 var Guð­mundur vara­borg­ar­full­trúi í Reykavík. Fyrir hvaða flokk?

9.  Fyr­ir­tækið Omnom var stofnað á Íslandi 2013 af tveimur mönnum og hefur vakið athygli, einnig erlendis, fyrir vand­aða fram­leiðslu á ... hverju?

10.  Skírn­ar­nafnið Boris er nú fyrst og fremst notað meðal slav­neskra þjóða, þótt það þekk­ist víðar, sam­an­ber alkunnan for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Sann­leik­ur­inn er þó sá að Boris er ekki af slav­neskum upp­runa, heldur ... heldur hvað?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Með hvaða hljóm­sveit söng þessi kona? — og gerir jafn­vel enn við hátíð­leg tæki­færi.

***

1. Madonna.

2.  Like a Virgin & Like a Prayer

3. Banda­ríkin.

4. 56.000.

5. Sigríður Andersen.

6. Jósúa.

7. Raf­iðn­að­ar­menn.

8. Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

9. Súkkulaði.

10.  Boris er komið af tyrk­neskri rót. Það dugar að minnsta kosti í þessu til­felli. Málið er þó flókn­ara. Nafnið er sem sé komið úr hinni fornu búl­gör­sku — sem var ekki slav­neskt mál og alveg óskyld því tungu­máli sem við köllum nú búl­gör­sku. Hin gamla búlgarska var af tyrk­neskum upp­runa, og því gef ég rétt fyrir tyrk­neska rót, sem og tat­arska — þótt þar séum við komin á ögn hálli ís. Það er hins vegar EKKI rétt að nefna mongólsk mál til sög­unnar. En ef ein­hver er svo fróður að nefna sér­stak­lega hina fyrr­nefndu fornu frum-búl­gör­sku, þá fæst sér­stakt mál­vís­inda­stig fyrir það!

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er rúbínar

Konan á neðri mynd­inni er hún Frida í ABBA.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár