1073. spurningaþraut: Hvað eru margir hólmar í Tjörninni?

1073. spurningaþraut: Hvað eru margir hólmar í Tjörninni?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir íslenska fjöl­miðla­konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hversu margir hólmar eru í stóru Tjörn­inni í Reykja­vík?

2.  The Tra­vell­ing Wilburys var svo­nefnd „súpergrúppa“ sem starf­aði 1988-1990 og gaf út tvær hljóm­plötur. Meðlimir hljóm­sveit­ar­innar voru upp­haf­lega fimm og allir víðkunnir af fyrri störfum sínum við popp og rokk. Til að fá stig dugar að nefna tvo með­limi en þeir sem þekkja alla fimm fá lár­við­ar­stig!

3.  Eins og hálfs kíló­metra löng brú í borg einni heitir opin­ber­lega frá 2016 Brú písl­ar­vott­anna 15. júlí. Brúin er hins vegar mun eldri og er víst yfir­leitt kölluð Fyrsta brúin af heima­mönnum. Hún var líka fyrsta brúin sem tengdi saman heims­álfur. Í eða við hvaða borg er Fyrsta brúin?

4.  Hvað hét sá breski karl sem leiddi Verka­manna­flokk­inn til sig­urs í þrennum kosn­ingum í röð — en það hefur eng­inn annar gert?

5.  Hvar eru aðal­stöðvar Íslenskrar erfða­grein­ingar?

6. Japurá, Juruá, Madeira, Negro, Purus og Xingu eru þverár, sem falla í hvaða stór­fljót?

7.  Hvaða fót­bolta­fé­lag í fremstu röð á Englandi spilar í rönd­óttum svörtum og hvítum bún­ingum?

8.  En hvaða fót­bota­fé­lag á Íslandi spilar einnig í þannig bún­ingum?

9.  Karl að nafni Little fædd­ist í Banda­ríkj­unum 1925, leidd­ist ungur út í glæpi en gerð­ist síðan aktífisti mik­ill, til að byrja með á vegum sam­taka sem þá létu að sér kveða. Seinna fjar­lægð­ist hann mjög þau sam­tök. Er hann gerð­ist bar­áttu­maður lagði hann á hill­una nafnið Little. Í stað­inn varð hann víð­kunnur undir öðru síð­ara nafni, mjög stuttu. Hvað kall­aði hann sig?

10.  Ekki fór betur en svo að hann var myrtur 39 ára gam­all og það af mönnum sem til­heyrðu sam­tök­unum sem hann hafði áður barist með. Hvað nefnd­ust þau sam­tök?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér má sjá eyju eina mjög afskekkta sem margir hafa heyrt nefnda en lík­lega fremur fáir komið til, enda fjar­læg Íslandi. Þó er eft­ir­sótt að kom­ast þangað. Hvað heitir eyjan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Tveir.

2.  Bob Dylan, George Harrison, Jeff Lynne, Roy Orbison og Tom Petty.

3.  Istanbúl.

4.  Tony Blair.

5.  Í Vatns­mýr­inni í Reykja­vík. Ekki dugar að nefna Reykja­vík.

6.  Amason.

7.  Newcastle.

8.  KR.

9.  Malcolm X.

10.  Nation of Islam.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Lóa Pind.

Á neðri mynd­inni er Páska­eyja eða Rapa Nui.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár