1075. spurningaþraut: James Bond og Alexander mikli koma báðir við sögu!

1075. spurningaþraut: James Bond og Alexander mikli koma báðir við sögu!

Fyrri auka­spurn­ing:

Útlínur hvaða lands má sjá hér fyrir ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Drykkur einn, sem hingað til hefur sjaldan verið tal­inn frá­sagn­ar­verður nema helst á leik­skólum, hefur á und­an­förnum árum kom­ist nokkuð í sviðs­ljósið sem þunga­miðja við eins­konar and­legar athafnir. Hvaða drykkur er það?

2.  Hvaða spen­dýr gengur lengst með afkvæmi sín?.

3.  Ef flogið er í beinni loft­línu frá Reykja­vík til Akur­eyrar, Egils­staða, Hafnar í Horna­firði og Ísa­fjarðar, hvaða leið er þá lengst?

4.  En hver er næst­lengst?

5.  Hver er útkoman ef maður leggur saman punkt­ana á and­stæðum hliðum ten­ings?

6.  Hver er eini Banda­ríkja­for­set­inn sem fæðst hefur á Havaí-eyjum?

7.  James Bond-kvik­mynd­irnar tengj­ast fjöl­skyldu einni sem hefur í langan tíma staðið fram­ar­lega að fram­leiðslu þeirra. Fjöl­skyldan ber sama nafn og græn­metis­teg­und ein. Hvað heitir fjöl­skyldan?

8.  Alex­ander mikli var upp­haf­lega kon­ungur í ... hvaða landi?

9.  Hvaða lög­reglu­maður bjó lengi — að sögn — í bænum Ystad og leysti þar erfið saka­mál?

10.  Í hvaða landi er ann­ars bær­inn Ystad?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða ár var þessi fræga ljós­mynd tekin? 

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kakó.

2.  Fílar.

3.  Til Egils­staða.

4.  Til Hafnar.

5.  Sjö.

6.  Obama.

7.  Broccoli.

8.  Makedóníu.

9.  Wallander.

10.  Svíþjóð.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru útlínur Argent­ínu.

Neðri myndin var tekin við Torg hins himneska friðar árið 1989.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár