1076. spurningaþraut: Eitt hús? Hvar er eitt hús?

1076. spurningaþraut: Eitt hús? Hvar er eitt hús?

Fyrri auka­spurn­ing:

Þessi ill­skeytta skvísa hefur birst í nokkrum bíó­myndum sem saman kall­ast ... hvað? Og svo er eitt fislétt bíó­stig fyrir að muna hvað per­sónan heitir!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Yfir hvaða borg í Brasilíu gnæfir risa­vaxin Krists­stytta?

2.  Fæðu­teg­und ein heitir á lat­ínu caseus. Hvað nefn­ist hún á íslensku?

3.   Hún fædd­ist í Banda­ríkj­unum en flutti til Íslands og hóf söng­feril sinn, meðal ann­ars í hljóm­sveit­inni Tivolí sem hún stofn­aði ásamt öðrum. Hún söng bæði með hljóm­sveit­unum Manna­korn og Ljósunum í bænum, síðar með Borg­ar­dætrum, en einnig mikið sóló, einkum hin seinni ár, og tölu­vert með bróður sínum, sem einnig er tón­list­ar­maður. Og hún heitir ... hvað?

4.  Hálfur fimmti tugur karl­manna hefur gegnt emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna. Í list­anum yfir for­set­ana koma fimm nöfn fyrir tví­vegis. Í fjórum til­fellum eru við­kom­andi for­setar skyldir en í einu til­felli ekki. Fyrsta til­fellið snýst um feðga sem voru for­setar í upp­hafi 19. aldar. Hvað var eft­ir­nafn þeirra?

5.  En hver voru hin fjögur eft­ir­nöfnin sem fleiri en einn for­seti hafa borið? Hér dugar að nefna þrjú til að fá stig!

6.  Borg ein var stofnuð 1606 og þar búa nú tæp­lega 70.000 manns. Borgin heitir Vaasa en í hvaða landi er hún?

7.  Fræg íslensk söng­kona var skírð í höf­uðið á óbyggðri eyju. Hún varð svo reyndar kunn undir gælu­nafni sínu. Hver var eyjan?

8.  Hvað er þús­und vatna landið?

9.  Erik ten Hag er fót­bolta­þjálf­ari sem hefur hleypt nýju lífi í stór­veldið forn­fræga, Manchester United. Hverrar þjóðar er Ten Hag?

10.  Nafn á ríki einu í Evrópu er dregið af gríska hug­tak­inu yfir „eitt hús“. Hvaða ríki er það? Ég hvet ykkur til að hugsa málið. Þetta er ekki eins erfitt og það virkar kannski í fyrstu.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi rit­höf­undur hefur skrifað bæði fyrir full­orðna en þó meira fyrir börn og ungt fólk. Og hún heitir ... hvað?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Rio de Janeiro.

2.  Ostur.

3.  Ellen Krist­jáns­dóttir.

4.  Adams.

5.  Harrison, Johnson, Roosevelt og Bush.

6.  Finn­landi.

7.  Eldey. Þetta var Ellý Vil­hjálms.

8.  Finnland.

9.  Hol­lenskur.

10.  Monaco. Gríska orðið er μόνοικος, sam­sett úr μόνος (monos) sem þýðir „einn“ eða „eitt“ og οἶκος (oikos) sem þýðir „hús“. Nafnið er dregið af því að eitt sinn í fyrnd­inni var aðeins eitt hús á klett­inum sem ríkið mynd­að­ist um, þ.e.a.s. hof til dýrðar Heraklesi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er hún Trinity úr Matrix-mynd­unum.

Höf­und­ur­inn á neðri mynd­inni er Hildur Knúts­dóttir.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár