1077. spurningaþraut: Nefnið þrjá Túdora

1077. spurningaþraut: Nefnið þrjá Túdora

Auka­spurn­ingar:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í febr­úar sett­ist Viðar Egg­erts­son leik­ari og leik­stjóri á þing sem vara­maður. Útlit var fyrir að hann myndi sitja fram í maí. Fyrir hvaða flokk?

2.  Í hvaða trú­ar­brögðum er mest lagt upp úr nír­vana?

3.  Í hvaða borg í Banda­ríkj­unum var hljóm­sveitin Nírvana upp­runnin?

4.  Í hvaða ríki Evrópu var Túdor-ættin við stjórn­völin á sínum tíma?

5.  Reyndar voru ekki nema fimm þjóð­höfð­ingjar af Tudor-ætt í við­kom­andi ríki. Nefnið þrjá þeirra!

6.  Granda­vegur 7 og Z Ást­ar­saga voru skáld­sögur sem komu út á Íslandi á síð­asta ára­tug 20. aldar. Hver skrif­aði þær?

7.  En hver skrif­aði bók­ina Umhverfis jörð­ina á 80 dögum?

8.  Í hvaða borg er Uffizi-lista­safnið?

9.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Gabon?

10.  Okhrana var fræg og raunar alræmd leyni­þjón­usta sem starf­aði í ríki einu frá 1881 en lét sér­stak­lega að sér kveða á annan ára­tug eftir alda­mótin 1900. En í hvaða ríki starf­aði Okhrana?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvers vegna er þessi flug­vél fræg? — Svo er lár­við­ar­stig fyrir að geta nefnt flug­vél­ar­teg­und­ina nákvæm­lega.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sam­fylk­ing­una.

2.  Búddisma. Í hindúisma og fleiri ind­verskætt­uðum trú­ar­brögðum er hug­myndin um nír­vana vissu­lega á kreiki en rann­sóknir spurn­inga­höf­undar í trú­ar­bragða­fræði hafa fært honum heim sann­inn um að „mest“ sé sann­ar­lega lagt upp úr fyr­ir­brigð­inu í búdd­isma.

3.  Seattle.

4.  Englandi. — Bretland er ekki rétt.

5.  Túdor-arnir voru Hinrik 7., Hinrik 8., Ját­varður 6., María 1. (Blóð-María) og Elísabet 1. Aðeins þarf sem sé að nefna þrjá til að fá stig. Óþarfi er að muna númer Ját­varðar.

6.  Vigdís Gríms­dóttir.

7.  Jules Verne.

8.  Flórens.

9.  Afríku.

10.  Rúss­landi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Meryl Streep.

Flug­vélin á neðri mynd­inni er fyrsta brúk­lega her­þotan sem smíðuð var í heim­inum. Hún var af gerð­inni Messerschmitt 262.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár