1078. spurningaþraut: Hvar kemur Hildigunnur við sögu?

1078. spurningaþraut: Hvar kemur Hildigunnur við sögu?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er þessi ungi og hressi­legi strákur hér lengst til hægri?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða borg ger­ast banda­rísku gam­an­þætt­irnir Seinfeld?

2.  Ástráður Har­alds­son var sér­stakur rík­is­sátta­semj­ari í málum Eflingar og SA. Ástráður hefur feng­ist við sitt af hverju um ævina, eins og gengur, en hann hafði verið heil­mikið í sviðs­ljós­inu fyrir nokkrum árum. Þá átti hann í mála­ferlum vegna ... hvers?

3.  Hver lék Dirty Harry?

4.  Hvaða sund­kona var útnefnd íþrótta­maður árs­ins 1991, fyrst kvenna í langan tíma?

5.  Við hvað fæst kona sem fædd­ist 1969 og heitir Gwen Stefani?

6.  Árið 1989 var frum­sýnd kvik­myndin Magnús og náði heil­miklum vin­sældum á Íslandi. Hver leik­stýrði henni?

7.  Ein per­sóna mynd­ar­innar Magnús ástundar sér­staka teg­undar tón­listar, sem þar var kynnt einna fyrst fyrir Íslend­ingum. Hvers konar músík var það?

8.  Hversu miklum hraða geta hin vold­ugu tígris­dýr náð á sprett­inum? Eru það 15 kíló­metrar á klukku­stund — 30 km/klst — 45 km/klst — eða 60 km/klst?

9.  Hver var kunn­asti starfs­maður einka­leyfa­skrif­stofu í Bern í Sviss á árunum 1902-1909?

10.  Í Íslend­inga­sögu einni segir frá Hildig­unni Stark­að­ar­dóttur. Eig­in­maður hennar er drep­inn og hún hvetur frænda sinn til að halda til hefnda. Hann fellst á það og verða afleið­ing­arnar lang­vinnar. Í hvaða sögu segir frá Hildig­unni?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi mús?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  New York.

2.  Dóms­mála­ráð­herra svipti hann í raun stöðu dóm­ara við Lands­rétt sem hann hafði fengið. Nóg er að nefna dóm­ara­stöðu og Lands­rétt til  fá stig!

3.  Clint Eastwood.

4.  Ragn­heiður Run­ólfs­dóttir.

5.  Söngkona.

6.  Þráinn Ber­tels­son.

7.  Rapp.

8.  60 km/klst.

9.  Albert Einstein.

10.  Njálu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Ungi pilt­ur­inn lengst til hægri á efri mynd var Usama bin Laden.

Músin á neðri mynd er Jenni eða Jerry.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár