1079. spurningaþraut: Hvar er Ísland að stærð í röð Evrópulanda?

1079. spurningaþraut: Hvar er Ísland að stærð í röð Evrópulanda?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Sjálf­stæð Evr­ópu­ríki telj­ast vera 50 tals­ins. Fáein þeirra telj­ast bæði til Evrópu og ann­arrar heims­álfu land­fræði­lega og/eða stjórn­skip­un­ar­lega, en ef ein­göngu er miðað við land­fræði­legan Evr­ópu­hlut­ann, hvar er Ísland þá í röð Evr­ópu­ríkja eftir flat­ar­máli? Er Ísland 7. stærsta ríki Evrópu — 17da — 27da — 37da — eða 47da?

2.  Í hvaða bæj­ar­fé­lagi á Íslandi er Hóla­valla­kirkju­garður?

3.  Sú var tíð að flest dag­blöð héldu úti stjörnu­spám, en nú mun vefritið Vísir.is eitt eftir fjöl­miðla til þess. Sesselja Sig­ríður Ævars­dótt­ir heitir í þjóð­skrá sú dug­mikla kona sem hefur úti stjörnu­spánni þar. En hvað kallar hún sig?

4.  Sú var líka tíð á 20. öld að flest dag­blöð á Íslandi voru gefin út í nánum tengslum við helstu stjórn­mála­flokk­ana. Hvað nefn­ist blaðið sem var lengst af mál­gagn Fram­sókn­ar­flokks­ins?

5.   Hvaða ár lýstu breskar nýlendur í Norður-Ameríku yfir sjálf­stæði?

6.  Macropus er lat­neskt fræði­heiti sem notað er um nokkrar dýra­teg­undir sem búa ein­göngu á einu afmörk­uðu svæði heims­ins. Macropus þýðir í raun „stór­fótur“ og á það vissu­lega prýði­lega við þekkt­ustu teg­und­irnar, sem við þekkjum sem ... hvað?

7.  Sér­stakur borði sem er undið upp á þannig að hann hefur í raun­inni aðeins eina hlið, hvað nefn­ist hann?

8.  Í hvaða landi er borgin Tangier?

9.  Hvaða flytj­andi varð í öðru sæti í und­ankeppni Eurovision hér á landi?

10.  Fyrir skömmu var spurt hér um hvaða virkjun hér á landi fram­leiddi mesta orku og reynd­ist það vera Kára­hnjúka­virkjun. En hver er í öðru sæti?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn á mynd­inni?

***

Svör við aða­spurn­ingum:

1.  Ísland er 17da.

2.  Í Reykja­vík.

3.  Sigga Kling. Hún mun vera hætt að not­ast við nafnið Klin­gen­berg en þar sem hún var lengi þekkt undir því nafni fæst stig fyrir það líka.

4.  Tíminn.

5.  1776.

6.  Kengúrur.

7.  Möbius-borði.

Nei sko, þetta er Möbius-borði!

8.  Marokkó.

9.  Langi Seli og skugg­arnir.

10.  Hell­is­heið­ar­virkjun. Athugið að við gerð þess­arar spurn­ingar, eða öllu heldur við gerð svars­ins, var leitað til fær­ustu sér­fræð­inga í mál­inu! Svo um það verður ekki deilt!

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er sænska söng­konan Loreen.

Á neðri mynd­inni er Lionel Messi með gull­bolt­ana sína sjö, æðstu ein­stak­lings­verð­laun fót­bolt­ans sem hann hefur unnið oftar en nokkur annar.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár