Viðskiptaverðlaun Innherja þóttu „óþarflega umfangsmikil“

Mikið var um dýrðir þegar við­skipta­verð­laun Innherja og vel­gjörð­ar­fé­lags­ins 1881 voru veitt í lok árs 2021. Samkvæmt Þórhalli Gunn­ars­syni fram­kvæmda­stjóra miðla hjá Sýn er ekki búið að ákveða hvort verð­launin verði veitt aftur. Hann segir að þau hafi verið umfangs­meiri en marga óraði fyrir og ef nið­ur­staða þeirra verður sú að efna til þeirra aftur þá sé klárt að þau verði bæði ein­fald­ari og smærri í sniðum.

Viðskiptaverðlaun Innherja þóttu „óþarflega umfangsmikil“
Fram­kvæmda­stjóri miðla hjá Sýn Innherji hóf starf­semi haustið 2021 sem við­skipta­mið­ill með óháðri rit­stjórn og er ekki á vegum frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar. Mið­ill­inn heyrir hins vegar undir fjöl­miðla Sýnar. Mynd: Sýr

„Hvort við­skipta­verð­laun Innherja verði veitt í fram­tíð­inni er ekki ákveðið. Ef nið­ur­staða okkar verður sú að efna til verð­launa þá er klárt að þau verða bæði ein­fald­ari og smærri í sniðum.“ Þetta segir Þór­hallur Gunn­ars­son fram­kvæmda­stjóri miðla hjá Sýn í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar varð­andi það hvort við­skipta­verð­laun Innherja og vel­gjörð­ar­fé­lags­ins 1881 verði haldin á ný en þau voru veitt í fyrsta og eina skiptið um miðjan des­em­ber árið 2021. 

Við­skipta­verð­launin, þar sem fólk og fyr­ir­tæki voru verð­launuð fyrir góðan árangur, voru veitt í fimm flokkum á Hilton Nordica, auk aðal­verð­launa fyrir við­skipti árs­ins. Þá var við­skipta­maður árs­ins útnefndur og sér­stök heið­ursverð­laun íslensks atvinnu­lífs afhent. 

Samkvæmt frétt Innherja um verð­launin á sínum tíma byggði dóm­nefndin val sitt á til­lögum sem bár­ust frá tugum manna, stjórn­endum, fjár­festum og öðrum sér­fræð­ingum úr við­skipta­líf­inu. Við­skipta­verð­launin áttu að verða árviss við­burður, þar sem allur ágóði rynni til góðs mál­efnis.

Umfangsmeiri en marga óraði fyrir – sambærileg hátíð ekki haldin aftur

Þór­hallur segir í svari sínu að ástæðan fyrir því að ákveðið var að standa ekki aftur fyrir sam­bæri­legri hátíð sé ein­fald­lega af því þeim þótti hún „óþarf­lega umfangs­mikil og ekki í sam­ræmi við það sem við viljum standa fyrir“.

„Innherji hóf starf­semi haustið 2021 sem við­skipta­mið­ill með óháðri rit­stjórn og er ekki á vegum frétta­stofu okkar.  Mið­ill­inn heyrir hins vegar undir fjöl­miðla Sýnar. Í des­em­ber þetta ár voru við­skipta­verð­laun Innherja haldin og má segja að þau hafi verið umfangs­meiri en marga óraði.

Í fram­hald­inu tókum við þessa verð­launa­af­hend­ingu til end­ur­skoð­unar og ákváðum að standa ekki aftur fyrir sam­bæri­legri hátíð og þarna fór fram,“ segir í svari Þórhalls. 

Viðskipti ársins voru hlutafjárútboð og skráning Íslandsbanka á markað

Í frétt Innherja um verð­launin frá því í des­em­ber 2021 sagði Ólöf Skafta­dóttir sem fór fyrir miðl­inum á þeim tíma að löng hefð væri fyrir því hér á landi að fjöl­miðlar veittu verð­laun fyrir við­skipti árs­ins og útnefndu við­skipta­mann árs­ins og oft kæmu margir til greina. „Við vildum útvíkka hug­mynd­ina og veita verð­laun í fleiri flokkum,” sagði Ólöf og tók Hörður Ægisson annar rit­stjór­inn undir.

Jón Sig­urðs­son, for­stjóri Stoða, hlaut tit­il­inn við­skipta­maður árs­ins og við­skipti árs­ins voru svo hluta­fjár­út­boð og skrán­ing Íslands­banka á markað, en við verð­laun­unum tóku Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra.

Sérstök heið­ursverð­laun íslensks atvinnu­lífs hlaut svo Þórður Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Eyris Invest, fyrir fram­lag sitt til íslensks atvinnu­lífs und­an­farna ára­tugi. Kaup­maður árs­ins var Arnar Sig­urðs­son í Sante, fyrir að vera „óþreyt­andi í bar­áttu sinni“ við að koma almenn­ingi undan ein­okun rík­is­ins á sölu áfengis. Rokk­stjarna árs­ins var Controlant, fyrir að hafa gegnt lyk­il­hlut­verki við dreif­ingu á bólu­efni Covid19 um allan heim og tækni­undur árs­ins var Sidekick Health fyrir að skara fram úr í heil­brigð­is­tækni sem sögð var bæta heilsu fólks með lífstíls­sjúk­dóma.

Spámaður árs­ins var Örn Þor­steins­son hjá Akta sjóðum fyrir að skila fram­úr­skar­andi ávöxtun fyrir sjóðs­fé­laga með grein­ingu og spám sem „hafa hitt naglann á höf­uðið“ og sam­fé­lags­stjarna árs­ins var sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Brim fyrir víð­tækan stuðn­ing við íþróttir og æsku­lýðs­starf, slysa­varna- og björg­un­ar­starf, menn­ing­ar­starf, nýsköpun og fræðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár