Slökkviliðið hafði brunavarnir áfangaheimilisins sem brann til skoðunar

Slökkvi­liðið fór í síð­ustu viku í vett­vangs­skoðun í Vatna­garða 18 til að taka bruna­varn­irnar út en ekki var komin end­an­leg nið­ur­staða um fram­haldið.

Slökkviliðið hafði brunavarnir áfangaheimilisins sem brann til skoðunar

Guðný Elísabet Inga­dóttir, mannauðs­stjóri Slökkvi­liðs­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, stað­festir í sam­tali við Heim­ild­ina að slökkvi­liðið hafi farið í þessa skoðun í áfanga­heim­ili Betra lífs við Vatna­garða. Vegna þess að ekki hafi verið komin nið­ur­staða í málið hafi slökkvi­liðið ekki haft sam­band við eig­anda vegna mögu­legra aðgerða. „Þetta var allt í eðli­legu ferli en í milli­tíð­inni kviknar í,” segir hún.

Horfðu á eigur sínar brenna

Eins og greint var frá fyrr í dag var slökkvi­liðið kallað út um klukkan tíu í morgun eftir að eldur kvikn­aði í einu her­berg­inu. Alls voru um þrjá­tíu manns í hús­inu þegar eld­ur­inn kom upp. Fimm voru fluttir á slysa­deild með minni­háttar 

Á meðan slökkvi­liðið vann að því að slökkva eld­inn stóðu íbúar áfanga­heim­il­is­ins stóðu fyrir utan og horfðu á eigur sínar verða að engu.

Arnar Hjálmtýs­son, for­stöðu­maður áfanga­heim­il­is­ins, full­yrðir að eld­varnir hafi verið í góðu lagi. 

Enginn umsækjandi um alþjóðlega vernd í húsinu

Arnar sagði í sam­tali við Heim­ild­ina í jan­úar að hann væri þarna að leigja virkum fíklum og umsækj­endum um alþjóð­lega vernd.

Heim­ildin hefur hins vegar fengið stað­fest að þegar eld­ur­inn kom upp var þar eng­inn umsækj­andi um alþjóð­lega vernd búsettur. Hins vegar hafi þarna verið fólk sem áður hafði stöðu flótta­fólks en heyrði ekki lengur undir úrræði stjórn­valda og var því að leigja á mark­aði eins og hver annar. 

Í jan­úar sagði Arnar að hann væri að leigja sex flótta­mönnum tveggja manna her­bergi þar sem hver greiði 140 þús­und krónur, sam­tals 280 þús­und krónur fyrir her­bergið. 

Áður hefur Stundin, nú Heim­ildin, fjallað um starf­semi Betra líf. Á árinu 2022 þurfti að loka áfanga­heim­ili þeirra í Fannborg í Kópavogi vegna þess að slökkvi­liðið taldi „öryggi þeirra sem dvelja í hús­inu óvið­un­andi“ vegna ófull­nægj­andi bruna­varna. Hús­ráð­andi fékk ítrekuð tæki­færi til að laga hús­næðið, þannig að það upp­fyllti lág­marks­kröfur um bruna­varnir, en gerði það ekki.

Hver sem er getur opnað áfanga­heim­ili og ekki þarf starfs­leyfi til að reka það. Ekkert eft­ir­lit er heldur með slíkri atvinnu­starf­semi. 

Betra líf Frá vett­vangs­ferð ljós­mynd­ara á áfanga­heim­ilið í Vatna­görðum á dög­unum.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár