Flóttafólk hýst meðal fíkla á áfangaheimili sem brann

Eldur kom upp á áfanga­heim­il­inu Betra Líf í morgun. Þar býr fólk sem er í virkri fíkni­efna­neyslu og þangað hefur flótta­mönnum verið vísað. Áfanga­heim­ilið var áður stað­sett í Kópavogi en hluta húss­ins þar var lokað vegna ófull­nægj­andi bruna­varna.

Flóttafólk hýst meðal fíkla á áfangaheimili sem brann

Flótta­fólk hefur búið sam­hliða fíklum á áfanga­heim­il­inu Betra lífi í Vatna­görðum, sem stóð í ljósum logum í morgun. Íbúar áttu fótum fjör að launa og hafa fimm þeirra verið fluttir á sjúkra­hús til aðhlynn­ingar.

Arnar Hjálmtýs­son rekur með­ferð­ar­heim­ilið Betra líf í Vatna­görðum. Hann sagð­ist vera önnum kaf­inn við að sinna skjól­stæð­ingum sínum þegar Heim­ildin hafði sam­band við hann í morgun vegna brun­ans í hús­inu. Slökkvi­lið hefur áður gert alvar­legar athuga­semdir vegna eld­varna í fyrra hús­næði Betra lífs.

Þrjátíu flúðu brunann

Slökkvi­liðið var kallað út um klukkan tíu í morgun eftir að eldur kvikn­aði í einu her­berg­inu. Alls voru um þrjá­tíu manns í hús­inu þegar eld­ur­inn kom upp, hluti af hópnum flótta­fólk sem hafði fengið hýs­ingu á áfanga­heim­il­inu vegna þess að önnur úrræði voru ekki í boði.

Á meðan slökkvi­liðið vann að því að slökkva eld­inn stóðu íbúar áfanga­heim­il­is­ins stóðu fyrir utan og horfðu á eigur sínar verða að engu. Í frétt RÚV sagði Jón Viggó Jónsson slökkvi­liðs­stjóri að betur hefði farið en á horfð­ist. Reykka­f­arar hefðu farið inn í brenn­andi húsið og hjálpað fimm ein­stak­lingum að kom­ast þaðan út. Ein­hverjir þurftu aðhlynn­ingu í sjúkra­bílum og fimm voru fluttir á slysa­deild með minni­háttar meiðsli. 

Flóttamenn búsettir með fíklum

Um er að ræða jað­ar­settan hóp í íslensku sam­fé­lagi, í hús­næð­inu leigja í flestum, ef ekki öllum, til­fellum ein­stak­lingar með fjöl­þættan vanda, þá vímu­efna- og geð­rænan vanda auk hús­næð­is­leysis. Á þetta áfanga­heim­ili, þar sem fíkni­efna­neyt­endur neyta vímu­efna um æð, hefur flótta­mönnum síðan verið vísað af yfir­völdum.

„Þetta er ófremd­ar­á­stand“

„Ég er að leigja virkum fíklum og umsækj­endum um alþjóð­lega vernd,“ stað­festi Arnar Hjálmtýs­son, for­stöðu­maður áfanga­heim­il­is­ins Betra líf í Vatna­görðum, nú í lok jan­úar. Í umfjöllun Heim­ild­ar­innar kom í ljós að þá leigðu sex flótta­menn her­bergi á áfanga­heim­il­inu. Fyrir tveggja manna her­bergi greiddu þeir 140 þús­und krónur hvor, sam­tals 280 þús­und krónur. „Þetta er ófremd­ar­á­stand fyrir þennan hóp af fólki,“ sagði Arnar þá. 

Áfangaheimilinu áður lýst sem dauðagildru

Fyrir tæpu ári síðan fjall­aði Stundin, nú Heim­ildin, fyrst um áfanga­heim­ilið Betra líf, sem hafði þá aðsetur í Kópavogi og stóð frammi fyrir lokun ef ekki yrðu gerðar úrbætur á bruna­vörnum. Slökkvi­liðið lýsti hús­inu sem dauða­gildru. For­stöðu­maður áfanga­heim­il­is­ins sagði ekki for­sendur til að leggja í slíkan kostnað og sak­aði yfir­völd um að reka heim­il­is­laust fólk á göt­una.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár