Hluta af áfangaheimilinu Betra líf lokað vegna brunavarna

Búið er að loka efri hæð áfanga­heim­il­is­ins Betra líf í Fannborg 4 í Kópavogi sökum þess að hæðin upp­fyllti ekki kröfur slökkvi­liðs­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um bruna­varnir. Nú mega aðeins tíu skjól­stæð­ingar leigja her­bergi á neðri hæð­inni.

Hluta af áfangaheimilinu Betra líf lokað vegna brunavarna
Betra líf Efri hæð á gömlu bæj­ar­skrif­stofu Kópavogs, sem nú hýsir starf­semi áfanga­heim­ilis, hefur verið lokað sem gisti­rými. Mynd: Heiða Helgadóttir

Efri hæð áfanga­heim­il­is­ins Betra lífs í Fannborg fjögur í Kópavogi hefur nú verið lokað sem gisti­rými vegna þess að Arnar Hjálmtýs­son, eig­andi og rekstr­ar­að­ili áfanga­heim­il­is­ins, upp­fyllti ekki kröfur slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins um bruna­varnir og í stað þess að upp­fylla þær fyrir ákveðin tíma ákvað hann að loka hæð­inni. Fyrst fékk Arnar frest til þess að upp­fylla bruna­varnir í hús­næði í maí 2021 en svo var honum ítrekað gef­inn lengri frestur þar til að hann lok­aði efri hæð­inni nú í gær. Nú mega því aðeins tíu íbúar leigja her­bergi í hús­inu, á neðri hæð húss­ins. Húsið hafði pláss fyrir 24 ein­stak­linga og þurfa þeir sem kom­ast ekki fyrir á neðri hæð­ina nú að leita annað. 

Arnar sagði nýverið í sam­tali við Stundina að ástæða þess að hann ákvað að breyta ekki hús­næð­inu úr atvinnu­hús­næði í íbúð­ar­hús­næði væri vegna þess að til stæði að rífa húsið um næstu ára­mót. Í hús­næð­inu leigja í flestum, ef ekki öllum, til­fellum ein­stak­lingar með fjöl­þættan vanda, þá vímu­efna- og geð­rænan vanda auk hús­næð­is­leysis.

Eins og Arnar orðar það sjálfur rekur hann „blautt úrræði“ sem hann segir sjálfur vera áfanga­heim­ili þar sem heim­il­is­fólki er heim­ilt að vera í virkri vímu­efna­neyslu, margir þeirra hafa til að mynda notað vímu­efni um æð. Þrátt fyrir það eru engir starfs­menn á áfanga­heim­il­inu og því ekk­ert eft­ir­lit. Fjórir íbúar Betra lífs hafa lát­ist úr ofneyslu lyfja þar síðan 2020, síð­ast nú í febr­úar. Fyrr­ver­andi íbúar Betra lífs lýsa í við­tali við Stundina aðstæðum þar sem hættu­legum og óboð­legum þar sem aðbún­aður í hús­inu er slæmur upp á hrein­læti og öryggi að gera. Ekkert eft­ir­lit er með starf­semi sjálf­stætt rek­inna áfanga­heim­ila og ekk­ert reglu­verk til í kringum það hver má stofna til slíkra úrræða og því engar kröfur gerðar til for­stöðu­manna eða rekstur þeirra. 

Ekki náð­ist í Arnar við vinnslu frétt­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðrún Eva skrifaði
    Segi eins og Sigurrós sem er systir hans sem lést í feb . SKAMMIST YKKAR !!!!
    0
  • Sigurrós Yrja ÍslandsPía skrifaði
    Umræðan er þörf og þessi staður er stórhættulegur !

    En ég kann alls ekki að meta fullyrðingar sem ekki eru á rökum reistar ! Gunnar bróðir er sá heimilismaður sem lést þarna í febrúar, það var ekki haft samband við neinn í fjölskyldunni til að fá þessar upplýsingar réttar.

    Gunnar bróðir lést EKKI úr ofneyslu, aka overdose. Ekki að það skipti öllu máli, en það er ólíðandi að fjölmiðlar hafi ekki staðreyndir á hreinu um viðkvæm málefni sem þessi !

    Gunnar á dóttur, foreldra, systkini og vini ♥️ Hann er nýlega látinn og ef það á að draga andlát hans á einn eða annan hátt inn í fréttaefni skulu heimildir vera réttar ! Við erum mörg að syrgja bróður minn og þetta er ekki að hjálpa !

    Skammist ykkar !!
    1
  • Omar Sigurjónsson skrifaði
    Þetta er ljóta ruglið það getur bara hver sem er opnað àfangaheimili og sem er eftirlitslaust allan sólarhringinn og þetta eru manneskjur
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár