Brostnar vonir á áfangaheimilinu Betra líf

Til stendur að loka áfanga­heim­il­inu Betra líf verði ekki gerðar úrbætur á bruna­vörnum, en slökkvi­liðið lýsir hús­næð­inu sem dauða­gildru. For­stöðu­maður áfanga­heim­il­is­ins segir ekki for­sendur til þess að leggja í slíkan kostnað og sakar yfir­völd um að reka heim­il­is­laust fólk á göt­una. Íbúar lýsa slæmum aðbún­aði og kalla eftir breyt­ingum, en fjórir hafa lát­ist á áfanga­heim­il­inu frá árinu 2020.

Brostnar vonir á áfangaheimilinu Betra líf
Bjó á Betra líf Róbert Guð­munds­son segir að hann sé and­lega og lík­am­lega búinn á því eftir að hafa þurft að búa á göt­unni og þá enda­lausu bið sem er eftir félags­legu hús­næði. Róbert bjó á Betra líf í Fannborg 4 en þótti dvölin erfið og óvið­un­andi. Hann kýs gisti­skýlið frekar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Á gler­hurð að Fannborg 4 í Kópavogi stendur skýrum stöfum: Betra líf, en til að kom­ast inn á áfanga­heim­ilið þarf að ganga yfir ælu­poll sem liggur fyrir framan dyrnar. 

Betra líf er áfanga­heim­ili sem átti að loka í byrjun mán­aðar. Áfanga­heim­ilið er á tveimur hæðum, þar eru 24 her­bergi og þar búa alla jafna um 24 íbúar. Gengið er inn í almennt rými, á vinstri hönd er stigi upp á efri hæð­ina og á hægri hönd er lyfta. Í beinni sjón­línu er gangur með fjórtán her­bergjum. Allt í kring liggja troð­fullir rusla­pokar á gólf­inu og sígar­ettu­stubbar. Þegar litið er út um hurð­ina blasir rauð bygg­ing við sem merkt er vel­ferð­ar­sviði Kópavogs. 

Húsnæðið var byggt fyrir bæj­ar­skrif­stofur Kópavogs og hefur lítlu sem engu verið breytt síðan bær­inn seldi hús­næðið, nema hvað skrif­stofu­hús­gögnin voru fjar­lægð sem og annað sem minnti á skrif­stofu og í stað­inn voru gömlu skrif­stof­urnar inn­rétt­aðar sem …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • David Olafsson skrifaði
    eg spurdi hvort ekki væri hægt ad fa ruslagam einhvad tarf ruslid ad fara nei tad kostadi of mikid i hvad foru 124000 sem eg borgadi i leigu fyrir 9 fermetra herbergi og nanast enga adra adstødu sturturnar ogedslegar enda hellti stelpan sem treif golfin skolpinu af golfunum i sturtubotnana engin stjornun stelpan sem treif er ad taka ut dom med tessari vinnu sinni ef kalla skyldi vinnu ep passadi ad rumid mitt væri aldrey liggjandi vid veggi tvi litlar svartar pøddur voru um alla veggi og rakinn svartur a veggjum og i gluggum arnar er ad gera ykkur greida fyrir 124000 a manudi tad kostadi greidin flott laun fyrir tveggja tima vinnu fjora til 5 daga i viku for dalitid hvort korinn væri ad singja i jardarfør karlakor audvita
    0
  • Tinna Hrund Schram skrifaði
    Það er of mikið ætlast til af einum manni sem er tilbúinn að hjálpa. Ekki setja út á hann fyrir að ná ekki að halda utan um þetta, setjið út á kerfið fyrir að veita honum ekki byr undir báða vængi! Það vantar fleiri úrræði og fólk til að hjálpa og því ætti kerfið að grípa þá sem eru tilbúnir að gera betur á þessu sviði.
    -2
  • GJ
    Guðrún Júlíusdóttir skrifaði
    Fyrir hvað er fólkið þarna að borga. 120 þúsund fyrir 24 herbergi er dálaglegur peningur og eigandinn ætti nú að geta fleygt rusli við útidyr og þrifið upp ælu við inngang og komið upp slökkvitæki og reykskynjurum.
    3
    • David Olafsson skrifaði
      124000 kostadi mig ad vera tarna en eftir ag gunni do fyltist allt af pøddum einhverjum na kvikindum ua allt mitt herbergi var alltaf fint og herint og eg treif golfid og glussasetur med sterku ediksyru eftir nokkur skipti sa eg litin a golfinu ad svona stadur se til a islandi er vidbjodur eg keypti mer rafmagnshjol til ad hjola einhvad i burt geymdi tad svo hja arnari tvi øllu er stolid tarna en ekki kemur hjolid mitt eftir itrekadar beidnir til arnars ad senda tad nordur hvad vard um hjolid tetta er allt mjøg skritid tarna folk fær ad nota dopid sitt medan tad borgar leigu ef ekki væri frekar litill kunahopur eg bjo tarna i 6 manudi sumir koma ser frekar i fangelsi fa svo ad fara a hladgerdarkot eftir afplanun sem er finn stadur tad eru margir a gøtum islands vonum ad børnin okkar fari ekki a svona stadi svona stadir drepa hægt og rolega einstaklinga i vanda eg reyndi ad ræda tetta tarna en med litlum ahuga annara tvi skamturinn er handan vid hornid og i husinu salan a ser stad innan dyra tad er nu einn sem vinnur fyrir arnar sem gerir ekkert annad en ad henda folki ut tegar hann mætir ta eru allir komnir med skamtinn sinn eina tøflu takk fyrir 6000 dagskamtur ein tafla er 6000 t ef tu ert midlungs fykill allir vita tetta tarna af hverju er ekkert gert i tvi borga leigu allt annad skiptir engu elda mat ekki hægt engin eldavel klosett golfin fyllast ad saur ef sturta er notud ta flædir allt upp sturtubotnar svartir ad skit mannaskit skylin eru flott hotel midad vid tessa peningarukkunarvel svo stendur hlidardalskoli audur med nokkrum polverjum sem lata ekki bjoda ser svona vidbjod tar eru nokkrar sturtur tvottaherbergi stor herbergi og eldhus ser med nokkrum eldavelum og adbunadi til fyrirmynda en lengra i dopid tvi ekki vinsælt tar vantar folk til ad elda eina maltid a dag ta væri hlidardalskoli frabært fyrir ta sem vilja skadaminkandi umhverfi og gott hus ad vera i tetta stod til boda vid forum 3 svo dopistarnir a betra livi geta dalitid sjalfum ser um kennt tetta er stort neyslubæli opid hus med engri stjornun bara rukkunn borga 124000
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár