Fyrri aukaspurning:
Úr hvaða bíómynd er skjáskotið hér að ofan?
***
Aðalspurningar:
1. Hversu marga daga var Guð að skapa heiminn samkvæmt Biblíunni?
2. Önnur úr Biblíunni: Hvað gerði móðir Móse til að bjarga lífi hans?
3. Jennifer Melfi er bandarískur sálfræðingur, ugglaust fædd um 1955 og hefur stofu í New Jersey þar sem hún tekur á móti sjúklingum. Hún fer ekki í manngreinarálit og reynir að liðsinna hverjum sem er, jafnvel þeim sem hafa komist í kast við lögin. Að sumu leyti virkar hún eins og skriftafaðir fyrir hina trúuðu. Hvar er Jennifer Melfi helst að finna?
4. Jeffrey Dahmer var bandarískur karlmaður sem komst í sviðsljósið 1991. Hann var myrtur 1994. Í fyrra var frumsýnd sjónvarpssería um líf hans og vakti hún töluverða athygli, þótt ekki hefðu allir geð í sér til að horfa á hana. Hvað var tilkall Jeffreys Dahmers til frægðar?
5. Í efnafræði er ákveðið fyrirbæri mælt í svokölluðum pH-gildum. Hvað er mælt með pH?
6. Hvaða stjörnumerki dýrahringsins er nú í gildi?
7. Í hvaða heimsálfu er hið sjálfstæða ríki Micronesia?
8. Hver sér um þáttinn Mannamál á sjónvarpsstöðinni Hringbraut?
9. Hér var einu sinni spurt hvar fyrsta sería sjónvarpsþáttaraðarinnar The White Lotus gerðist. En nú er spurt: Hver gerist sería 2?
10. Í hvaða núverandi ríki var Mýkenu-menningin við lýði?
***
Seinni aukaspurning:
Á skjáskotinu hér að neðan birtist mynd sem kölluð hefur verið fyrsta fréttamynd íslenskrar fjölmiðlasögu, þótt hún sé teikning- eða öllu heldur rista - en ekki ljósmynd. Hvaða ár birti Morgunblaðið þessa mynd? Muna má einu ári til eða frá.
***
Svör við aðalspurningum:
1. Sex daga.
2. Setti hann í körfu og setti hana á flot í ánni Níl.
3. Í sjónvarpsþáttaröðinni Sopranos.
4. Hann var fjöldamorðingi.
5. Sýrustig vatns og/eða vatnsblandaðra vökva.
6. Fiskarnir.
7. Eyjaálfu.
8. Sigmundur Ernir Rúnarsson.
9. Á Sikiley.
10. Grikklandi.
***
Svör við aukaspurningum:
Efri myndin er úr The Devil Wears Prada.
Fréttin á neðri myndinni birtist 1913 svo rétt telst vera 1912-1914.
Athugasemdir