Fyrri aukaspurning:
Hvaða jurt má sjá á myndinni hér að ofan?
***
Aðalspurningar:
1. Hvað hét ambátt Skallagríms landnámsmanns sem hann varð að bana? Viðurnefni hennar dugar.
2. Í hvaða landi er Lófóten?
3. Hver söng í hléinu á Ofurskálarleiknum í Bandaríkjunum fyrir örfáum vikum?
4. Nýlega var tilkynnt á Bretlandi að endurvekja ætti fræga grínseríu í sjónvarpi eftir meira en 40 ára hlé. Serían fjallar um misvitran hótelrekanda og nefndist ... hvað?
5. Hvað hét hinn nýlátni norski njósnari sem komst upp um 1984 en hann mun þá hafa gefið Sovétríkjunum upplýsingar lengi?
6. Í hvaða landi er lengsti múr heims?
7. Hvaða ávöxtur kallast á latínu Citrus sinensis?
8. Í hvaða hafi er eyjan Tristan da Cunha? Svarið þarf að vera návæmt.
9. Í hvaða landi heitir höfuðborgin Wellington?
10. Árið 1923 fékk fyrsti Írinn Nóbelsverðlaun í bókmenntum. Aðeins tveim árum síðar fékk annar Íri sömu verðlaun (þótt annar sé stundum flokkaður sem Breti). Ekki eru mörg dæmi eru um að rithöfundar sömu þjóðar hafi hlotið verðlaunin með svo skömmu millibili. En hvað hétu þessir írsku höfundar? Til að fá stig dugar að nefna annan, en lárviðarstig fæst fyrir bæði nöfnin rétt.
***
Seinni aukaspurning: Hvað heitir hann?
***
Svör við aukaspurningum:
1. Brák.
2. Noregi.
3. Rihanna.
4. Fawlty Towers, eða Hótel Tindastóll á íslensku.
5. Arne Treholt.
6. Kína.
7. Appelsína.
8. Suður-Atlantshafi.
9. Nýja Sjálandi.
10. Yeats og Shaw.
***
Seinni aukaspurning:
Á efri myndinni er bambus.
Á neðri myndinni er Piers Morgan.
Athugasemdir