1045. spurningaþraut: Synir Jóns Arasonar, hvað hétu þeir?

1045. spurningaþraut: Synir Jóns Arasonar, hvað hétu þeir?

Auka­spurn­ing hin fyrri:

Hver er svona kátur?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða heims­álfu lifa bav­í­anar nær ein­göngu?

2.  Hvað heita blóð­flokk­arnir fjórir sem blóði okkar er skipt í? Við látum plús og mínus liggja milli hluta í þetta sinn.

3.  Í hvaða ríki er Yucatan-skagi fyrst og fremst?

4.  Suður af skag­anum eru tvö ríki. Hvað heita þau? Það dugar að önnur upp­á­stunga ykkar sé rétt.

5.  Kristín Ein­ars­dóttir er nú for­maður í félagi einu. Með henni í stjórn eru Ásta Ragn­heiður Jóhann­es­dóttir vara­for­maður, rit­ari er Hjálmar Jónsson, gjald­keri er Þuríður Backman og með­stjórn­andi Val­gerður Sverr­is­dóttir. Senni­lega eru eða gætu verið á hverjum tíma eitt­hvað 100-200 manns í félag­inu og á nokk­urra ára fresti bæt­ast mis­margir sjálf­krafa við. Hvaða félag skyldi þetta vera? 

6.  Jón Arason biskup á Hólum átti fjóra syni. Tveir þeirra voru háls­höggnir með honum. Hvað hétu þeir? Bæði nöfnin verða að vera rétt.

7.  En Jón átti líka tvo aðra syni. Báðir voru þeir prestar á einu frægu og miklu prests­setri sem er í Aðaldal inn af Skjálf­anda­flóa, þó ekki sam­tímis, heldur hvor á fætur öðrum. Á prests­setr­inu er gam­all bær sem hefur verið lengi í umsjón Þjóð­minja­safns­ins. Hvaða prests­setur er þetta?

8.  En hvað hétu þessir tveir synir Jóns bisk­ups sem þarna voru prestar? Hér dugar að nefna annan til að fá stig.

9.  Hávaxinn Svíi, ætt­aður sunnan frá Balkanskaga, er enn að spila fót­bolta þótt orð­inn sé fer­tugur. Hann hefur unnið mörg afrek og auk þess kunnur fyrir að hafa munn­inn fyrir neðan nefið. Hvað heitir hann?

10.  Hvað heitir þjóð­ar­leik­vangur Eng­lend­inga í fót­bolta?

***

Auka­spurn­ing sú seinni:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Afríku. Þeir þekkj­ast reyndar á Arab­íu­skaga sem til­heyrir Asíu.

2.  A, B, O og AB.

3.  Mexíkó.

4.  Gvatemala og Belís.

5.  Félag fyrr­ver­andi alþing­is­manna.

6.  Björn og Ari.

7.  Grenj­að­ar­staður.

8.  Magnús og Sigurður. Annað nafnið dugar sem sagt.

9.  Zlatan.

10.  Wembley.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Múmín­pabbi. Múmínsnáð­inn er að sjálf­sögðu ekki rétt.

Á neðri mynd­inni er Kamala Harris.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár