1044. spurningaþraut: Nokkur pör af pörum röðuðu sér hér upp

1044. spurningaþraut: Nokkur pör af pörum röðuðu sér hér upp

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni hér að ofan er frægt söng­par. Hvað hétu þau? Hafa þarf bæði nöfnin rétt.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Arnes Pálsson hét maður. Hann var um tíma í slag­togi með frægu pari í Íslands­sög­unni. Hvað hétu þau?

2.  Jules Winnfield og Vincent Vega nefn­ist heldur ólán­legt par í frægri banda­rískri bíó­mynd frá 1994. Þar eiga þeir langar og ítar­legar sam­ræður um merk­is­fyr­ir­bæri eins og ost­borg­ara milli þess sem þeir fremja ýmsa glæpi, enda óþokka­menn hinir verstu, þótt klæddir séu afar borg­ara­legum jakka­fötum. Hvað heitir bíó­myndin?

3.  En hvaða leik­arapar lék þá félaga?

4.  Í hvaða vin­sælu íslensku bókum kemur við sögu parið Karólína spá­kona og vinnu­dýrið Tommi mað­ur­inn hennar?

5.  Flest líf­færi í manns­lík­am­anum eru ein í sinni röð en fern líf­færi koma þó í pörum. (Hér eru augu og eyru ekki talin með  þó strangt til tekið telj­ist þau líka líf­færi.) Þar af eru tvenn sem allir menn hafa, óháð kyni. Hver eru þau?

6.  En hver eru hin pörin tvö?

7.   Sanjó Pansa var helm­ingur af frægu pari í heims­bók­mennt­unum. Hver var hinn?

8.  Hvað þýðir par í golfi?

9.  Hvaða hönd í póker er næst fyrir ofan „par“ að styrk­leika?

10.  Þeir Adam Clayton og Larry Mullen mynda hryn­parið (bassa og trommur) í frægri rokk­hljóm­sveit. Hvað heitir hljóm­sveitin?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða dýr eru þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Eyvindur og Halla.

2.  Pulp Fiction.

3.  John Travolta og Samuel L. Jackson léku félag­ana.

Vincent Vega og Jules Winnfield

4.  Eyja­bókum Einars Kára­sonar.

5.  Nýru og lungu.

6.  Eistu og eggja­stokkar.

7.   Don Kíkóti.

8.  Sá högga­fjöldi sem stjórn­endur golf­vallar hafa ákveðið fyr­ir­fram að góður golfleik­ari ætti að ná við hverja holu.

9.  Tvö pör.

10.  U2.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd eru Ellý Vil­hjálms og Ragnar Bjarna­son.

Á neðri mynd­inni eru ljón.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár