„Starfið er skemmtilegt þó við séum ekki boðberar skemmtilegra frétta“

Ásta Jenný Sig­urð­ar­dóttir og Helga Dögg Hösk­ulds­dóttir vinna í vísi­tölu­deild Hag­stof­unnar við það að reikna út vísi­tölu neyslu­verðs, útreikn­ingur sem er síðar not­aður til að meta verð­bólgu. Blaða­maður hitti þær til þess að spyrja þær til dæmis hvað þessi vísi­tala neyslu­verðs væri eig­in­lega og hvernig þær fara að því að reikna hana.

Þegar gengið er inn í and­dyri Hagstofu Íslands er það fyrsta sem blasir við manni skilti sem á stendur: „Ert þú að vill­ast?“ Við skrif­borð í mót­tök­unni situr Bergný Tryggva­dóttir, sem kemur í ljós eftir stutt spjall að er þaul­vön því að leið­beina fólki sem villist inn á Hag­stof­una, stundum oft á dag. Ég er ekki bein­línis villt en langar hins vegar að vita meira um hvað ger­ist inni í þessu húsi og hvaða áhrif það hefur á líf mitt. Því í þessu húsi er vísi­tala neyslu­verðs reiknuð, sem er svo notuð til að meta verð­bólgu, sem hefur áhrif á það hversu mik­ils virði pen­ing­arnir mínir eru og hvort lánin mín hækka. 

Ásta Jenný Sig­urð­ar­dóttir og Helga Dögg Hösk­ulds­dóttir vinna í vísi­tölu­deild Hag­stof­unnar og hafa sam­þykkt að svara nokkrum spurn­ingum sem ég hef um vísi­tölu neyslu­verðs. Fyrsta spurn­ingin er auð­vitað: Hvað er vísi­tala neyslu­verðs? Til­gangur hennar, að þeirra sögn, …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár