1025. spurningaþraut: Afmælisbörn og atburðir á þessum degi ástarinnar

1025. spurningaþraut: Afmælisbörn og atburðir á þessum degi ástarinnar

Fyrri auka­spurn­ing:

Málarinn sem mál­aði mynd­ina hér að ofan fædd­ist á þessum degi árið 1867. Hvað hét hann?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Fyrsta konan sem varð rektor Háskóla Íslands fædd­ist á þessum degi 1954. Hvað heitir hún?

2.  Árið 1940 fædd­ist á þessum degi kona sem var lengi blaða­maður á Morg­un­blað­inu, fór síðan að læra arab­ísku í þrem Arabalöndum, stund­aði mjög ferða­lög, bæði ein síns liðs en einnig með hópa Íslend­inga, og stund­aði ýmis­legt hjálp­ar­starf með fjár­öflun fyrir bág­statt fólk, ekki síst konur og börn. Hún átti einmitt nokkur börn sjálf og hét ... hvað?

3.  Á þessum degi árið 1992 fædd­ist fót­bolta­maður sem þykir vel lið­tækur og rúm­lega það, en vakti þó mesta athygli þegar hann hneig niður eftir hjarta­á­fall í lands­leik fyrir tveim árum og var um tíma ekki hugað líf. Hann hefur þó náð sér að fullu og heitir ... hvað?

4.  Á þessum degi árið 2005 var sett í loftið vef­síða sem náði fljótt miklum vin­sældum og hefur haldið þeim síðan. Vefsíðan er nú í öðru sæti yfir mest sóttu vef­síð­urnar í ver­öld­inni. Hvaða síða er þetta?

5.  Á þessum degi 1987 var frum­sýnd kvik­mynd eftir Friðrik Þór Frið­riks­son um tvo unga menn sem fara á fyll­erí í Reykja­vík eftir mikla vinnu­törn og enda á því að brjót­ast inn í byssu­búð og halda þaðan uppi skot­hríð við lög­reglu. Myndin heitir Skytt­urnar sem vísar bæði til afhæfis mann­anna en líka atvinnu þeirra. Við hvað störf­uðu þeir?

6.  Á þessum degi árið 1779 var frægur enskur land­könn­uður drep­inn í átökum við heima­menn á Havaí-eyjum. Hvað hét land­könn­uð­ur­inn?

7.  Á þessum degi 2018 var lit­ríkur for­seti Suður-Afríku þving­aður til að segja af sér emb­ætti en hann var orð­aður við víð­tæka spill­ingu og ýmis­legt í þeim dúr Reyndar hafði hann áður verið bendl­aður við margt mis­jafnt og m.a.s. setið í fang­elsi vegna þess. Hvað heitir karl þessi?

8.  Á þessum degi 1949 kom ísra­elska þingið saman í fyrsta sinn. Hvað nefnd­ist þetta þing?

9.  Þann 14. febr­úar 1989 var rit­höf­undur dæmdur til dauða af trú­ar­leið­toga fyrir bók sem höf­und­ur­inn hafði skrifað. Hvað heitir bókin?

10.  Á þessum degi 1912 var 48. ríkið form­lega tekið upp í Banda­ríki Norður-Ameríku, síð­asta ríkið í hinu sam­fellda land­flæmi sem yfir­leitt eru talin Banda­ríkin þótt síðar hafi tvö fjar­læg­ari ríki bæst við. Hvað var þetta 48. ríki?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Gríð­ar­lega athygli vakti þegar konan hér að ofan sýndi blaða- og sjón­varps­mönnum heim­ili sitt 14. febr­úar 1962. Hvað hét þessi prúð­búna hús­móðir?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kristín Ing­ólfs­dóttir.

2.  Jóhanna Krist­jóns­dóttir.

3.  Christian Eriksen.

4.  Youtube.

5.  Hval­veiðar

6.  Cook.

7.  Zuma.

8.  Knesset.

9.  Söngvar Satans.

10.  Arizona.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Þórarinn B. Þor­láks­son mál­aði mynd­ina frá Þing­völlum.

Jacqueline Kennedy fylgdi blaða­mönnum um Hvíta húsið í Washington.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár