1026. spurningaþraut: Hvar vex stærsta blóm í heimi?

Fyrri auka­spurn­ing:

Í hvaða landi er þessi mynd tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Montgolfier-bræð­urnir í Frakk­landi þró­uðu á 18. öld ákveðið fyr­ir­bæri fyrstir allra. Hvað var það?

2.  Hvað nefnd­ist höllin þar sem Rússa­keis­arar höfðu aðal­að­setur 1732-1917?

3.  Yangon (áður skrifað Rangún) var höf­uð­borg í ríki einu þar til árið 2006 þegar rík­is­stjórn lands­ins flutti höf­uð­borg­ina til Naypyidaw. Hvaða land er hér um að ræða?

4.  Banda­ríski íþrótta­mað­ur­inn Tom Brady sett­ist á dög­unum í helgan stein. Hvaða íþrótt stund­aði hann?

5.  Fyrir hvaða kjör­dæmi situr Jón Gunn­ars­son á þingi?

6.  Sif Sig­mars­dóttir er rit­höf­undur og pistla­höf­undur. Hvar birt­ast pistlar hennar?

7.  Norræna gyðjan Sif var fræg fyrir ákveðið útlitsein­kenni sem þótti sér­lega glæsi­legt. Hvað var það?

8.  Sif átti eig­in­mann í goð­heimum og var hann einn kröft­ug­asti karlguð­inn. Hann hét ... hvað?

9.  „Ó Grýla, ó Grýla, ó Grýla í ...“ söng Ómar Ragn­ars­son á sínum tíma. En í hverju var Grýla?

10.  Stærsta blóm í heimi er heill metri í þver­mál og heitir Raf­flesia. Jurtin sú vex nær ein­göngu á nokkrum stórum eyjum til­tek­ins rík­is­ins. Hvaða ríki er það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi kona sótti okkur heim á dög­unum. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Loft­belgir

2.  Vetr­ar­höllin.

3.  Míanmar eða Búrma.

4.  Amer­ískan fót­bolta.

5.  Suð­vestur.

6.  Frétta­blað­inu.

7.  Hárið.

8.  Þór.

9.  Gamla hell­inum.

10.  Indónesíu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin sýnir gos­hver­inn Old Faithful sem er í Banda­ríkj­unum.

Á neðri mydn­inni er fiðlu­leik­ar­inn Anne-Sophie Mutter.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár