1024. spurningaþraut: Davíðssálmar? Ljóðaljóðin? Óbadía?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver stendur þarna við hlið Katrínar Jak­obs­dóttur? Myndin er af FB-síðu hennar.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Sara Björk Gunn­ars­dóttir var um langt ára­bil fyr­ir­liði íslenska lands­liðs­ins í fót­bolta. Hún til­kynnti nýlega að hún væri hætt og á dög­unum var nýr fyr­ir­liði kynntur til sögu af lands­liðs­þjálf­ar­anum. Hver er nýi fyr­ir­lið­inn í kvenna­flokknum?

2.    Og með hvaða liði í Þýska­landi leikur nýi fyr­ir­lið­inn?

3.  Hverjir eru ein­kenn­is­stafir flug­vélar Land­helg­is­gæsl­unnar sem styrr stóð um fyrir fáeinum dögum?

4.  Dav­íðs­sálmar, Jesaja, Ljóða­ljóðin, Kon­unga­bók, Makka­bea­bók, Óbadía, Rutarbók, Sam­ú­els­bók. Allt eru þetta bækur Bibl­í­unnar og til­heyra Gamla testa­ment­inu. Nema eitt af þessum verkum reyndar. Hvað er það?

5.  Hvaða sjóður á sviði nátt­úru­verndar hætti í raun starf­semi á dög­unum þegar fram­kvæmda­stjór­inn lét af störfum?

6.  Og hver var fram­kvæmda­stjór­inn?

7.  Sá frá­far­andi fram­kvæmda­stjóri hefur feng­ist við afar fjöl­breyti­leg við­fangs­efni í líf­inu. Árið 1998 var hann til dæmis við­loð­andi músík og samdi þá lag sem naut gíf­ur­legra vin­sælda í mörg ár á eftir í flutn­ingi hljóm­sveit­ar­innar Skíta­mórals. Hvaða lag er það?

8.  Stórborg ein í Evrópu er að hluta til byggð í jaðri eld­stöðvar sem ber ekki mikið á, svo margir vita ekki einu sinni af til­veru hennar en hefur gegnum tíð­ina gosið risa­stórum gosum. Langt er síðan síð­ast gaus en gos­s­töðin gæti farið af stað nán­ast hvenær sem er og valdið ægi­legu tjóni. Eld­stöðin heitir Campi Flegrei en hver er þessi borg?

9.  Orðið lesbía er dregið af nafni skáld­konu einnar vegna þess að hún er talin hafa hrif­ist af konum og var frá eyj­unni Lesbos. En hvað hét skáld­konan?

10.  Í hvaða hafi er eyjan Lesbos?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvar er þessi mynd tekin? Ég tók reyndar hana trausta­taki á Facebook-síðu Guðjóns Frið­riks­sonar.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Glódís Perla.

2.  Bayern München.

3.  TF-SIF.

4.  Makka­bea­bók er ein af hinum svoköll­uðu apókrýfu bókum og til­heyrir ekki hinni eig­in­legu Biblíu og alls ekki Gamla testa­ment­inu.

5.  Vot­lend­is­sjóður.

6.  Einar Bárð­ar­son.

7.  Farin.  

8.  Napólí. Þetta er sem sé önnur eld­stöð en Vesúvíus og enn nær borg­inni.

9.  Saffó

10.  Eyja­haf­inu. Mið­jarð­ar­hafið er of víð­tækt.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Það er Olaf Scholz kansl­ari Þýska­lands sem stendur við hlið Katrínar.

Mynd Guðjóns er af Stokks­eyri.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár