1023. spurningaþraut: Hver er aftur Shania Twain?

1023. spurningaþraut: Hver er aftur Shania Twain?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvar er myndin hér að ofan tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét síð­asta lands­höfð­ingi Dana á Íslandi?

2.  Hvaða ár tók Margaret Thatcher við sem for­sæt­is­ráð­herra á Bret­landi? Hér má muna einu ári til eða frá.

3.  Hvaða kona varð næst for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands?

4.  Dmitri Mendelyev var rúss­neskur vís­inda­maður sem lést 1907. Hvað þró­aði hann sem enn er notað á til­teknu sviði vís­inda?

5.   Í hvaða landi er borgin Lviv?

6.  Hver varð tví­tug 3. jan­úar síð­ast­liðin? Spurn­ingin kann að virð­ast fárán­leg þar sem auð­vitað urðu ansar margar tví­tugar 3. jan­úar síð­ast­lið­inn. En ef hugsið málið hljót­iði að átta ykkur á því að spurn­ingin hlýtur að snú­ast um alveg til­tekna tví­tuga stúlku.

7.  Hver er systir fálkans?

8.  Hvað er tinda­bikkja? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

9.  Kona ein, sem nú er 83 ára, hét upp­haf­lega Shirley Marlin Noznisky en eftir að hafa gengið að eiga fyrri eig­in­mann sinn kall­að­ist hún Sara Lownds. Um 1970-75 var hún komin með annan mann og sá samdi um hana ýmsa af feg­urstu og síðar sár­ustu ást­ar­söngvum hippa­tím­ans. Hver orti svo og söng um Söru?

10.  Hver er eða var Shania Twain? a) Kanadísk söng­kona. b) Banda­rísk dóttir rit­höf­und­ar­ins Mark Twain og per­sóna í mörgum smá­sagna hans. c) Dag­bók­ar­rit­ari sem skráði hluta af lífs­hlaupi Viktoríu Breta­drottn­ingar. d) Fyrr­ver­andi for­seti Kólumbíu. e) Pólsk-enskur Nóbels­höf­undur, upp­haf­lega Shania Tzwanskiewicz.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað er konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Magnús Steph­en­sen.

2.  1979, svo rétt telst vera 1978-1980.

3.  Theresa May.

4.  Lotu­kerfið, skrá frum­efna.

5.  Úkraínu.

6.  Greta Thunberg.

7.  Rjúpan.

8.  Skötu­teg­und. Fisk­teg­und er ekki nógu nákvæmt.

9.  Dylan. 

10.  Kanadísk söng­kona.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er tekin við Dauða­hafið brim­salta.

Neðri myndin er af Auði Laxness. Hún er ekki að skoða mat­seðil á fínu veit­inga­húsi heldur að virða fyrir sér Nóbelskjal eig­in­manns­ins Halldórs. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Liz Trus var einnig fosætisráðherra Breta. Eða hvað??
    0
    • Emil Kristjánsson skrifaði
      Reyndar, en ekki næsta kona á eftir Margréti til að gegna þessu embætti.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár