1014. spurningaþraut: Hve stór er Júpíter?

1014. spurningaþraut: Hve stór er Júpíter?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvar er letrið á skjá­skot­inu hér að ofan fyrst og fremst notað?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða verð­laun fékk Vala Flosa­dóttir á ólymp­íu­leikum?

2.  Hvaða ár vann hún þau verð­laun?

3.  Hversu margar systur (alsystur og hálf­systur) á Kim Kar­dashian?

4.  Hver samdi og syngur lagið Fyrr­ver­andi?

5.  Þær Erla Ruth Harð­ar­dóttir og Linda Ásgeirs­dóttir eru báðar leikkonur og hafa tek­ist á við ýmis verk­efni gegnum tíð­ina. Veturinn 1998-99 voru þær einu kon­urnar sem unnu með ákveðnum hópi karla, sem köll­uðu sig ... hvað?

6.  Arthur Hastings er tal­inn hafa fæðst um 1886, hann gekk í breska her­inn og mun hafa staðið sig með miklum sóma í fyrri heims­styrj­öld­inni. Eftir styrj­öld­ina er hann kunn­astur fyrir marg­vís­lega aðstoð sem hann veitti vini sínum og sam­starfs­manni, sem þótti raunar honum snjall­ari á flesta lund. Hvað hét þessi vinur?

7.  Hvaða ár var háð fræg orr­usta við Hastings á Englandi?

8.  Fyrir hvaða land keppir Novak Djokovic í tennis?

9.  Hvar á Íslandi er Breið­dalur? (Ef þeir skyldu vera fleiri en einn, þá er hér spurt um þann stærri!)

10.  Hvaða fræga leik­rit endar á þann hátt að ein per­sóna segir við aðra: „Jæja, eigum við að fara?“ Og hin per­sónan segir: „Já, förum.“ En svo hreyfa per­són­urnar sig ekki. — Svo fæst Foxrock-stig fyrir að muna hvað per­són­urnar heita, en nefna verður báðar rétt.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Júpíter er stærsta pláneta sól­kerf­is­ins. En hve.. stór er Júpíter miðað við sól­ina? Er hinn rétti Júpíter A, B, C, D eða E?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Brons.

2.  Árið 2000.

3.  Fjórar.

4.  Una Torfa­dóttir.

5.  Spaug­stof­una.

6.  Hercule Poirot, einka­spæj­ari Agötu Christie.

7.  1066.

8.  Serbíu.

9.  Á Aust­fjörðum, Aust­ur­landi.

10.  Leik­ritið Beðið eftir Godot endar á þennan hátt. — Per­són­urnar heita Vladimir og Estragon.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Letrið á fyrri mynd er notað á Indlandi. Nákvæmara þarf svarið ekki að vera.

Hinn rétti Júpíter á seinni mynd­inni er C.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár