1013. spurningaþraut: Hverjir áttu að vera betur settir sem þrælar en frjálsir?

1013. spurningaþraut: Hverjir áttu að vera betur settir sem þrælar en frjálsir?

Fyrri auka­spurn­ing: Hver hefur hér verið mál­aður myrtur, og auka­stig fyrir nafn mál­ar­ans!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver leik­stýrði kvik­mynd­inni ET fyrir fjórum ára­tugum?

2.  Effersey heitir eyja ein, ef eyju skyldi kalla. Hún er raunar löngu orðin land­föst og er nú þekkt­ust undir nafn­inu ... ja, hvaða nafni?

3.  Hvaða þjóð varð á dög­unum heims­meist­ari í hand­bolta?

4.  Hvaða ár hófst franska bylt­ingin víðkunna? Hér má muna tveim árum til eða frá.

5.  Til er sú kenn­ing, sem vænt­an­lega verður seint sönnuð eða afsönnuð, að ákveð­inn atburður á Íslandi hafi átt sinn þátt í því að bylt­ingin braust út. Hvaða atburður?

6.  Í hvaða landi er nú farið að fram­leiða vél­byssur í barna­stærðum?

7.  Und­an­farið hefur staðið yfir mál­flutn­ingur í stærsta kóka­ín­máli Íslands­sög­unnar. Flytja átti inn mikið magn af kóka­íni falið í ... hverju?

8.  Evgeny Prigozhin er þekktur undir eins konar við­ur­nefni. Hvað er það?

9.  Hver er fjöl­menn­asti her heims­ins?

10.  Árið 1503 voru Spán­verjar farnir að leggja undir sig lönd í Mið-Ameríku. Þá felldi drottn­ing Spánar þann úrskurð að ein­ungis mætti hneppa þá inn­fædda í þræl­dóm sem væru betur komnir sem þrælar en frjálsir. Þar var sér­stak­lega til­tek­inn einn hópur manna. Síðan varð það um skeið keppi­kefli spænskra nýlendu­herra að flokka sem flesta inn­fædda í þann hóp (lang­flesta eða alla rang­lega), svo gera mætti þá að þrælum. Hvers konar menn voru þannig taldir betur settir í þræl­dómi en frjálsir?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Segja má að þetta mál­verk sé málað sem eins konar fram­hald af því fyrra, þótt lista­mað­ur­inn sé annar. En á þessu seinna mál­verki sést morð­ingi karls­ins í bað­inu, sem var utan rammans á fyrri mynd­inni. Og hvað heitir morð­ing­inn?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Spi­el­berg.

2.  Örfirisey.

3.  Danir.

4.  1789 — svo rétt telst vera 1787-1791.

5.  Skaft­ár­eldar, gosið í Laka­gígum. Svarið „móðu­harð­indin“ er hins vegar rangt. Þótt gosið sjálft kunni að hafa haft áhrif í Frakk­landi, þá skiptu harð­indi á Íslandi Frakka engu.

6.  Banda­ríkj­unum.

7.  Trjá­bolum.

8.  Kokkur (eða bryti) Pútins.

9.  Her Kína.

10.  Mannætur. 

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er mál­verk Davids af Marat.

Hann var franskur bylt­ing­ar­for­ingi, sem myrtur var í baði 1793.

Nöfn þeirra beggja standa raunar á mál­verk­inu sjálfu svo ég þurfti að þurrka þau út.

Sjá hér til hliðar.

Á neðri mynd­inni mátti svo sjá morð­ingj­ann, Charlotte Corday.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár