1012. spurningaþraut: Jahérna, kominn febrúar!

1012. spurningaþraut: Jahérna, kominn febrúar!

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða nýlegu og vin­sælu bíó­mynd er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Fyrrum var þrennt sagt ótelj­andi á Íslandi. Í fyrsta lagi voru það eyj­arnar ... hvar?

2.  Í öðru lagi var um að ræða hól­ana í ... í hverju?

3.  Og í þriðja lagi voru til­tekin vötn sögð ótelj­andi. Það voru vötnin ... hvar?

4.  Hversu margar eru til­nefn­ingar til Ósk­arsverð­launa í hverjum flokki, nema einum?

5.  Í flokknum „besta kvik­myndin“ er þó annar fjöldi til­nefn­inga. Hversu margar myndir eru til­nefndar í þessum flokki?

6.  Þjóðskrá birti nýlega tölur um íslenska rík­is­borg­ara sem búsettir eru erlendis. Hve margir reynd­ust þeir vera? Hér má skeika fimm þús­und manns til eða frá.

7.  Élisa­beth Borne hefur verið for­sæt­is­ráð­herra í til­teknu stóru Evr­ópu­landi síðan í maí 2022. Hún er þó ekki mesti valda­maður lands­ins. Í hvaða landi er Borne for­sæt­is­ráð­herra?

8.  Hver leik­stýrði kvik­mynd­inni Börn nátt­úr­unnar?

9.  Nýlega fannst til­tekin dýra­teg­und í regn­skóg­unum í Panama. Vís­inda­menn nefndu dýrið á lat­ínu Pristim­antis gret­athun­bergae, vita­skuld eftir sænska aktíf­ist­anum Gretu Thunberg. En hvers konar dýr er Pristim­antis gret­athun­bergae?

10.  Hvað ætli heiti ann­ars höf­uð­borgin í Panama?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir eyjan hér nokkurn veg­inn fyrir miðri mynd?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Á Breiða­firði.

2.  Í Vatnsdal.

3.  Á Arn­ar­vatns­heiði. Einnig fæst rétt fyrir Tvídægru en þær heiðar tvær liggja hvor að annarri.

4.  Fimm.

5.  Tíu.

6.  Þjóðskrá gaf upp töl­una 48.951. Ef við hækkum það upp í 49 þús­und telst allt frá 44 þús­und og upp í 54 þús­und vera rétt.

7.  Frakk­landi.

8.  Friðrik Þór Frið­riks­son.

9.  Froskur.

Pristim­antis gret­athun­bergae

10.  Panama, eða Ciudad de Panamá, það er að segja Panama-borg.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri mynd er úr kvik­mynd­inni um Gosa.

Öðru nafni Pinocchio, en svo heitir myndin á ensku.

Myndinni stýrði Guill­ermo del Toro.

Eyjan á neðri mynd­inni er hins vegar Korsíka.

Ég sneri kort­inu á Google Earth svo­lítið og hall­aði því líka.

En á „venju­legri“ mynd er Korsíka svona í sveit sett:

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár