1011. spurningaþraut: Hér er spurt um Margréti Skúladóttur, ójá

1011. spurningaþraut: Hér er spurt um Margréti Skúladóttur, ójá

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er á mynd­inni hér að ofan? Lista­manns­nafnið nægir.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða ár var Rauði kross­inn stofn­aður? Var það 1763 — 1813 — 1863 — eða 1913?

2.  Margrét Skúla­dóttir gegndi fyrst allra kvenna ákveðnu emb­ætti eða tign á Íslandi, en aðeins í eitt ár og á 13. öld. Að minnsta kosti ef við lítum sög­una hefð­bundnum skiln­ingi. Hver var Margrét Skúla­dóttir?

3.  Karl einn hét að tveim skírn­ar­nöfnum Alphonse Gabriel og fædd­ist 1899. Hann gerð­ist glæpa­maður og varð frægur sem slíkur. Hvað var ætt­ar­nafn hans?

4.  Hvaða borg teng­ist nafni hans helst?

5.  Hvaða frægi flota­for­ingi var ein­eygður?

6.  Frægur fót­bolta­kappi af karl­kyni á síð­asta ára­tug síð­ustu aldar nefnd­ist Romario. Fyrir hvaða lands­lið keppti hann?

7.  Fyrir hvaða flokk situr Hildur Sverr­is­dóttir á þingi?

8.  En Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir?

9.  Árið 1967 samdi Frakkinn Jacques Revaux lag sem var að end­ingu gefið út í Frakk­landi, sungið af Comme d'habitude“ sem þýðir „Eins og venju­lega“ og text­inn lýsir sam­bandi elskenda sem orðið er þreytt og lúið. Lagið naut þokka­legra vin­sælda í Frakk­landi en þegar Banda­ríkja­maður keypti rétt­inn að lag­inu og gaf það út í Banda­ríkj­unum með allt öðrum texta og um allt annað efni, þá urðu vin­sældir þess gríð­ar­legar. Undir hvaða nafni þekkjum við nú þetta franska lag sem öðl­að­ist þannig nýtt líf í Banda­ríkj­unum?

10.  Hver söng lagið í Banda­ríkj­unum og 1969 og gerði það heims­frægt?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hvað heitir þessi prinsessa?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  1863

2.  Hún var drottn­ing Noregs og þar með fyrsta drottn­ing Íslands líka þegar eig­in­maður hennar Hákon gamli náði yfir­ráðum á Íslandi 1262 — ef við förum að hefð­bund­inni sögu­skoðun. Hákon lést ári síðar. 

3.  Capone.

4.  Chicago.

5.  Nelson.

6.  Brasilíu.

7.  Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

8.  Pírata.

9.  My Way.

10.  Frank Sinatra.

***

Á efri mynd­inni er alls­herjar skemmti­kraft­ur­inn Divine.

Á neðri mynd­inni er alls­herjar prinsessan Ariel úr Litlu haf­meyj­unni.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár