Ráðherra fannst Verbúðin alveg frábær

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra og Inga Sæland for­maður Flokks fólks­ins ræddu sjáv­ar­út­vegs­mál á þing­inu í dag. „Hefur ráð­herr­ann ekki áhyggjur af því að við förum að horfa upp á enn brot­hætt­ari byggðir en nú er?“ spurði Inga Svandísi meðal ann­ars.

Ráðherra fannst Verbúðin alveg frábær
Mat­væla­ráð­herra Svandís Svav­ars­dóttir svar­aði spurn­ingum um sjáv­ar­út­vegs­mál á þing­inu í dag í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma. Mynd: Pressphotos

„Mér fannst Verbúðin alveg frá­bær, mjög mik­il­vægt að menn­ingin sé þátt­tak­andi í sam­fé­lags­um­ræð­unni og mér fannst það ein­stak­lega vel gert í þessum þáttum sem vakti okkur auð­vitað til vanga­veltna og spurn­inga um ákvarð­anir sem voru teknar á vett­vangi stjórn­mál­anna á sínum tíma, bæði hér í þing­inu en ekki síður á vett­vangi sveit­ar­fé­lag­anna og þeirra sem áttu fyr­ir­tækin á þeim tíma.“

Þetta sagði Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra þegar hún ræddi við Ingu Sæland for­mann Flokks fólks­ins um sjáv­ar­út­vegs­mál í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag. Inga spurði Svandísi meðal ann­ars hvort hún hefði áhyggjur af því hvert Íslend­ingar stefndu í þessum mála­flokki og hvort hún hefði séð Ver­búð­ina sem svo margir sáu hér á landi. 

Verbúðin vakti mikla athygli í byrjun síð­asta árs en þætt­irnir ger­ast á árunum 1983 til 1991 og fjalla um vina­hóp sem kaupir gamlan tog­ara með og byggir lítið sjáv­ar­út­vegs­veldi í þorpi í Vest­fjörðum. Þætt­irnir eru mikil ádeila á kvóta­kerfið og sýna á dramat­ískan hátt afleið­ingar þess, sér­stak­lega á sjáv­ar­þorp á lands­byggð­inni. 

Sjálf alin upp í sjávarþorpi

Inga hóf fyr­ir­spurn sína með því að benda á að nú hefði einn stærsti starfs­hópur sem skip­aður hefur verið af ráð­herra skilað drögum til mat­væla­ráð­herra um sjáv­ar­út­vegs- og kvóta­mál. „Drögum um það hvernig best og gerst eigi að haga málum þar sem þjóðin er ekki sátt. Hún er ekki sátt við stöð­una eins og hún er í dag.“

Hún nefndi að ein af þessum til­lögum væri sú „að hrein­lega þurrka út strand­veiði­kvót­ann, taka þessi aumu 5,3 pró­sent sem hefur verið úthlutað til litlu sveitar- og sjáv­ar­pláss­anna sem eiga nátt­úr­lega í vök að verj­ast nú þegar“. 

„Mig langar að nefna að ég er fædd og upp­alin í einu slíku, sem heitir Ólafs­fjörður, þar sem voru tugir báta, tog­ara, smá­báta, neta­báta, þar sem var líf og fjör úti um allt, þar sem voru tvö risa­stór frysti­hús og tugir sjó­húsa, þar sem hver ein­asti Ólafs­firð­ingur gat valið um þá vinnu sem hann vildi fá og laut að sjáv­ar­út­vegi. Það er ekk­ert eftir nema tvær trillur í þessu litla sjáv­ar­plássi.

Mínar vanga­veltur um þetta núna eru þær að í ljósi þessa langar mig einnig að benda á þessa gríð­ar­legu sam­þjöppun í grein­inni. Það má til dæmis nefna Þormóð ramma. Sæberg í Ólafs­firði kaupir upp tap­rekst­ur­inn hjá Þormóði ramma til að losna við að greiða skatta og skyldur til okkar, sam­fé­lags­ins – frekar er tap­rekst­ur­inn keyptur til að þurfa ekki að borga krónu, ekk­ert frekar en þau gera fyrir aðgang­inn að auð­lind­inni. Nú er síld­ar­vinnslan í Vest­manna­eyjum komin í eina sæng með þessu fyr­ir­tæki, Þormóður rammi-Sæberg-Síld­ar­vinnslan,“ sagði hún. 

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, segir að ekk­ert sé eftir nema tvær trillur á Ólafs­firði þar sem hún ólst upp.

Inga spurði því Svandísi hvort hún hefði ekki áhyggjur af því hvert Íslend­ingar væru raun­veru­lega að stefna. „Svo ég vendi nú mínu kvæði í kross og komi með eitt­hvað rosa fyndið inn í þetta: Hvað fannst hæst­virtum ráð­herra um Ver­búð­ina sem allir Íslend­ingar sáu? Hvað var hæft í þeim þætti og erum við að stefna enn þá lengra og eigum við kannski von á annarri þátta­röð?“ spurði hún. 

Hvetur fólk til að gera athugasemdir við tillögurnar

Svandís svar­aði og sagði, eins og áður segir, að henni hefði fund­ist þætt­irnir frá­bærir. Varðandi til­lög­urnar sem eru í sam­ráðs­gátt stjórn­valda vildi Svandís hvetja fólk til að skoða og gera athuga­semdir við þær. „[Þær] eru í raun og veru þannig að þær mynda ekki heild­stætt nýtt kerfi heldur koma þarna fram til­lögur sem mögu­lega draga fram val­kosti, eins og til að mynda val­kosti sem varða það sem kallað er félags­lega kerfið eða 5,3 pró­sent. 

Þar er líka dreg­inn fram sá val­kostur að færa á milli þeirra potta sem þar eru til að styrkja strand­veiði­þátt­inn. Sam­ráðs­nefndin sem heldur utan um allar til­lögur þess­ara und­ir­hópa er að fara að funda núna á næstu vikum og ég hvet full­trúa Flokks fólks­ins til þess að taka þátt í þeirri vinnu en við munum á næstu vikum fara yfir þessar til­lögur. Við byrjum á þeim til­lögum sem lúta að auð­lind­inni sem slíkri og síðan efna­hags­þætt­inum og loks að hinum félags­lega. Það er spenn­andi vinna fram undan og ég treysti því að Flokkur fólks­ins sé til­bú­inn að taka þátt í henni,“ sagði hún. 

Stærðarinnar togurum leyft að veiða „nánast inni í hjónarúmi hjá hjá fólki í landinu“

Inga kom aftur í pontu og sagði að ekki skorti vilja flokks hennar til góðra verka og hefði aldrei gert.

„Ég vil enn spyrja spurn­ingar í ljósi þess að Vinstri­hreyf­ingin – grænt fram­boð hélt fund núna í sumar á Ísafirði þar sem ein­dreg­inn vilji var til þess að auka við strand­veiði­kvót­ann ef eitt­hvað var,“ sagði hún og spurði Svandísi hvort hún hefði engar áhyggjur af því ef búið yrði að þurrka út þennan kvóta og láta fólk fara að rækta kart­öflur í stað­inn. 

„Hefur ráð­herr­ann ekki áhyggjur af því að við förum að horfa upp á enn brot­hætt­ari byggðir en nú er? Og í öðru lagi: Hvað kost­aði þessi stóra nefnd? Varla hafa þau verið í sjálf­boða­vinnu. Í þriðja lagi: Miðað við að allt er vænt sem vel er grænt hjá Vinstri grænum þá er stað­reyndin sú að nú er jafn­vel verið að leyfa stærð­ar­innar tog­urum með manni og mús og trolli og öllu saman hrein­lega að fara að veiða nán­ast inni í hjóna­rúmi hjá hjá fólki í land­inu. Er það umhverf­is­vænt að ætla að níð­ast svona rosa­lega á líf­rík­inu alger­lega upp í fjöru?“ spurði hún jafn­framt. 

„Mér hafa fyrst og fremst fylgt góðar óskir í þessu verkefni“

Svandís svar­aði á ný og sagði að hún væri ekki með kostn­að­ar­tölur á hrað­bergi en hvatti Ingu til að leggja fram skrif­lega fyr­ir­spurn um það því að þau gögn liggi öll fyrir. 

„Þetta er auð­vitað gríð­ar­lega víð­feðm vinna og það er sann­ar­lega rétt sem hátt­virtur þing­maður nefnir að hún er umfangs­meiri heldur en hefur verið lagt upp í áður vegna þess að við erum að freista þess að reyna að ná utan um umhverf­is­þátt­inn, efna­hags­lega þátt­inn og félags­lega þátt­inn í þessu kerfi, freista þess að reyna að ná meiri sam­fé­lags­legri sam­stöðu um verk­efnið. 

Mér finnst sam­skipti sam­fé­lags­ins við sjáv­ar­út­veg­inn verð­skulda að við reynum að gera þetta með eins breiðum og víð­tækum hætti og hægt er. Tíma­á­ætl­unin hefur stað­ist hingað til og ég von­ast auð­vitað til þess að hún geri það áfram. Það er ekki útláta­laust en enn þá er það þannig að mér hafa fyrst og fremst fylgt góðar óskir í þessu verk­efni,“ sagði ráð­herr­ann. 

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Yfirvöld hafa aldrei sagt orð við þó kvótinn hafi verið rifinn úr sjávarþorpum
    t.d.Flateyri, aldrei.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár