Samherji þarf að borga skatt vegna aflandsfélags sem útgerðin sór af sér

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji þarf að borga skatta á Íslandi vegna launa­greiðslna til íslenskra starfs­manna sinna erlendis sem fengu greidd laun frá skatta­skjóls­fé­lag­inu Cape Cod FS. Samherji reyndi ítrekað að hafna tengslum sínum við Cape Cod FS og sagði fjöl­miðla ill­gjarna. Nið­ur­staða sam­komu­lags Skatts­ins við Samherja sýnir hins vegar að skýr­ingar Samherja á tengslum sínum við félagið voru rangar.

Samherji þarf að borga skatt vegna aflandsfélags sem útgerðin sór af sér
Nið­ur­staða sam­komu­lags­ins og orð Samherja mis­mun­andi Nið­ur­staða sam­komu­lags­ins sem Skatt­ur­inn gerði við Samherja er önnur en þær skýr­ingar sem útgerðin hefur gefið á félag­inu Cape Cod FS í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum. Annað hvort er sam­komu­lagið því rangt eða orð Samherja um félagið voru röng. Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri Samherja. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Útgerð­ar­fé­lagið Samherji þarf að greiða skatta upp á 60 millj­ónir króna auk vaxta vegna félags í skatta­skjól­inu Marshall-eyjum sem félagið sór ítrekað af sér að bera nokkra ábyrgð á. Um var að ræða félagið Cape Cod FS sem fjöl­miðlar fjöll­uðu um í tengslum við opin­berun Sam­herj­a­skjal­anna í Namibíu árið 2019 þar sem þetta félag greiddi laun sjó­manna sem unnu hjá Samherja erlendis. 

Þetta er nið­ur­staðan úr því sam­komu­lagi sem Samherji hefur gert við Skattinn hér á landi vegna skatt­skila félags­ins á árunum 2012 til 2018. Bæði Samherji og Morg­un­blaðið, sem Samherji var um ára­bil stór hlut­hafi í, stilltu sam­komu­lag­inu þannig upp að ekk­ert óeðli­legt hefði átt sér stað í skatt­skilum félags­ins. Heild­ar­end­ur­greiðslur Samherja á sköttum nema um og yfir hálfum millj­arði króna. 

Nið­ur­staðan felur það í sér að Skatt­ur­inn lítur svo á að félagið á Marshall-eyjum hafi verið hluti af sam­stæðu Samherja og verið stýrt af útgerð­inni og að skila hefði átt skatt­greiðslum og trygg­inga­gjaldi af þeim Íslend­ingum sem fengu laun sín greidd frá Cape Cod FS til Íslands. Þessi nið­ur­staða er ekki ein­kenni­leg þegar litið er til þess að það var Samherji sem bæði fjár­magn­aði félagið og stýrði banka­reikn­ingi þess í norska DNB-bank­anum. 

Félagið á Marshall-eyjum var ein­ungis eitt dæmi um notkun Samherja á skatta­skjóli í við­skiptum sínum í Afríku. Samherji not­aði einnig félag í skatta­skjól­inu Máritíus til að taka við þókn­unum sem útgerðin greiddi sér frá Namibíu. Þessar þókn­anir námu sam­tals 640 millj­ónum króna. Ekki liggur fyrir hvort sam­komu­lag Samherja við Skattinn á Íslandi hafi einnig tekið til þessa félags.

„Að setja svona fram, það er tvennt sem kemur til greina, ann­að­hvort er það ill­vilji eða yfir­sjón.“
Björgólfur Jóhanns­son,
starf­andi for­stjóri Samherja, tjáir sig um umfjöllun fjöl­miðla um Cape Cod FS.

Þarf að greiða skatt vegna félags sem það átti hvorki né stýrði

Þessi nið­ur­staða um starf­semi Cape Cod FS er allt önnur en Samherji hélt á lofti þegar Namib­íu­málið kom upp í lok árs 2019 og mán­uð­ina þar á eftir. Samherji þrætti ítrekað fyrir að hafa átt eða stýrt Cape Cod FS á Marshall-eyjum: „Samherji á ekki og hefur aldrei átt Cape Cod FS og hefur aldrei falið öðrum að „leppa“ eign­ar­haldið á félag­inu,“ sagði útgerðin meðal ann­ars á vef­síðu sinni.  

Björgólfur Jóhanns­son, sem starf­aði um tíma sem for­stjóri Samherja eftir að Namib­íu­málið kom upp, hélt því líka fram að umfjöllun Kveiks og Stund­ar­innar um félagið væri byggð á illum vilja. Þetta sagði Björgólfur í stiklu sem Samherji lét fram­leiða um Cape Cod FS: „Að setja svona fram, það er tvennt sem kemur til greina, ann­að­hvort er það ill­vilji eða yfir­sjón.“

Stað­hæf­ingar Samherja þar sem útgerðin sór af sér Cape Cod FS voru svo einnig teknar upp í erlendum miðlum. 

Samherji hélt þess­ari sögu­skýr­ingu á lofti þrátt fyrir að DNB-bank­inn hefði sagt upp við­skiptum við Samherja meðal ann­ars vegna notk­unar félags­ins á þessu skatta­skjóls­fé­lagi til að greiða laun starfs­manna sinna.  Norski bank­inn var meðal ann­ars gagn­rýn­inn á milli­færslur af reikn­ingum Samherja til félags­ins á Marshall-eyjum. 

Athygli vekur að Samherji sleppti því hins vegar að minn­ast á Cape Cod FS þegar félagið greindi frá upp­gjör­inu við Skattinn á vef­síðu sinni.

Morg­un­blaðið fjall­aði hins vegar um þátt Cape Cod FS í sam­komu­lag­inu við Skattinn. Fram­setn­ing Morg­un­blaðs­ins á mál­inu bendir til að mið­ill­inn hafi haft gögn um sam­komu­lagið við skatt­inn undir höndum. Upp­lýs­ing­arnar í frétt Morg­un­blaðs­ins voru hins vegar, af ein­hverjum ástæðum, frekar tak­mark­aðar þrátt fyrir að aug­ljóst væri að blaðið væri með gögn undir höndum. 

Blaðið sagði að upp­gjör Samherja við Skattinn væri tví­þætt og að í til­felli Cape Cod FS sner­ist: „Ann­ars veg­ar er um að ræða end­ur­á­lagn­ingu á stað­greiðslu op­in­berra gjalda og trygg­inga­gjalds vegna áhafna sem störf­uðu sem verk­tak­ar á veg­um Cape Cod FS, sem þjón­ustaði fé­lög tengd Sam­herja um mönn­un, í ein­hverj­um til­vik­um Íslend­inga, á skip­um í rekstri sam­stæð­unn­ar er­lend­is. Það er mat Skatts­ins að Sam­herji beri ábyrgð á skil­um á tekju­skatti og trygg­inga­gjaldi vegna þeirra Íslend­inga sem störf­uðu á um­rædd­um skip­um, þrátt fyr­ir að þeir hafi starfað þar sem verk­tak­ar.“

Miðað við fyrri yfir­lýs­ingar Samherja, og nið­ur­stöð­una úr sam­komu­lag­inu við Skattinn, er ljóst að útgerðin hefur ekki sagt alveg satt og rétt frá um félagið Cape Cod FS og tengsl sín við það. Enda var það líka þannig að starfs­menn félags­ins, meðal ann­ars stýrðu banka­reikn­ingum félags­ins á Marshall-eyjum. 

Sakaði fjöl­miðla um ill­viljaBjörgólfur Jóhanns­son, starf­andi for­stjóri Samherja, sak­aði fjöl­miðla um ill­vilja út af umfjöllun um Cape Cod FS.

Norski bankinn vissi aldrei hver átti Cape Cod

Eign­ar­haldið á Cape Cod var sagt vera hjá starfs­manna­leigu á Kýpur sem heitir JPC Ship Mana­gement þegar félagið stofn­aði banka­reikn­inga hjá DNB  árið 2010. JPC var hins vegar aldrei raunu­veru­lega eig­andi Cape Cod FS.

Norski bank­inn fékk aldrei neina stað­fest­ingu á eign­ar­haldi félags­ins þrátt fyrir að Samherji hafi notað það í 8 ár til að flytja tæpa 10 millj­arða króna í gegnum það og greiða stafs­mönnum sínum laun.

Við­skipti Samherja við Cape Cod FS og JPC Ship Mana­gement, sem sagt var vera móð­ur­fé­lag Cape Cod frá árinu 2015, gengu þannig fyrir sig að Samherji gerði samn­inga við starfs­manna­leig­una um að hún myndi sjá Afr­íku­út­gerðum Samherja fyrir starfs­fólki, „Rússum“, sjó­mönnum frá Eystra­salts­lönd­unum, Úkraínu og Rúss­landi aðal­lega. Starfs­menn Samherja í Afríku gerðu svo verk­taka­samn­inga við Cape Cod FS á Marshall-eyjum sem greiddi þeim launin fyrir vinn­una. 

Í pen­inga­þvættt­is­fræðum eru slík félög, sem eng­inn virð­ist eiga eða stýra, kölluð  „rottu­holur“ því þau fram­kvæma hluti sem eng­inn virð­ist bera ábyrgð á. 

Ráðlögðu sjó­mönnum að skrá sig erlendisSjómenn sem störf­uðu hjá Sjóla­skipum og Samherja í Afríku lentu í skatt­rann­sóknum vegna þess að þeir héltu að þeir væru laun­þegar en útgerð­irnar litu á þá sem verk­taka. Frétta­tím­inn fjall­aði meðal ann­ars um mál þeirra árið 2016.

Fordæmi úr sögu Samherja og Sjólaskipa

Þetta fyr­ir­komu­lag með launa­greiðslur til íslensku sjó­mann­anna sem unnu hjá Samherja erlendis hefur áður verið umfjöll­un­ar­efni í fjöl­miðlum. Nokkrir af sjó­mönnum Samherja og Sjóla­skipa - Samherji keypti útgerð­ina af Sjóla­skipum 2007 - lentu í dóms­málum gegn íslenskum skatta­yf­ir­völdum vegna þess að skattur af launum þeirra var ekki greiddur til Íslands. Þetta voru meðal ann­ars sjó­menn sem unnu hjá Sjóla­skipum og Samherja í Marokkó og Márit­aníu. Samherji hélt því fram að starfs­menn­irnir hefðu verið verk­takar en sjó­menn­irnir héldu að þeir hefðu verið laun­þegar. Nið­ur­staðan var sú að eng­inn skattur var greiddur af launum þeirra neins staðar, hvorki í Afríku né á Íslandi. Skatta­yf­ir­völd end­uðu á því að fella niður mál fjölda sjó­manna sem lentu í þessu. 

Það fyr­ir­komu­lag sem vinna Cape Cod FS sner­ist um var því þekkt: Samherji taldi hag­kvæmt að hafa verk­taka í vinnu hjá sér sem fengu svo greidd laun í skatta­skjóli. Þannig þurfti útgerðin ekki að greiða stað­greiðslu af launum eða launa­tengd gjöld. 

Eitt sem kannski þarf líka að hafa í huga í þessu sam­hengi er að Samherji hefur lengi litið á stað­greiðslu skatta og trygg­ingjalda af launum starfs­manna sem sínar skatt­greiðslur, það er að segja skatt­greiðslur Samherja. Þegar félagið hefur greint frá árs­upp­gjörum sínum hefur það yfir­leitt spyrt þessum tveimur tölum saman eða þá haldið þeim aðskildum og nefnt skatt­greiðslur af launum starfs­manna sér­stak­lega. Í umfjöllun á heima­síðu félags­ins um upp­gjör þess árið 2017 sagði til dæmis: „Samherji er áfram í hópi stærstu skatt­greið­enda lands­ins og greiddu Samherji og starfs­menn um 5,1 millj­arð til hins opin­bera á Íslandi árið 2017.“

Þannig virð­ist sú hugsun hafa verið fyrir hendi hjá Samherja að með því að þurfa ekki að greiða stað­greiðslu af launum starfs­manna, meðal ann­ars vegna þess að þeir voru skil­greindir sem verk­takar sem fengu greidd laun úr skattaa­skjóli, þá hafi fyr­ir­tækið verið að spara sér veru­lega fjár­muni. Þetta er sann­ar­lega rétt mat hjá Samherja því fyr­ir­tæki þarf auð­vitað að borga minna ef það greiðir ver­taka milljón í verk­taka­laun en ef það greiðir starfs­manni sömu upp­hæð plús launa­tengd gjöld. 

Skatt­ur­inn virð­ist hins vegar ekki hafa verið sam­mála Samherja um að útgerðin hafa mátt gera þetta svona. 

DNB og fjármálaeftirlit sögðu Cape Cod hluta af samstæðu Samherja

Eins og Stundin fjall­aði um árið 2019 þá leit við­skipta­banki Samherja, DNB í Noregi, svo á að Cape Cod væri hluti af sam­stæðu Samherja enda var félagið fjár­magnað af íslensku útgerð­inni til að greiða laun starfs­manna hennar erlendis.

Um 9 millj­arðar króna fóru frá Samherja til Cape Cod FS á árunum 2011 til 2018. Félög Samherja erlendis, meðal ann­ars Esja Seafood og félög Samherja í Namibíu, fjár­mögn­uðu Cape Cod, enda var félagið notað til að greiða laun sjó­manna Samherja í Afríku á grund­velli samn­inga við starfs­manna­leig­una JPC Ship Mana­gement. Félagið Esja Seafood, eitt helsta eign­ar­halds­fé­lag Samherja erlendis, milli­færði til dæmis 324 sinnum inn á banka­reikn­inga Cape Code FS, oft ansi háar fjár­hæðir eða meira en milljón Banda­ríkja­doll­ara.

Norska fjár­mála­eft­ir­litið komst að sömu nið­ur­stöðu í skýrslu sem það vann um DNB-bank­ann og slæ­legar varnir hans gegn pen­inga­þvætti í fyrra. Norska Rík­is­út­varpið orð­aði það sem svo að fjár­mála­eft­ir­litið „húð­fletti“ DNB-bank­ann vegna máls­ins.  „Bankinn virð­ist hafa haldið að við­skipta­vin­ur­inn væri hluti af Sam­herj­a­sam­stæð­unni frá því að hann gerð­ist við­skipta­vinur fram til 2017, án þess að þetta kæmi fram í nokkrum gögnum sem tengj­ast við­skipta­sam­band­inu.“

Sekt upp á 6 milljarða króna

Norska fjár­mála­eft­ir­litið end­aði á því að sekta DNB-bank­ann um 400 millj­ónir norskra króna eða um 6 millj­arða króna vegna slæ­legs eft­ir­lits hans með milli­færslum við­skipta­vinar síns, Samherja og tengdra félaga. Ástæða sekt­ar­innar var sú að DNB-bank­inn horfði í gegnum fingur sér með 9 millj­arða króna milli­færslur af reikn­ingnum Samherja til félags í skatta­skjóli sem einnig var við­skipta­vinur bank­ans en DNB fékk aldrei neina stað­fest­ingu á hver ætti.

Staðan er því sú að ef Samherji sagði satt og rétt frá um eðli Cape Cod FS, að útgerðin hefði ekki tengst félag­inu og notað það með þeim hætti sem fjöl­miðlar lýstu, þá byggir sá hluti sam­komu­lags Skattssins við Samherja á mis­skiln­ingi. Auk þess byggj­ast túlk­anir og nið­ur­stöður DNB-bank­ans og norska fjár­mála­eft­ir­lits­ins þá einnig á mis­skiln­ingi.

Hinn mögu­leik­inn er sá að Samherji hafi ein­fald­lega ekki sagt satt og rétt frá á sínum tíma um til­gang Cape Cod FS og tengsl útgerð­ar­innar við skatta­skjóls­fé­lagið. 

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Ég velti því fyrir mér hvort sérstakur hafi óskað eftir upplýsingum um fjármál Samherjafyrirtækja hjá DNB og upplýsingum frá Kýpur... a.m.k. eru öngvar dómsbeiðnir sjáanlegar varðandi slíkt á hvorugum staðnum. Sem er frekar skrýtið því DNB var sektað fyrir slælegt eftirlit varðandi grunað peningarþvætti Samherja... sem Mellon Bank bandaríski vakti víst athygli á og Kýpversk yfirvöld sáu sig tilneydd til að reka yfirlögfræðing Samherja Örnu Mcluri sem ræðismann sinn án nokkurs fyrirvara og án skýringa. Fjársekt íslenska skattsins er auðvitað bara hlægileg upphæð enda var jú búið að ryðja Bryndísi út og innlima skattrannsóknarstjóraembættið undir "réttan" hatt. Það gleymist að Kýpversk yfirvöld geta blandað sér í leikinn því þetta voru jú fyrirtæki þarlend... þó svo þau væru offshore. Og það eru næg tengsl við USA til að DOJ blandi sér í málið enda segir sagan að þau hafi ræskt sig hressilega við norsarann. Svo Samherji er langt í frá hólpinn þó svo vinarvæðingin geri það sem hún getur... hérlendis.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár