Halla Hrund og Katrín eru hnífjafnar

Baldur Þór­halls­son, Katrín Jak­obs­dóttir og Jón Gnarr hafa öll tapað fylgi frá miðjum apr­íl­mán­uði á meðan að Halla Hrund Loga­dóttir hefur rúm­lega fimm­faldað sitt fylgi sam­kvæmt kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar.

Halla Hrund og Katrín eru hnífjafnar
Sjálfa Þeir fjórir fram­bjóð­endur sem mæl­ast með mest fylgi mætt­ust í fyrsta sinn í Pressu fyrir viku. Halla Hrund Loga­dóttir ákvað að smella af þeim sjálfu af því til­efni. Mynd: Golli

Rétt tæpur mán­uður er til for­seta­kosn­inga og frestur til að skila inn gildum fram­boðum rann út fyrir viku síðan. Fyrir liggur að tólf ein­stak­lingar munu kepp­ast um að verða næstu ábú­endur á Bessa­stöðum. Þeir hafa aldrei verið fleiri. 

Að með­al­tali hafa verið gerðar þrjár skoð­ana­kann­anir á viku und­an­farið, ein frá Gallup, ein frá Maskínu og ein frá Prósent. Nú fer þeim fjölg­andi og í gær bætt­ist Félags­vís­inda­stofnun í hóp þeirra sem kanna stöðu mála. Búist er við tveimur könn­unum í dag, annarri frá Maskínu síð­degis og svo frá Gallup í kvöld.

Heim­ildin hefur nú þegar keyrt átta kosn­inga­spár í sam­starfi við dr. Baldur Héð­ins­son, en hann hann­aði kosn­inga­spálíkan fyrir ára­tug sem vigtar fyr­ir­liggj­andi kann­anir og spáir um lík­leg­ustu nið­ur­stöðu. 

Í nýj­ustu spánni er staðan þannig að Katrín Jak­obs­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri eru hnífjafnar í efsta sæti. Katrín mælist með 26,1 pró­sent fylgi á meðan að 26,0 pró­sent segj­ast ætla að kjósa Höllu Hrund. 

Skammt á hæla þeirra kemur Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, með 24 pró­sent. Ekki er mark­tækur munur á fylgi þess­ara þriggja og því ljóst að það stefnir í mjög spenn­andi kosn­inga­bar­áttu. Jón Gnarr, leik­ari og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í Reykja­vík, er eini fram­bjóð­and­inn utan þeirra þriggja sem mælist með tveggja stafa fylgi, en alls segj­ast 12,3 pró­sent ætla að kjósa hann. Stuðn­ingur við hann hefur farið mjög þverr­andi í síð­ustu könn­unum.

Fleiri færa sig yfir á efstu frambjóðendur

Frá því að fyrsta kosn­inga­spáin var keyrð 13. apríl hefur Halla Hrund rúm­lega fimm­faldað fylgi sitt. Hún er eini fram­bjóð­and­inn sem hefur bætt við sig fylgi frá þeim tíma. Katrín hefur tapað 4,9 pró­sentu­stigum, Jón 6,7 pró­sentu­stigum og Baldur tveimur pró­sentu­stigum. 

Sá hópur sem ætlar sér að kjósa ein­hvern af þeim fjórum fram­bjóð­endum sem mæl­ast nú með mesta fylgið hefur líka verið að þétt­ast. Alls mæl­ast þeir nú með 88,4 pró­sent sam­eig­in­legt fylgi en alls sögð­ust 81 pró­sent ætla að kjósa þau fjögur rétt fyrir miðjan apríl. 

Þeir fram­bjóð­endur sem kom­ast næst efstu fjórum eru Halla Tóm­as­dóttir, for­stjóri B Team, sem bauð sig líka fram til for­seta árið 2016, og Arnar Þór Jónsson, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi dóm­ari. Alls segj­ast 4,2 pró­sent ætla að kjósa Höllu en 3,4 pró­sent Arnar Þór. Þá segj­ast 1,5 pró­sent ætla að kjósa Stein­unni Ólínu Þor­steins­dóttur leikkonu en öll þrjú hafa tapað fylgi frá því að fyrsta kosn­inga­spáin var keyrð. Hinir fimm fram­bjóð­end­urnir mæl­ast svo sam­tals með 2,5 pró­sent.

Allt öðruvísi fylgisdreifing en fyrir átta árum

Athygl­is­vert er að bera stöðu mála nú saman við kosn­inga­spá sem fram­kvæmd var þegar sami tími var til kosn­inga síð­ast þegar nýr for­seti var kos­inn á Íslandi, sum­arið 2016. Þá var strax mun skýr­ari mynd komin á lík­lega nið­ur­stöðu. Guðni Th. Jóhann­es­son, sem vann og hefur setið sem for­seti síð­ast­liðin tæp átta ár, mæld­ist þá með yfir­burða­for­skot á hina átta fram­bjóð­end­urna sem sótt­ust eftir emb­ætt­inu með 60,5 pró­sent stuðn­ing. Sá sem mæld­ist með næst­mestan stuðn­ing tæpum mán­uði fyrir kosn­ing­arnar þá var Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og nú rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins. Fylgi hans var þó ein­ungis þriðj­ungur af fylgi Guðna, eða 20,3 pró­sent. 

Guðni mæld­ist með yfir 50 pró­sent fylgi í öllum kosn­inga­spám þangað til í vik­unni fyrir kosn­ing­arnar. Í síð­ustu kosn­inga­spánni sem fram­kvæmd var þá var fylgi hans 45,8 pró­sent, eða heilum 27,6 pró­sentu­stigum yfir næsta fram­bjóð­anda. Þegar talið var upp úr kjör­köss­unum reynd­ist fylgi Guðna enn minna, hann fékk 39,1 pró­sent sem var 11,2 pró­sentu­stigum yfir þeim sem lenti í öðru sæti. Sú mikla sveifla bendir til þess að fjöldi kjós­enda sé til­bú­inn til að end­ur­skoða hvert hann setur atkvæði sitt undir lok kosn­inga­bar­átt­unnar og færa það á þann fram­bjóð­anda sem þeir geta helst sætt sig við á meðal þeirra sem eiga raun­hæfan mögu­leika á sigri, frekar en að „sóa“ atkvæð­inu á sinn upp­á­halds fram­bjóð­anda sem kann­anir sýna að litlar sem engar líkur séu á að geti sigrað. 

Halla Tómasdóttir á svipuðum stað og 2016

Sá fram­bjóð­andi sem tók mest til sín á loka­sprett­inum 2016 var Halla Tóm­as­dóttir. Tæpum mán­uði fyrir kosn­ingar mæld­ist hún með 3,8 pró­sent fylgi, eða aðeins minna en hún mælist með í dag. Fyrri reynsla ætti því að gefa Höllu byr í seglin, enda end­aði hún með 27,9 pró­sent atkvæða. Hinir tveir fram­bjóð­end­urnir sem fengu tveggja stafa fylgi þá – Davíð sem end­aði með 13,7 pró­sent og Andri Snær Magnason rit­höf­undur sem end­aði með 14,3 pró­sent – end­uðu báðir með minna fylgi en síð­asta kosn­inga­spáin benti til þess að þeir væru að mæl­ast með. Þeir tólf fram­bjóð­endur sem sækj­ast eftir því að verða næsti for­seti mæt­ast í fyrsta sinn allir í kapp­ræðum á RÚV í kvöld en fjórir efstu sam­kvæmt kosn­inga­spánni mætt­ust í Pressu á Heim­ild­inni fyrir viku. Halla Tóm­as­dóttir, Arnar Þór, Steinunn Ólína og Helga Þór­is­dóttir, for­stjóri Per­sónu­verndar, mæt­ast í Pressu í hádeg­inu í dag. 

Þær kann­anir sem teknar eru gildar í kosn­inga­spánni verða að upp­fylla lág­marks­skil­yrði töl­fræði­legrar aðferða­fræði. Þar er litið til stærðar úrtaks­ins, fjölda svar­enda, könn­un­ar­tíma­bils og þess hvort úrtakið stand­ist kröfur til að reyn­ast mark­tækt, svo fátt eitt sé nefnt.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Fyrir þingkosningarnar 2017 var eitt af kosningaloforðum Katrínar að HÆKKA veiðigjöldin.

    Eftir kosningarnar 2017 lagðist Katrín og hirð hennar í sæng með flokki hins siðblinda Bjarna Ben.

    Áður hafði flokkur hennar lýst því yfir að Sjálfstæðisflokkurinn væri helsti pólitískur andstæðingur VG.

    Eftir þingkosningarnar 2017 var það eitt fyrsta verk nýju ríkisstjórnar Katrínar að LÆKKA veiðigjöldin.

    Katrínu er hreinlega ekki treystandi. Hún á EKKERT erindi á Bessastaði !!!
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið undanfarið ár