Samherji og tengd félög hafa greitt um hálfan milljarð vegna skattamála

Sam­herj­a­sam­stæðan hefur geng­ist við því að hafa ekki greitt skatta á Íslandi sem áttu að renna í rík­is­sjóð. Með því að und­ir­gang­ast sátt um að end­ur­greiða skatta­skuld­ina ásamt álagi og drátt­ar­vöxtum er skatta­máli Samherja lokið. Rannsókn hér­aðs­sak­sókn­ara á öðrum lög­brotum er þó enn í fullum gangi.

Samherji og tengd félög hafa greitt um hálfan milljarð vegna skattamála
Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri Samherja. Mynd: Davíð Þór

Samherji hf. og tengd félög hafa geng­ist við því að hafa ekki greitt skatta í sam­ræmi við lög og reglur vegna félaga í eigu sam­stæð­unnar erlendis. Sam­stæðan taldi fram tekjur sínar að nýju og greiddi allt það sem Skatt­ur­inn gerði kröfu um að hún myndi greiða. Þegar með er talin greiðsla vegna van­gold­inna skatta sem barst í fyrra frá Færeyjum, og átti lögum sam­kvæmt að greið­ast á Íslandi, hefur Sam­herj­a­sam­stæðan greitt nálægt hálfum millj­arði króna til íslenskra skatta­yf­ir­valda vegna van­gold­inna skatta og álags á einu ári. Þá á eftir að reikna drátt­ar­vexti á skuld­ina, en hluti hennar er frá árinu 2012. Samherji gerði ekki ágrein­ing um neitt þeirra atriða sem skatta­yf­ir­völd töldu að fælu í sér skatta­snið­göngu. Stundin hafði í nóv­em­ber greint frá því hverjar kröfur Skatts­ins á hendur Samherja væru.

Nokkur mál

Greiðsl­urnar skipt­ast þannig að Samherji hf. greiddi 60 millj­ónir króna í við­bót­ar­skatta vegna þess að félagið stóð …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár