Ráðamenn verði að tala skýrar við þjóðina um varnarmál

Innrás Rússa í Úkraínu var eitt umtal­að­asta frétta­mál síð­asta árs enda hefur hún haft gríð­ar­leg áhrif á fólkið þar í landi sem og í Evrópu allri. Nálægð stríðs­ins hefur vakið vanga­veltur um varn­ar­mál víðs vegar og þar á meðal hér á landi. Pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands ræddi við Heim­ild­ina um hvað myndi ger­ast ef ráð­ist yrði á Ísland en hann segir stjórn­völd verða að fara úr hjól­förum kalda stríðs­ins.

Ráðamenn verði að tala skýrar við þjóðina um varnarmál

„Það er svo mik­ill tepru­skapur í gangi í umræð­unni hér að menn veigra sér við að ræða við­veru varn­ar­liðs, loft­varn­ar­kerfi og eld­flauga­varn­ar­kerfi en á sama tíma á sér stað heil­mikil upp­bygg­ing á örygg­is­svæð­inu í Keflavík. En sumir stjórn­mála­menn virð­ast vilja halda umræð­unni niðri.“

Þetta segir Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands, í sam­tali við Heim­ild­ina en á dög­unum gagn­rýndi hann til­lögu for­sæt­is­ráð­herra um breyt­ingu á þings­álykt­un um þjóðarör­yggi sem kom fram seint á síð­asta ári. 

Umræðan um varn­ar­mál hér á landi hefur lengi verið lituð af orð­ræðu kalda stríðs­ins og gerir það jafn­vel enn. Þarf Ísland á varn­ar­liði að halda? Á Ísland að vera í Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO) eða ekki? Baldur segir að varn­ar­mála­um­ræða sé þó flókn­ari í nútíma­sam­fé­lagi en hinir tveir pólar kalda stríðs­ins og telur að stjórn­völd eigi aldrei að van­meta örygg­is­mál. 

Hann útskýrir að mik­il­vægt sé að hafa þrjár sviðs­myndir í huga. Í fyrsta lagi væri mögu­leiki á skemmd­ar­verkum á innviðum, í öðru lagi árás lít­illar sveitar óvina­hers og í þriðja lagi stig­mögn­uðum átökum og skærum í Norður-Atl­ants­hafi. 

„Aldrei hafa verið meiri líkur á því að átök breið­ist út í Evrópu frá því í lok seinni heims­styrj­aldar. Með því er ég ekki að segja að átökin í Úkraínu dreif­ist út en þann mögu­leika, að mínu mati, verður að taka meira með í reikn­ing­inn. Ástandið er svo alvar­legt – átökin þar eru lík­leg til að stig­magn­ast á næstu vikum og mán­uðum. Rússar virð­ast vera að und­ir­búa stór­sókn og Úkra­ínu­menn und­ir­búa sig undir hana,“ segir hann. 

Fyrst og fremst áhyggjur af skemmdarverkum

Baldur segir að taka verði útbreiðslu átak­anna, hvort sem það yrði vegna óvilja­verks eða í ákveðnum til­gangi, með í reikn­ing­inn. „Mér finnst mjög mik­il­vægt að við, jafnt sem önnur ríki, grípum til ráð­staf­ana með það í huga. Að þessu sögðu þá á eng­inn von á ein­hverri alls­herj­ar­inn­rás í landið eins og inn­rás Rúss­lands­hers í Úkraínu. Menn eiga ekki von á því. Það er ekki það sem verið er að tala um. En við höfum ein­fald­lega séð að það hafa verið unnin skemmd­ar­verk í nágranna­ríkjum okkar, aðild­ar­ríkjum að NATO. Og það eru fyrst og fremst skemmd­ar­verk sem við þurfum að huga að en líka, að mínu mati, ein­hverri svona tak­mark­aðri árás óvina­sveitar sem ef til vill er ekki hægt að rekja hvaðan kemur. Þannig hafa til dæmis rúss­nesk stjórn­völd hagað sínum hern­aði. Þeir senda inn sveitir sem erfitt að er að rekja beint til þeirra.“

„Og það eru fyrst og fremst skemmd­ar­verk sem við þurfum að huga að en líka, að mínu mati, ein­hverri svona tak­mark­aðri árás óvina­sveitar sem ef til vill er ekki hægt að rekja hvaðan kemur.“

Enn fremur verði að taka með í reikn­ing­inn að Rússland sé að stór­efla flot­ann sinn norðan við Ísland í Síberíu. „Á meðan rúss­neski land­her­inn á aug­ljós­lega í veru­legum vand­ræðum í Úkraínu, en flug­her þeirra virð­ist ekki vera upp á sitt besta, þá er sjó­her­inn það sem þeir eiga helst eftir. Og hann í raun­inni getur ekki með góðu móti athafnað sig í Svarta­hafi vegna þess að Bospor­ussund er lokað fyrir umferð her­skipa rúss­neska flot­ans. Hvar getur þá rúss­neski her­inn athafnað sig? Það er einmitt hérna fyrir norðan okkur í haf­inu í kringum landið ef átökin stig­magn­ast í Evrópu.“

Verður að huga vel að orku- og fæðuöryggi

Varðandi fyrstu sviðs­mynd­ina þá segir Baldur að Íslend­ingar verði að huga sér­stak­lega að fjar­skipta- og net­vörnum. „Við verðum að huga sér­stak­lega vel að orku­innviðum lands­ins og birgða­flutn­ingum til og frá land­inu og sæstrengjum sem liggja til lands­ins.“ Hann bendir á að stjórn­völd hafi hugað að mörgum þessum þáttum en flestir þeirra séu í höndum Íslend­inga, nema hugs­an­lega sæstrengirnir þar sem nágranna­ríkin komi þar að. „Orku­ör­yggi, fæðu­ör­yggi og net- og fjar­skipta­ör­yggi er að stórum hluta til í hendi Íslend­inga sjálfra og það hefur verið stigið veiga­mikið skref til að tryggja öryggi á þessum sviðum á und­an­förnum mán­uðum.“

Baldur segir að það hafi vakið athygli hans að ráð­herrar hafi stigið fram og sagt að stjórn­völd hafi dregið lapp­irnar í þessum mála­flokkum, að þau séu engan veg­inn nægi­lega und­ir­búin og að það þurfi stór­á­tak til til að efla fjar­skipta- og net­ör­yggi, fæðu- og birgða­ör­yggi og orku­ör­yggi. „En þeir eru að stíga skref til að vinna í þessum mála­flokkum,“ bætir hann við. 

Íslendingar hafa ekki þekkingu eða mannafla til að stofna her

Varðandi aðra sviðs­mynd­ina, þar sem óvina­sveitir gætu látið til skarar skríða í eða við landið, þá nefnir Baldur að á meðan sér­sveit rík­is­lög­reglu­stjóra sé undir það búin að geta tek­ist á við tak­mark­aða hryðju­verkaógn þá sé hún ekki undir það búin að ráða við lít­inn her­afla – þó hann yrði lít­ill. „Ég veit ekki til þess að sér­sveitin sé búin undir það að ráða við litla her­sveit.“ 

Hvernig ættu þá Íslend­ingar nokkurn tím­ann að geta varist ef her myndi ráð­ast inn í landið – lít­ill eða stór – þar sem landið er her­laust? Þyrftum við hvort sem er ekki alltaf að treysta á utan­að­kom­andi aðstoð?

Baldur segir að eng­inn vilji sé til þess að stofna her eða varn­ar­lið hér á landi enda hafi Íslend­ingar hvorki þekk­ingu né mann­afla til að gera það. „Ég held að það sé betra heima setið en af stað farið hvað það varðar. Við eigum þá að njóta aðstoðar banda­lags­ríkja okkar. En vand­inn við tak­mark­aða árás óvina­sveitar, til dæmis á Kefla­vík­ur­flug­völl eða á orku­inn­viði, stjórn­ar­ráðs­bygg­ingar eða fjöl­miðla á Íslandi er spurn­ingin: Hverja getum við kallað til?“

Þá seg­ist hann vilja fá svör frá ráða­mönnum. „Hvenær koma banda­lags­ríki okkar til bjargar? Ef árás óvina­sveitar væri tak­mörkuð þá er ekki endi­lega víst að Atl­ants­hafs­banda­lagið sé til­búið að virkja 5. grein sátt­mál­ans sem segir að árás á eitt ríki sé árás á öll. Það þarf form­lega að virkja hana. Hún virkj­ast ekki sjálf­krafa.“

Hann bendir á að ekki sé víst að þessi grein virk­ist, sér­stak­lega ekki í stig­mögnun átaka í Evrópu. „Þá segja banda­lags­ríkin kannski: Það er bara betra ef þið glímið við þetta sjálf.“ Baldri finnst mik­il­vægt að ráða­menn tali skýrar við þjóð­ina og útskýri á hvaða tíma­punkti banda­lags­ríkin kæmu til aðstoðar í tak­mark­aðri árás óvina­sveita.

Fimmta greinin yrði virkjuð ef til mikilla átaka kæmi

Þegar kemur að síð­ustu sviðs­mynd­inni ef veru­leg stig­mögnun átaka ætti sér stað í Norður-Atl­ants­hafi eða ef annað ríki hrein­lega beindi sjónum sínum að Íslandi og réð­ist á landið með stýriflaugum eða loft­árásum, þá finnst Baldri liggja í augum uppi að þessi 5. grein Atl­ants­hafs­sátt­mál­ans yrði virkjuð og banda­lags­ríkin myndu líta á slíka árás á Ísland sem árás á þau og þá myndu þau koma til aðstoðar. 

„Vandinn eða það flókna við hernað í dag er að sjaldn­ast er það eitt ríki sem ræðst á annað ríki. Hernaður er orð­inn í miklu meira mæli skemmd­ar­verk – tak­mark­aðar árásir þar sem upp­runinn er óljós. Að þessu öllu sögðu langar mig að nefna að það sé mjög sér­stakt að við sem banda­lags­ríki í NATO end­ur­metum ekki sjálf þann við­búnað sem þarf að vera hér á Íslandi til þess að verj­ast þessum þáttum sem ég nefndi áðan.“

Hann segir að Íslend­ingar hafi staðið sig ágæt­lega í fyrsta þætt­inum en alls ekki nægi­lega vel í hinum – þeim sem lúta að her­vörnum. Mörg önnur lönd hafi end­ur­metið hvaða varn­ar­við­bún­aður þarf að vera til staðar til þess að takast á við hugs­an­legar árásir, stórar eða litlar. „Að mínu mati höfum við ekki hugað nægi­lega að því.“ 

Skiptir mestu máli fyrir lítil ríki að fyrirbyggja árás

Baldur telur að stjórn­völd hafi unnið vel að svoköll­uðum fjöl­þáttaógnum eða almanna­varna­hlut­anum en hann gagn­rýnir að í raun sé ekki minnst á her­varnir. „Ég hef verið að kalla eftir því að stjórn­völd reyni að meta það sjálf og síðan í sam­vinnu við banda­lags­ríki hvaða varn­ar­við­búnað við viljum sjá á örygg­is­svæð­inu í Keflavík en ekki láta öðrum það eftir – vegna þess að Banda­ríkin, sem hafa haft mest um varn­ar­við­búnað í Keflavík að segja eins og er, geta haft ann­arra hags­muna að gæta heldur en við. Til dæmis hafa þeir mikla hags­muni af því að rúss­neskir kaf­bátar með kjarn­orku­vopn sigli ekki á Norður-Atl­ants­hafi og í raun­inni leggi fyrir utan Man­hattan og ógni stór­borgum í Banda­ríkj­unum. 

Auðvitað er þetta hags­muna­mál fyrir okkur líka en kannski skiptir okkur meira máli að hafa hér tak­markað erlent varn­ar­lið. Kannski skiptir meira máli fyrir okkur að vera með loft­varnir allt árið um kring. Við erum eina aðild­ar­ríki NATO sem ekki er með loft­rým­is­gæslu allt árið um kring. Það getur líka skipt okkur meira máli að vera með eld­flauga­varn­ar­kerfi og loft­varnir til að verj­ast hugs­an­legum stýriflaugum.“

Hann talar um tepru­skap stjórn­mála­manna þegar kemur að umræðu um þessi mál og segir hann að slíkt geri ekki gott þegar kemur að fæl­ing­unni. „Það skiptir mestu máli fyrir lítil ríki að verða ekki fyrir árás – að fyr­ir­byggja árás. Vegna þess að það er svo auð­velt að ná yfir lítil ríki.“ Í til­felli Íslands þá bendir hann á að auð­veld­ara sé að slíta teng­ingu lands­ins við umheim­inn heldur en til dæmis Þýska­lands. Miklu auð­veld­ara sé að leggja Ísland hern­að­ar­lega undir sig á nokkrum dögum en Úkraínu. „Lítil ríki eru við­kvæm­ari fyrir árás og þess vegna verða þau að nota fæl­ing­ar­mátt­inn frekar en þau stóru og reyna að tryggja að á þau verði ekki ráð­ist.“

„Það skiptir mestu máli fyrir lítil ríki að verða ekki fyrir árás – að fyr­ir­byggja árás. Vegna þess að það er svo auð­velt að ná yfir lítil ríki.“

Honum finn­ast nýjar til­lögur um breyt­ingar á þjóðar­ör­ygg­is­stefn­unni ekki taka til­lit til mik­il­vægis fæl­ing­ar­innar.

Viðkvæmt mál við ríkisstjórnarborðið

Varn­ar­mál á Íslandi hafa verið mjög umdeild á Íslandi í gegnum tíð­ina og skipar fólk sér iðu­lega í tvær fylk­ingar hvað þau varðar. Ísland úr NATO, her­inn burt var eitt fræg­asta slag­orð and­stæð­inga varn­ar­liðs Banda­ríkja­hers í Keflavík á síð­ustu öld. Vinstri græn hafa frá stofnun flokks­ins árið 1999 haft það á stefnu­skrá sinni að fara úr NATO og á móti hefur sam­starfs­flokkur þeirra í rík­is­stjórn, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, verið fylgj­andi aðild. 

Baldur segir að nokkuð ljóst sé að þessar fylk­ingar gera umræð­una flókn­ari en hún þyrfti að vera. „Rík­is­stjórn­ar­sam­starfið er þannig sam­an­sett að þetta er mjög við­kvæmt. Menn ræða ekki upp­bygg­ing­una á varn­ar­svæð­inu eða varn­ar­mál almennt vegna þess að það hefur verið Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn í gegnum tíð­ina sem hefur verið öfl­ugur málsvari varn­ar­við­bún­aðar. En núna eru hendur hans bundnar. Maður sér það í umræð­unni.“

„Rík­is­stjórn­ar­sam­starfið er þannig sam­an­sett að þetta er mjög við­kvæmt.“

Þegar hann rýnir í þessar nýju til­lögur þá finnst honum þær bera vott um að Vinstri græn hafi ef til vill meiri áhrif á öryggis- og varn­ar­stefnu Íslands en virð­ist við fyrstu sýn. „Mér finnst það krist­all­ast í þessum til­lögum for­sæt­is­ráð­herra, sem er nátt­úr­lega for­maður VG, og það er ekki skrítið að til­lög­urnar taki mið af stefnu­málum hennar flokks.“ Hann telur að Vinstri græn trúi ekki að árás muni eiga sér stað hér á landi. „Þau trúa á hlut­leysi og að meira öryggi sé í því heldur en varn­ar­við­bún­aði,“ segir hann. 

„Mér finnst svo leið­in­legt í þess­ari umræðu að þegar maður fer að tala um þetta og benda á þessa fjöl­mörgu þætti þá reyna stjórn­mála­menn, sumir hverjir, að snúa út úr og ásaka mann um að maður vilji stofna íslenskan her. Ég vil nefna það sér­stak­lega að ég hef aldrei í umræð­unni lagt til að það verði stofn­aður íslenskur her. Aldrei. Ég tel það í raun algjör­lega óraun­sætt. Í fyrsta lagi höfum við enga þekk­ingu eða mann­afla til að gera það og það er eng­inn vilji til þess. Mér finnst það hug­mynd sem myndi ekki ganga upp. Það er miklu betra ef við þurfum á varn­ar­liði að halda að þeir sinni þeim hluta varn­anna sem eru til þess bærir.“

Íslendingar þurfa ekki að finna upp hjólið

Væri þetta aft­ur­hvarf til þess þegar Banda­ríkja­menn voru á Vellinum? Baldur segir að það sé eins og Íslend­ingar geti ekki tekið umræð­una án þess að ræða hvort hér eigi að vera her á land­inu eða ekki. „Varnir eru svo miklu meira og fjöl­þætt­ari en bara her.“ En hver er þá leiðin upp úr gömlum „skot­gröfum“ umræð­unnar um kalda stríðið? Baldur segir að Íslend­ingar þurfi ekki að finna upp hjólið. 

„Mér finnst að við þurfum að skoða hvað okkar nán­ustu nágranna­ríki eru að gera og banda­menn en það eru hin Norð­ur­löndin, hvernig þau fóru strax eftir inn­rás Rússa að end­ur­meta varn­ar­á­ætl­anir sínar og varnir sínar. Boða nýja varn­ar­stefnu og vinna það síðan fyrst sjálf og síðan í sam­vinnu við banda­lags­ríki sín. Sjáum bara hvernig aðrir gera þetta og gera það vel. Það er mjög vel vandað til þess­arar vinnu á öllum Norð­ur­lönd­unum,“ segir hann og vísar þar ekki ein­ungis til Sví­þjóðar og Finn­lands heldur einnig til Noregs og Dan­merkur. 

Þá bendir Baldur á að Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, hafi verið ötul að sækja leið­toga­fundi NATO og búin að skrifa undir fjöl­margar álykt­anir, bæði á vegum Atl­ants­hafs­banda­lags­ins sem og Norð­ur­land­anna um aukna sam­vinnu í varnar- og örygg­is­málum og hvað þurfi að gera. 

„En það er eins og þessi plögg séu einkum og sér í lagi til brúks erlendis. Að minnsta kosti ekki til brúks í íslenskri umræðu. Ég veit að við fylgjum þeim eftir innan NATO og ég vil ekki gera lítið úr því, en það er eins og það megi ekki taka þessi plögg, sem for­sæt­is­ráð­herra hefur skrifað undir, og ræða þau á mál­efna­legum nótum við íslenskan almenn­ing. Mér finnst það bara mjög mik­il­vægt. Ég vil í fyrsta lagi ekki útvista vanda­málum eins mikið og við höfum verið að gera og í öðru lagi vil ég að stjórn­mála­menn ræði við okkur, fólkið á göt­unni, íslenskan almenn­ing. Við verðum bara ein­hvern veg­inn að reyna að kom­ast upp úr þessum hjól­förum kalda stríðs­ins. Þau lita alla umræðu.“

„Við verðum bara ein­hvern veg­inn að reyna að kom­ast upp úr þessum hjól­förum kalda stríðs­ins.“

Baldur segir að lokum að það sé land­lægur hugs­un­ar­háttur á Íslandi að „þetta redd­ist“. „Ég held að sá hugs­un­ar­háttur liti þetta og við tökum þessi mál eig­in­lega ekki nægi­lega alvar­lega, að mínu mati.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PH
    Pétur Hilmarsson skrifaði
    Þjóðarminni Íslendinga um hernám, um her sem gerir menn ríka og um erlenda dáta sem draumur er að dansa við, hefur gert Íslendinga algerlega blinda á varnamál. Hefðum við orðið fyrir hernámi Þjóðverja eða Sovétríkjanna á sínum tíma þá væru viðhorfin önnur. Það er náttúrulega mikil hræsni að vera aðili að hernaðarbandalagi og vilja svo ekki taka neinn þátt í vörnum síns eigins land, hvorki í mannskap eða kostnaði. Helst höfum við viljað græða á öllu saman. Þjóðarframleiðsla Íslands er margföld á við sum Natólönd eins og Svartfjallaland 600 þúsund manna þjóð sem er með fjórðung af þjóðarframleiðslu Íslands eyðir um 2,5% af sinni þjóðarframleiðslu til varnarmála og heldur úti um 2300 manna herliði. Er eðlilegt að við séum að ætlast til þess að aðrir séu að verja okkur þegar við höfum engan vilja til þess sjálf.
    -1
  • Pétur Kristjánsson skrifaði
    Greinin er afleit. Baldur og aðrir hernaðarsinnar verða spyrja sig hverjir ættu að ráðast á Ísland og hvers vegna. Eini hvatinn fyrir erlent herlið á Íslandi er hermang fjármálaelítunnar. Nostalgían liggur m.a. í því að geta selt ameríska hernum t.d. málun á íbúðablokk á sama verði og það kostar að byggja slíka blokk í Reykjavík. Þannig gerðust hlutirnir í herstöðinni á Miðnesheiði á hernámsárunum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár