Ruben Östlund – stefnumót við snilling?

Berg­þór Más­son gerð­ist svo djarf­ur að redda sér fimmtán mín­út­um með Ru­ben Öst­lund.

Ruben Östlund – stefnumót við snilling?

Ruben Östlund hóf kvikmyndaferil sinn sem upptökumaður á skíðasvæðum Svíþjóðar og ólst upp á marxísku heimili. Að hans eigin sögn hefur þetta tvennt gert hann að manninum sem hann er í dag.

Östlund hefur unnið ógrynni verðlauna, er vinsæll hjá almenningi og virtur af gagnrýnendum. Síðustu þrjár myndir hans hafa farið sigurför um heiminn og sú nýjasta, Sorgarþríhyrningurinn, sérstaklega. Óhætt er að segja að það sé ekkert meira að frétta í Evrópu akkúrat núna en Ruben Östlund.

Á tímum þar sem karlkyns snillingurinn á undir högg að sækja, það er að segja á efsta yfirborði frjálslyndrar umræðu, skammast ég mín ekki fyrir að viðurkenna að ég er veikur fyrir honum. Hef alltaf verið og mun líklegast alltaf vera. Werner Herzog, Kanye West, Emmanuel Carrere, Andre 3000, Milan Kundera, Ruben Östlund? Þetta eru mínir menn og ég brosi þegar ég hugsa um þá.

Sýn mín á þá er þó ekki svo …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
2
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
4
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.
Gunnar Hersveinn
5
Pistill

Gunnar Hersveinn

Ást og hat­ur á tím­um óviss­unn­ar – að sjá og heyra en alls ekki skilja

Hvað ber að forð­ast og hverju að sækj­ast eft­ir þeg­ar blás­ið er í glæð­ur hat­urs og ótta? Gunn­ar Her­sveinn tvinn­ar sam­an lær­dóma úr tveim­ur bók­um, og dreg­ur álykt­an­ir. Heyr­ir þú hljóð­ið? Finn­ur þú hit­ann, lykt­ina? Sérðu tákn­in, merk­in í nátt­úr­unni og mann­heim­um? Við þurf­um að lesa í þau til að falla ekki í gryfju stríðs­menn­ing­ar, efla frið­ar­menn­ingu og um­gang­ast nátt­úr­una af virð­ingu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár