Meiri stéttavinkill í íslensku útgáfunni

Í þessu til­felli verður til speg­ill sem þegar hefur speglað tugi leik­stjóra frá jafn­mörgum löndum, skrifar Ásgeir H. Ing­ólfs­son sem skellti sér á bíó­mynd­ina Villi­bráð.

Meiri stéttavinkill í íslensku útgáfunni
Skað­ræðistól Per­són­urnar í Villi­bráð hlera síma­sam­skipti hver ann­ars – og auð­vitað fer það ekki vel.
Sjónvarp & Bíó

Villi­bráð

Gefðu umsögn

Við erum stödd í vest­urbæ Reykja­víkur. Sú stað­setn­ing er skýrt römmuð inn í upp­hafi Villi­bráðar, með skotum af Mela­búð­inni og fleiri kenni­leitum, hér virð­ast allir hafa verið skírðir í Vest­ur­bæj­ar­laug­inni og fermdir í KR-treyj­unni. Það hversu ræki­lega myndin er merkt ákveðnum stað minnir mann á hversu mikið lyk­il­at­riði stað­setn­ingin er í end­ur­gerðum, sama sagan fær stundum á sig allt annan blæ í nýju umhverfi – og þetta er í það minnsta 23. end­ur­gerðin á ítölsku mynd­inni Perfetti sconosciuti – og það eru tvær aðrar á leið­inni.

Þetta er fyrsta mynd Elsu Maríu Jak­obs­dóttur í fullri lengd, en hún vakti áður athygli fyrir stutt­mynd­ina Atelier, þar sem aðal­hlut­verkið var í vissum skiln­ingi rík­mann­legt en kulda­legt gler­hús. Húsið sem Villi­bráð ger­ist í er öllu hlý­legra, en þó ansi kulda­legt – enda virð­ast gest­gjafar og gestir mat­ar­boðs­ins flest reyk­vískur aðall í ein­hverjum skiln­ingi – það er meira að segja kvóta­erf­ingi við borðið. Aðal­per­són­urnar eru sjö: þrjú pör og fót­bolta­þjálf­ar­inn Pétur (Gísli Örn Garð­ars­son). Hann er sjö­unda hjólið, sá eini sem kom ein­sam­all.

Þetta eru erkitýpur. Sál­fræð­ing­ur­inn Eva (Nína Dögg) og lækn­ir­inn Rúnar (Hilmir Snær) halda boðið og þangað mæta kvóta­erf­ing­inn Björg (Þuríður Blær) og fót­bolta­bullan Þor­steinn (Björn Hlynur), sem eru nýbyrjuð saman og eru í enda­lausum sleik. Þriðja parið er athafna­konan Hildur (Aníta Briem) og Leifur (Hilmar Guð­jóns­son), leik­ari sem er að vinna á leik­skóla. Og svo áður­nefndur Pétur, sem er hjarta verks­ins og langtum athygl­is­verð­asta per­sónan. Heim­speki­lega þenkj­andi og sá eini sem hlustar meira en hann talar.

Fljót­lega berst svo talið að símum og ein­lægni í sam­böndum – sem endar á að þau fara í síma­leik þar sem allir símar eru lagðir á borðið og gest­irnir hlera síma­sam­skipti hver ann­ars þar sem eftir lifir kvölds – og auð­vitað fer það ekki vel.

Tunglmyrkvar og eldgos

Tungl­myrkvi rammar ítölsku mynd­ina inn, sem og margar aðrar end­ur­gerð­irnar, en nýliðið eld­gos er notað til hins sama í íslensku útgáf­unni – og þau innslög eru oft eins og hálf­gert hlé í leik­húsi, mögu­leg áhrif leik­skálds­ins Tyrfings Tyrf­ings­sonar sem skrifar hand­ritið með Elsu Maríu. Framan af er atburða­rásin keim­lík í Villi­bráð og ítalska org­inalnum, en mun­ur­inn liggur ann­ars staðar. Ítalska myndin er um margt ljúfari og sú íslenska kald­hæðn­ari – ef þú vilt finna sam­kennd með per­són­unum hentar sú ítalska þér betur. Þá er miklu meiri stétt­ar­vink­ill í þeirri íslensku en þeirri ítölsku, þau ítölsku virka flest eins og almúga­fólk en það er megn uppafnykur af þeim íslensku. Þó tala þau ítölsku mörg það lítið um vinn­una að það er erf­ið­ara að ráða í stétt þeirra og stöðu.

Stóri mun­ur­inn er þó sá að íslensku per­són­urnar virð­ast allar fæddar á sama árinu, á sama blett­inum, fara í sömu heilsu­rækt­ina og sömu hár­greiðslu­stof­una. Ítölsku per­són­urnar eru hins vegar tölu­vert ólík­ari inn­byrðis og útlits­lega – og tveir karl­anna virð­ast þar að auki tölu­vert eldri en hinir gest­irnir, annar far­inn að grána í vöngum og hinn er ansi bangsa­legur við hlið­ina á tágrönnum vinum sínum. Það breytir allri dýnamíkinni tölu­vert – og raunar eru tveir brand­arar sem þýð­ast illa í íslensku útgáf­unni, af því mun­ur­inn á lík­am­legu atgervi er skyndi­lega horf­inn.

„Stóra tvistið verður miklu safa­rík­ara, dýpra og athygl­is­verð­ara í íslensku útgáf­unni.“

Lengstum eru mynd­irnar ansi jafnar að gæðum, sumt er betra á ítölsku og annað betra á íslensku. Sú ítalska hefur þó naum­lega vinn­ing­inn framan af, þökk sé meiri breidd í per­sónu­sköpun. Síðasta hálf­tím­ann er þó Villi­bráð mun betri. Bæði er blá­endir­inn ansi klaufa­legur hjá Ítölunum, en við það bæt­ist að stóra tvistið verður miklu safa­rík­ara, dýpra og athygl­is­verð­ara í íslensku útgáf­unni.

Snjall­sím­arnir eru svo grugguga galdra­tækið sem hrinda öllu af stað. Þessi tæki stjórna lífi okkar margra og því mesta furða hversu lítið þeir koma oft við sögu í bíó­myndum, mann grunar jafn­vel stundum að sumir leik­stjórar láti mynd­irnar sínar ger­ast fyrir 20 árum til þess eins að losna við þessa óværu. Þetta virð­ast að vísu fremur frum­stæðir síma­not­endur, nota mest bara sím­töl og skila­boð og hér vantar alveg heift­úð­ugar deilur á sam­fé­lags­miðlum, harð­orða tölvu­pósta og flókin öpp, en engu að síður er þetta vel heppnuð notkun á tækni sem er oft erfitt að finna stað í kvik­mynda­form­inu, enda sími nútíma­manns­ins oft­ast innri díalógur sem virkar sjaldn­ast spenn­andi utan frá, þegar maður sér aðra með and­litin föst í skjánum.

Leik­ur­inn í báðum myndum er svo almennt prýði­legur. Gísli Örn glansar í hinu eig­in­lega aðal­hlut­verki og eftir að hafa séð ævi­sögu Whitney Houston í Háskóla­bíói dag­inn áður þá fannst mér á köflum Björn Hlynur hrein­lega vera að leika Bobby Brown, þennan lúða sem öllu klúðrar en veður þó alltaf í kven­fólki af ein­hverjum óskilj­an­legum ástæðum. Þá eru þeir Hilmir Snær og Marco Giallini nán­ast sem sami maður í hlut­verki lækn­is­ins – en að öðru leyti eru lítil lík­indi á milli ítölsku og íslensku leik­ar­anna.

Í báðum myndum eru þó stór­leikkonur sem stela sen­unni, jafn­vel þótt hvorug þeirra fái bita­stæð­asta hlut­verkið. Aníta Briem hefur und­an­farið sýnt það mynd eftir mynd að það var ótrú­legur happa­fengur fyrir íslenskar kvik­myndir að fá hana aftur heim og ítalska stór­leik­konan Alba Rohrwacher sýnir enn og aftur að hún er með þeim bestu í Evrópu, horfið bara á þá mögn­uðu albansk-ítölsku mynd Karl­mennsku­eiður (Vergine giurata, Sworn Virgin á ensku) ef þið trúið mér ekki.

Drepið farsímann!

Ég á svo enn eftir að horfa á hinar mynd­irnar tutt­ugu – en þar koma einnig ýmsar stór­leikkonur við sögu, til dæmis Bérénice Bejo úr The Artist í frönsku útgáf­unni og Nadine Labaki í þeirri egyp­sku. Eins er skondið að skoða titl­ana, margir eru svip­aðir frum­mynd­inni og fjalla um algjör­lega ókunn­ugt fólk, Víetna­mar tala um Blóð­mánap­artí, Ung­verjar kalla sína útgáfu Gleði­legt ár og sú pólska nefn­ist (Ó)vinir – og þar sem ein leik­kona ítölsku mynd­ar­innar er pólsk-ítölsk leikur hún ein­fald­lega í þeim báðum. Kín­verjar eru svo með skemmti­leg­asta tit­il­inn, Drepið far­sím­ann!, og Rúss­arnir voru fyrstir til að gera fram­hald.

Kannski er þó helsta gildi þess­ara mynda, sem ku hafa sett heims­met í fjölda end­ur­gerða, að fá mann til þess að velta aðeins fyrir sér end­ur­gerð­inni sem list­formi. Það hefur löngum verið litið niður á end­ur­gerð­ina af kvik­mynda­skríbentum, nán­ast skylda að taka fram að upp­runa­lega myndin sé best – enda end­ur­gerðir oft stimpl­aðar sem amer­ískt pen­ingaplokk eftir leik­stjóra sem iðu­lega mis­skilja hvað gerði org­inal­inn góðan. Og vissu­lega eru dæmi um slíkt, sér­stak­lega þegar algjör meist­ara­verk eru end­ur­gerð, en ef við horfum til dæmis til leik­húss­ins má vel líta á hverja nýja upp­færslu á Shakespe­are og öðrum risum leik­hús­bók­mennt­anna sem end­ur­gerð – þar sem stundum er stað­fært og stundum ekki, en alltaf verða til ein­hver átök á milli upp­runa­lega verks­ins og þýð­ing­ar­innar, hvort sem það birt­ist í tungu­mál­inu, tím­anum eða öðru.

Þá geta end­ur­gerðir varpað for­vitni­legu ljósi á menn­ing­ar­lega núansa á milli þjóð­fé­laga og stað­bundnar tískur í list­sköpun, sem og auð­vitað mis­mun­andi túlk­un­ar­að­ferðir mis­mun­andi leik­stjóra og hand­rits­höf­unda. Og í þessu til­felli verður til speg­ill sem þegar hefur speglað tugi leik­stjóra frá jafn­mörgum löndum.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár