Vöfflujárnið sett í samband: Samningar takast fyrir 59 þúsund launþega

Byrjað er að hræra í vöfflu­deig í Karp­hús­inu þar sem við­ræður hafa staðið dag og nótt alla helg­ina á milli Samtaka atvinnu­lífs­ins ann­ars vegar og sam­flots iðn-, tækni- og versl­un­ar­fólks hins vegar.

Vöfflujárnið sett í samband: Samningar takast fyrir 59 þúsund launþega
Búið þegar það er búið Kristján Þórður, for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands­ins, segir að samn­ingur sé kom­inn á borðið en minnir á að engin nöfn séu kom­inn á und­ir­skrifta­lín­urnar.

„Þetta er ekki fast í hendi fyrr en nöfnin eru komin á það,“ segir Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands, um samn­ing sam­flots iðn- og tækni­fólks og versl­un­ar­manna, sem búið er að klára. Byrjað er að hræra í vöfflu­deig í Karp­hús­inu þar sem við­ræður hafa staðið dag og nótt alla helg­ina. Vísir sagði fyrstur frá. 

Kristján Þórður svarar því ekki beint hvort hann sé ánægður með samn­ing­inn og segir í stað­inn: „Staðan er þannig að það verður ekki kom­ist lengra að sinni, það er matið.“ Hann ítrekar þó líka að ekki sé búið að skrifa undir, þó boðað hafi verið til und­ir­skriftar klukkan 13.00. „Þetta er ekki búið fyrr en það er búið,“ segir for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands.

Elísabet S. Ólafs­dóttir, skrif­stofu­stjóri hjá Rík­is­sátta­semj­ara, segir að aðilar hafi náð saman í morgun eftir þá 20 klukku­stunda langan fund. Þá hafi menn og konur skroppið heim í lúr, sturtu …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    Það gerist ekkert meira eða merkilegt úr þessu í þeirri kjarasamninglotu sem nú stendur yfir, þökk sé Villa skagamanni, Aðalsteini húsvíkingi og hinum íhaldframsóknarkrötunum í Starfgreinasambandinu. Framhjá þeim auma afleik, sem lítur sannanst sagna út eins og vísvitandi óleikur viðkomandi lýðskrumara, kemst afgangurinn af verkalýðshreyfingunni ekki svo glatt framhjá, - nema svo vel vildi til að félagsmenn verkalýðsfélaganna felli felli þessa Villasmán íhaldsframsóknarkrataeðlisins.

    Þegar fólk var farið að gera sér vonir um að verkalýðshreyfingin, og einkum þá sá hluti hennar sem snýr að verkafólki, væri að endurnýja sig og hrista af sér langvarandi spillingardrungann og auðvaldsþjónkunina og verða öflug, róttæk og sterk, þá spruttu fram lýðskrumarar, sem fólk hafði sett traust sitt á, og eyðilögðu á augabragði það sem fólkið hélt að verið væri að byggja upp. Á þessari stundu veit enginn hvort, og þá hvenær, annað tækifæri til öflugrar samstöðu og sigra gefst á grundvelli heilbrigrar og róttækrar stéttarbaráttu þar sem samtakamátturinn skilar því sem stefnt var að. En svona fór um sjóferð þá, eins og svo margar slíkar á síðustu áratugum.

    Fyrir mann sem stendur álengdar og fylgist með, þá blasir við honum ráðalaus verkalýðshreyfing, sem hvað eftir annað tekur þjóðskipulag auðvalds, arðráns, nýfrjálshyggju og þjófræðis fram yfir skipulega stéttabaráttu fyrir betra samfélagi og verkalýðsvöldum. Nei, hálaunaðir lýðskrumarar, verkalýðsforstjórarnir, vilja ekki, þegar til kastanna kemur, rugga bátnum, - það gæti nefnilega ógnað ríkjandi ástandi; því svo samdauna eru þeir orðnir samtryggingu valdsins, alræði auðvaldsins og nýfjálshyggjunnar, að þeir telja það skyldu sína að verja þjóðskipulag arðræningjanna fyrir stéttabaráttu verkafólks.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu