965. spurningaþraut: Hvað vakti fyrir brennuvarginum?

965. spurningaþraut: Hvað vakti fyrir brennuvarginum?

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin hér að ofan er tekin í fang­els­is­garði árið 1913. Ætla má að þessir fjórir fangar hafi til­heyrt hópi sem var kall­aður ... hvað?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða jóla­sveinn kemur í dag?

2.  Kwasi Kwarteng var fjár­mála­ráð­herra um hríð í ... hvaða landi?

3.  Pediculus humanus capitis heitir dýr eitt á lat­ínu. Þótt þarna megi sjá orðið „humanus“, þá þýðir það ekki að dýrið sé mann­legrar ættar, heldur að dýrið er algjör­lega komið upp á mann­inn með til­veru sína. Menn eru þó ekki sér­lega ánægðir með dýr þetta og gera hvað­eina við að losna við það, eins og til dæmis for­eldrar vita. Hvaða dýr er þetta?

4.  Raquel Welch er nú 82 ára og lætur lítið fara fyrir sér, enda sest í helgan stein fyrir löngu. En hvað fékkst hún við á sínum sokka­bandsárum?

5.  Patty Hearst er hins vegar 68 ára. Hún komst í sviðs­ljósið vestan hafs og raunar um allan heim árið 1974. Hvers vegna?

6.  Frá hvaða landi kemur söng­stjarnan Justin Bieber?

7.  Artem­is­ar­hofið í Efesus (sem nú er í Tyrk­landi) var eitt af sjö undrum forn­aldar. Það bann til grunna árið 356 f.Kr. og var þar að verki Her­ostra­tus nokkur. Hvað vakti fyrir brennu­varg­inum með þessu skemmd­ar­verki?

8.  Í hvaða fræði­grein hefur Kristrún Frosta­dóttir próf?

9.  "Vertu ekki að plata mig, / þú ert bara að nota mig. / Ég er ekki eins og allar stelp­urnar / sem hoppa’upp í bíla, með hverjum sem er.“ Hver söng þetta á undan öðrum hér á landi?

10.  Hvað hét kona grísku sagna­hetj­unnar Ódysseifs sem beið hans í 20 ár meðan hann tók þátt í Tróju­stríð­inu og reyndi svo með erf­ið­is­munum að kom­ast heim til sín?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hverjir eiga þennan fána?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Potta­skef­ill, Potta­sleikir.

2.  Bret­landi.

3.  Lús. Þetta er raunar höf­uð­lús, sem er sér­stök teg­und, en lús dugar alveg eins og sér.

4.  Hún er kvik­mynda­leik­kona. „Kynbomba“ er líka rétt!

5.  Henni var rænt en gekk í lið með mann­ræn­ingj­unum. Meira þarf ekki til að fá stig.

6.  Kanada.

7.  Hann vildi verða frægur.

8.  Hagfræði.

9.  Sigríður Bein­teins­dóttir.

10.  Penelópa.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fang­arnir eru súf­fra­gettur. Þær börð­ust fyrir kosn­inga­rétti kvenna.

Á neðri mynd­inni er fáni Fær­ey­inga.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár