966. spurningaþraut: Stundum leitar maður ekki langt yfir skammt!


Fyrri auka­spurning:

Hver er þar við hljóðnema?

***

Aðal­spurningar:

1.  Bestu og vönduðustu handrit Íslendinga­sagna og annarra fornra rita eru yfirleitt rituð á ... hvernig skinn?

2.  Púma heitir kattardýr eitt sem lifir í tveimur heims­álfum. Hverjar eru þær?

3.  Benedikt Jóhannesson átti manna mestan þátt í að stofna stjórn­málaflokk sem kallast ... hvað?

4.  Nokkru seinna var Benedikt orðinn ráðherra á vegum flokksins. Hvaða ráðherra­embætti gegndi hann?

5.  Í september frumsýndi Þjóð­leikhúsið söngleik einn sem varð nokkuð umdeildur, er óhætt að segja. Hvað heitir söng­leikurinn?

6.  Og frá hvaða landi kom söng­leikurinn?

7.  Önnur nýleg sýning Þjóð­leikhússins er hins vegar langt frá því umdeild, heldur hefur hlotið beinlínis einróma lof. Það er sýning byggð á frásögn Héðins Unnsteins­sonar á glímu hans við geðsjúkdóm og viðbrögð samfélagsins. Hvað heitir hún geysivinsæla sýning?

8.  Leik­stjóri bæði söng­leiksins og síðarnefndu sýningarinnar er sá eða sú sama. Hver er það?

9.  Seúl er höfuðborg í ... hvaða landi?

10.  Jim Morrison var söngvari í vinsælli rokk­hljómsveit um 1970 sem flutti lög eins og Light Me Fire. Hann lést svo af völdum drykkju­skapar aðeins 27 ára gamall. Hvað hét hljóm­sveitin sem hann var í?

***

Seinni auka­spurning:

Hluti af hvaða vörumerki eða lógó má sjá hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurningum:

1.  Kálfskinn.

2.  Norður- og Suður-Ameríka.

3.  Viðreisn.

4.  Fjármála­ráðherra.

5.  Sem á himni.

6.  Svíþjóð.

7.  Vertu úlfur.

8.  Unnur Ösp.

9.  Suður-Kóreu.

10.  The Doors.

***

Svör við auka­spurningum:

Á efri myndinni er Vera Illuga­dóttir!

Á neðri myndinni er vörumerki Amazon.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár