947. spurningaþraut: Katalónskur biskup og þjóðhöfðingi

947. spurningaþraut: Katalónskur biskup og þjóðhöfðingi

Fyrri auka­spurn­ing:

Í hvaða dal er að finna það nátt­úru­fyr­ir­bæri sem hér sést?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Joan-Enric Vives i Sicília er kata­lónskur biskup í Urgel-hér­aði í Kata­lóníu, skammt fyrir norðan Barcelona. Ótrúlegt nokk, þá er hann um leið annar tveggja þjóð­höfð­ingja í sjálf­stæðu ríki. Hvaða ríki er það?

2.  Í hvaða borg eru bæði Vest­ur­brú og Norð­ur­brú?

3.  Keyrðu — eða hjól­aðu — frá Lækj­ar­torgi í Reykja­vík, með­fram Tjörn­inni, út á Miklu­braut og síðan sem leið liggur að brúnni yfir Elliðaár áður en lagt er í Ártúns­brekk­una. Hve langa leið hef­urðu þá lagt að baki? Eru það 3 kíló­metrar, 6 kíló­metrar, 9 kíló­metrar eða 12 kíló­metrar?

4.  Hver frum­sýndi ein­leik­inn Á eigin vegum í Borg­ar­leik­hús­inu um miðjan sept­em­ber?

5.  Í landi einu eru tíu útbreidd­ustu ætt­ar­nöfnin öll dregin af starfs­greinum: Malari, smiður, klæð­skeri, fiski­maður, vef­ari, bóndi, vagna­smiður, bak­ari, fógeti, hirð­maður. Hvaða land er þetta, þar sem öll algeng­ustu nöfnin eru svo mjög tengd starfs­greinum?

6.  Hvaða kvik­mynd fékk Eddu­verð­launin sem besta íslenska kvik­myndin um miðjan sept­em­ber?

7.  Hver sat sem Breta­drottn­ing (réði í eigin nafni) á undan Elísa­betu 2.?

8.  En hvað hét drottn­ingin sem ríkti þar á undan í eigin nafni í Englandi, Skotlandi og þeim löndum — en það var á árunum 1702-1714?

9.  Tungumál hvaða þjóðar, sem nú býr í Mið-Evrópu, er skylt finnsku?

10.  Hringur úr 4 metra háum til­höggnum sand­steinum. Flestir eru um 2 metra breiðir og vega um 25 tonn hver. Ofan á þeim flestum liggja minni til­höggnir steinar milli stóru drang­anna. Inni í hringnum er annar hringur úr minni steinum. Hverju er hér lýst?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er karl þessi?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Andorra.

2.  Kaup­manna­höfn. Vester­bro og Nørrebro.

3.  Sex kíló­metrar.

4.  Sigrún Edda.

5.  Þýska­landi. Nöfn eru Müller, Schmidt, Schneider, Fischer, Weber, Meyer, Wagner, Becker, Schulz, Hoffmann.

6.  Dýrið.

7.  Viktoría.

8.  Anna.

9.  Ungverja.

10.  Sto­nehenge á Englandi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Gilið á efri mynd­inni (Stuðla­gil) er í Jökuldal.

Karlinn á neðri mynd­inni er Will Smith.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár